Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 Landhelgisgæslan ver mikilvægustu auðlind landsins Skipshöfn Signrðar um þessar mundir Morgunblaðið/Börkur Amarson Landhelgisgæslan sinni veiðieftirliti Það er nú svo að ef af þessu yrði mundi það rýra enn meir en orðið er starfssvið Landhelgisgæzl- unnar, en ég tel að það eftirlit sem sjávarútvegsráðuneytið hefur haft með höndum varðandi veiðamar á landgrunninu eigi skilyrðislaust að vera í höndum Landhelgisgæzlunn- ar, því Landhelgisgæzluna getum við ekki lagt niður og við höfum ekki efni á að reka tvö hliðstæð fyrirtæki innan ríkiskerfisins. Þessi mál geta verið undir stjóm sjávarút- vegsráðuneytisins þótt Landhelgis- gæzlan taki að sér að vinna verkið. Þama er um að ræða eftirlit bæði með veiðarfærum og afla sem er í raun mjög viðamikið starf ef vel á að fyigjast með veiðunum og sinna þessu af festu og alvöru og ég er sannfærður um, að það er rík ástæða til þess að sinna þessu starfi mun betur en gert hefur verið og skapa meira aðhald en verið hefur. Síðan 1976 eftir að landhelgis- deilunum Iauk hafa veiðar útlendra fiskimanna á íslandsmiðum stór- minnkað og undanfamar vikur hafa aðeins 2—4 erlend fiskiskip verið á miðunum og þá samkvæmt leyfi íslenzkra stjómvalda. Hér er um að ræða belgísk og færeysk skip. Þessi þróun hefur einnig orsakað minnkandi starfssvið Landhelgis- gæzlunnar og á sl. ári hafði Land- helgisgæzlan aðeins afskipti af 14 eða 16 erlendum fískiskipum og þá eingöngu til eftirlits með afla og veiðarfærum. Vantar eftirlit í jöðrum landhelginnar Talsverður árgangur hefur verið við ytri mörk fiskveiðilögsögunnar og þar hafa rússneskir fískimenn ásamt fiskiskipum Efnahagsbanda- lags Evrópu auk annarra Evrópu- þjóða veitt rétt utan við 200 mflna mörkin. En Landhelgisgæzlan hef- ur ekki getað sinnt eftirliti með þessum veiðum sem skyldi vegna Qárskorts. í dag er Landhelgisgæzlan aðeins með þijú skip, Tý, Ægi og Óðin, og það hefur ekki verið hægt að reka þau undanfarin ár nema hluta úr árinu því eitt skipanna hefur verið bundið 3—4 mánuði á hveíju ári.“ „Hvað er þá til ráða?“ Landhelgisgæslan ábyrgi aðilinn á hafinu Hluti af starfsemi Landhelgis- gæzlunnar í dag er að fylgjast með vitakerfi landsins og hún hefur orðið að sinna í æ ríkari mæli ýms- um þáttum vitamála allan ársins hring. Það má heita furðulegt að Vitamálastofnunin og Landhelgis- gæzlan skuli ekki vera sameinaðar. Það mundi auðvelda og einfalda rekstur þessara stofnana og spara mikið fé fyrir ríkissjóð að mínu mati. Undanfarna mánuði hafa stjómvöld leitazt við að koma á samkomulagi milli Landhelgis- gæzlu, Flugmálastjómar, Lands- símans og Slysavamafélags íslands um skipan björgunarmála á haf- svæðinu umhverfís landið. Ekki hefur tekizt að sætta sjónarmið Landhelgisgæzlu og Slysavamafé- lags Islands þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir um skipan þessara mála. En ég tel undantekningarlaust að Landhelgisgæzlan eigi að vera hinn ábyrgi aðili á hafsvæðinu umhverfis ísland þar sem hún er sú stofnun í landinu sem hefur tækjum og mannafla á að skipa til þess að sinna þessum málum, þ.e.a.s. hún hefur skip og flugvélar sem verða að vera til staðar. Ég er ekki að rýra starfsemi Slysavamafélags Is- lands með þessum orðum. það vejk sem deildir Slysavamafélags Is- lands hafa unnið um langt árabil er einstætt. Mjög æskilegt væri hins vegar að nánara samstarf yrði milli Landhelgisgæzlu og Slysa- vamafélags íslands um fræðslumál- in og ég hef þá í huga að í stað þess að fara að gera út varðskipið Þór, hið gamla skip, til fræðslu- starfa, þá yrði þremur varðskipun- um haldið út allt árið og Landhelgis- gæzlan aðstoðaði Slysavamafélag Islands við námskeiðahald í sjávar- plássum landsins með varðskipun- um. Landhelgisgæzlan gæti létt undir í þessum efnum og þrátt fyrir það gæti Þór nýtzt sem miðstöð þessa starfs og annarra þátta í starfi Slysavamafélags íslands. Öryggisþætti fiski- skipanna ábótavant Slysavamafélag íslands á að mínu mati að sjá um öll minni hátt- ar björgunarmál sem það hefur bolmagn til að leysa og sérstaklega þann þáttinn sem lýtur að strönd landsins og fræðslu og fyrirbyggj- andi starf. Og mjög æskilegt er að þessar stofnanir ynnu náið saman ásamt Landssíma og Flugmála- stjóm. Það hefur færzt í vöxt, að Land- helgisgæzlan hefur aðstoðað Sigl- ingamálastofnun við eftirlit á bún- aði og skráningu skipa og það hefur sýnt sig að það hefur verið mikil þörf á slíku. Þetta er nýr þáttur í starfi gæzlunnar. Undanfarið hefur verið mjög góð samvinna milli þess- ara tveggja stofnana um þessi mál og því miður virðist vera mjög mikið verkefni þar framundan,- þar sem heimsins beztu fiskimenn sinna ekki þessum málum sem skyldi, þ.e. að hafa búnað og öryggistæki fiski- skipanna í eins góðu lagi og hægt er og það er sorglegt til þess að vita. Það er einnig ljóst að það þarf að reka meira á eftir því að menn kunni á þessi tæki og viti hvemig á að bregðast við og nota þau, ef upp kemur sú staða. þetta er eitt af því sem Landhelgisgæzl- an, sem er sífeilt á vakt við landið, getur stanzlaust sinnt í samvinnu við aðra. Bylting í þyrlu- útgerð Gæzlunnar Ný skipan mála í þyrlurekstri Landhelgisgæzlunnar, kaupin á hinum nýju þyrlum frá Aerospatiale lofa mjög góðu og má með sanni segja að um byltingu sé að ræða frá því sem verið hefur. Sérstaklega á ég þar við þann þátt sem snýr að aðstoð og sjúkraflutningum á hafsvæðinu umhverfis ísland, svo og aðstoð við dreifbýlið í landinu. Ferðalög einstaklinga á ýmsum farartækjum um óbyggðir Islands hafa færzt mjög í vöxt á undan- fömum árum og er ekki séð fyrir endann á þeirri þróun enn í dag. Og það er fyrirsjáanlegt að þyrlur Landhelgisgæzlunnar verða í náinni framtíð að sinna þessum þætti tölu- vert meira en verið hefur og þá er nauðsynlegt að vel sé búið að tækjum og mannafla þyrludeildar- innar. Þyrlur Landhelgisgæzlunnar hafa undanfarin ár unnið að ýmsum byggingaframkvæmdum fyrir opin- bera aðila og sjálfstæða víðs vegar um landið, ýmist verkefni á hálendi landsins, við skíðalyftur o.fl. o.fl. og eru slíkar þyrlur nauðsynlegar í nútímaþjóðfélagi. Ég er sann- færður um það að þáttur þyrlunnar mun vafalaust aukast á komandi árum. Þyrlurekstur Landhelgisgæzl- unnar er mjög fjárfrekur og menn verða að gera sér grein fyrir því að það má ekki bitna á öðrum þátt- um stofnunarinnar sem eru ekki síður mikilvægir, bæði á líðandi stund og þegar fram í sækir. Ærin verkefni ef hlúð er að Gæzlunni Framansagt sýnir að verkefnin fyrir Landhelgisgæzluna eru ærin og mikil ef hlúð er að stofnuninni og henni veitt nauðsynlegt fjár- magn til þess að sinna sínum verk- efnum, bæði hefðbundnum og nýj- um sem hér hefur verið bryddað á. Ég veit að stjómvöld hafa í mörg hom að líta varðandi fjárveitingar til ýmissa ríkisstofnana, en ríkis- valdið má ekki gleyma þeirri stofn- un sem fylgist með og varðveitir langmikilvægustu auðlind landsins, auðlindinni, sem þjóðin hefur lifað á og mun lifa á. Umfjöllunin um Landhelgisgæzl- una undanfama mánuði vegna þátta sem einstaklingar telja að miður hafi farið hefur komið á róti. En ég tel að hinn neikvæði þáttur í þessari umfjöllun hafi verið stór- lega orðum aukinn og það er leitt til þess að vita. Varðandi áfengis- neyzlu starfsmanna Landhelgis- gæzlunnar þá neyta þeir áfengis eins og aðrar stéttir þjóðfélagsins og að mínu áliti í mun minna mæli en margar aðrar stéttir. Samkvæmt kjarasamningum eiga áhafnir varð- skipanna að standa 8 tíma vaktir, 8 tíma vinnudag eins og aðrar stétt- ir þjóðfélagsins og því eiga menn frí í 16 klukkustundir. Þessar 16 klukkustundir hafa stjómvöld ekki séð sér fært að kaupa af áhöfnum varðskipanna nema að mjög tak- mörkuðu leyti, og á meðan svo er tel ég mjög vafasamt að banna starfsmönnum landhelgisgæzlunn- ar að neyta áfengis í sínum frítíma, en það skal skýrt tekið fram, að áfengisneyzla um borð í skipum á hafi úti hefur verið og er bönnuð og hafa áhafnir varðskipanna virt það bann mjög vel. Þegar varðskip- in eru við land er það eins og hjá öðrum sæfarendum, eilíf barátta við tímann og stundum vill það rekast á við starfið sjálft eins og gengur. Þetta er spuming um fjöl- skylduna, umhyggjuna fyrir starf- inu og skemmtunina. Landhelgis- gæzlan hefur haft og hefur mjög góðu fólki á að skipa, sem hefur sérhæft sig í hinum ýmsu störfum hennar og hafa ráðamenn stofnun- arinnar reynt eftir megni að þjálfa starfsmenn hennar og liðsinna þeim svo að þeir verði hæfari til starfsins. Ég er bjartsýnn á að þessi umfjöllun verði stofnuninni í heild til góðs svo að forráða menn þjóðarinnar beri gæfu til að hlú að Landhelgis- gæzlunni sem skyldi. Nýtt 2000-3000 tonna varðskip Helztu atriði sem varða stöðu og stefnu Landhelgisgæzlunnar eru eftirlit með veiðum og afla, vita- þjónustu, almennt eftirlit innan 200 mflna markanna, björgunarmál og yfirstjóm á hafinu umhverfis landið í þeim efnum, aðstoð við dreifbýlið, aðstoð við fiskveiðiflotann, öryggis- málin og fræðsla í öryggismálum, þyrluþátturinn og skipaeftirlit. Varðskipið Óðinn er elzta skip Landhelgisgæslunnar, smíðað árið 1959 og er því orðið 27 ára gam- alt. Eðlilegt er að menn fari að huga að nýsmíði fyrir Gæzluna, 2000—3000 tonna skipi. Ægir er um 1000 tonn en þar sem veiðar íslenzkra fiskimanna færast sífellt norðar á bóginn og það er ljóst að við ætlum að vera okkar mönnum til aðstoðar þá dugir ekki minna skip. Ég vil svo að lokum nota tæki- færið og óska öllum íslenskum sjó- mönnum til hamingju með daginn. -á.j.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.