Morgunblaðið - 06.06.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 06.06.1986, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986 Kókog getnaðar- varnir Það er margt skrýtið í kýr- hausnum og nú hafa vísinda- menn hjá Harvard komizt að raun um það að hægt sé að nota Coca Cola til getnaðarvarna. Skolun legganga að loknum samförum er nú orðið talin úrelt og brigðul getnaðarvörn en í Ijós hefur þó komið að konur í löndum þriðja heimsins beita þessari aðferð í stórum stíl og margar þeirra nota þá einmitt Coca Cola í þessum tilgangi. Á markaði eru nú fjórar tegundir af þessum ágæta drykk, gamla góða kókið, nýtt kók, nýtt kók án koffeins, og megrunar-kók. Þeir Harvard-menn gerðu tilraunir með áhrif þessara fjögurra teg- unda drykkjarins á sæði og kom þá reyndar í Ijós að allar unnu þær á því en voru þó mismunandi virk- ar. Megrunar-kókið var virkast og sæðisfrumur sem komust í snert- ingu við það hættu að bæra á sér áður en mínúta var liðin. Auk þess kom í Ijós að gamla kókið var fimm sinnum virkara en nýja kókið. Þrátt fyrir þetta mæla þeir hjá Harvard ekki með því að Coca Cola sé notað til að koma í veg fyrir getnað, en sæði á það til að leita upp eggjaleiðarana og kom- ast þannig út af því svæði líkamans sem skolun nær til fáeinum mínút- um eftir að samförum lýkur þannig aö frjóvgun eigi sér þrátt fyrir allt stað. Orkuþörf ®g litarháttur 0 Ibaráttunni við aukakílóin er ekki amaiegt að fá nýjar upplýsingar frá Lundúna-háskóla þar sem vís- indamenn telja sig hafa komizt að því að það fari mjög eftir litarhætti hversu mikil orkuþörf líkamans er. Það getur verið huggun harmi gegn að vita til þess að aðrir séu í meiri vanda staddir en maður sjálfur, en niðurstöður vísinda- mannanna benda til þess að fólk af hvítum kynstofni brenni að meöaltali 200—300 fleiri hitaein- ingum á dag en guli kynstofninn og þeir sem eru af kynþætti negra. Þessar upplýsingar komu nokkuö á óvart en það var ekki um að villast: Bretar og Grikkir brenndu 10—17% fleiri hitaeiningum á klukkustund en líkamlegir jafnokar þeirra frá Kenýa, Ghana, Nígeríu, Malaysíu, Tailandi, Indlandi og Pakistan. Niðurstaðan er sú að fólk frá þessum fjarlægu löndum þarf að hafa meira fyrir því en hinir hörundarbleiku að losa sig við aukakílóin en auðvitað þýðir þetta jafnframt að hinir síðasttöldu hafa síður afsökun fyrir offitu. Einmana ungvidi og heilsuleysi á fullorðinsaldri Um þrjátíu ár eru síðan vís- indalegar rannsóknir sýndu svo ekki varð um villzt að börn sem fara á mis við ástúö, félagsskap og umhyggju bíða þess líklega ekki bætur ævilangt. Þessi vitn- eskja var árangur víðtækra rann- sókna sem hinn frægi sálfræðing- ur, Harry Harlow, gerði á atferli apa. Hann tók apaunga frá mæðr- um sínum þegar þeir litu dagsins Ijós og ól þá upp með lífvana stað- genglum þeirra sem þó mjólkuöu. Þessar „tuskumömmur" urðu al- ræmd tákn um firringu en þegar apaungarnir komust á legg voru þeir brenglaðir tilfinningalega. Því er stundum haldið fram að hrotur séu hraustleikamerki en þær geta verið heilsuspillandi, ekki aðeins fyrir þá sem verða andvaka vegna hins hvimleiða hávaða heldur einnig þann sem hrýtur. Stöðug- ar hrotur geta valdið ofnæmi og kirtlabólgum að sögn bandaríska háls-, nef- og eyrnalæknisins David Fairbays. Vitað er, að þeir sem sofa liggjandi á bakinu, eru gjarnir á að hrjóta. Astæðan er sú að við slökun sígurtungan til baka í munninum og hindrar þá að nokkru leyti loftstreymi í hálsinn. Koma má í veg fyrir hrotur eða draga verulega úr þeim með því að liggja á hliðinni eða hafa hátt undir höfðinu. Nú eru nýjar aparannsóknir í gangi á vegum Denver-háskóla og árangur þeirra bendir til þess að aðskilnaður barna frá sínum nán- ustu í frumbernsku hafi ekki ein- ungis í för með sér andleg skakka- föll heldur einnig skaðlegar líkam- legar afleiðingar þegar til langs tíma er litið. Sálfræðingurinn, Mark Lauden- slager, og samstarfsmenn hans tóku tvo apaunga frá foreldrunum og tvo aðra aðskildu þeir aðeins frá mæðrum sínum. Apaungarnir voru um sex mánaða gamlir sem jafngildir 2—3 mannsárum. Þótt aöskilnaðurinn væri skammvinnur lét streitan ekki á sér standa enda vissu apaungarnir ekki að fagnað- arfundir væru á næsta leiti. Þegar þessir sömu apaungar höfðu náð þriggja til fjögurra ára aldri (unglingar) var ónæmiskerfi þeirra borið saman við ónæmis- kerfi fimm apa sem aldrei höfðu verið haföur í einangrun. í einangr- unaröpunum var virkni B- og T-fruma — sem eru meginstoðir ónæmiskerfisins — mun minni en hjá samanburðarhópnum. Enda þótt einangrunaraparnir líti út fyrir að vera jafn heilbrigðir og hinir kann þessi skortur á virkni að hafa það í för með sér þegar tímar líða að þeim stafi sérstök hætta af sjúkdómum, segir Laudenslager um leið og hann leggur áherzlu á að hér sé einungis um frumniður- stöður að ræða. Þeim spurningum er þá ósvarað með hvaða hætti félagsleysi í frumbernsku hafi skaðleg áhrif á ónæmiskerfið og hvað sé í raun og veru sameigin- legt með einmana öpum og ein- manafólki. (Úr American Health) HBLSA UMSJÓN/ÁSLAUG RAGNARS Antikmunir voru sérgreln þessa karls. ggæsí SSM $0 , Ssffl : Dúkar og annað handsaumað var þaö sam þessl haföi á boðstólum. Þaö má nota tfmann meöan beöið er eftir viðskiptavinum viö aö dytta að varningnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.