Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 8

Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 HÖPN t HORNAFIRÐI Algjört skilyrði að endumýja úreltan bátaflota — segir Óli Björn á Sigurði Ólafssyni og segir sína sögu að við fáum ekki að njóta þess einu sinni að sjá sjónvarpið því skilyrðin eru ekki betri en það. En þetta er nú kannske eins og ýmislegt annað sem lýtur að sjómönnum, við erum eins konar þriðja flokks fólk, þessir sjómenn í landinu. En það væri nú ugglaust kominn tími til að breyta því eitt- hvað og brúa bilið. Já, ég held að þeir selji steinbítinn grimmt í Frakklandi á góðu verði. Vetrarvertíðin var mjög góð, gott veður og ágætis fískerí. Við vorum með 570 tonn í netin og síðan erum við búnir að fá um 60 tonn af stein- bít. Já, mér fínnst jákvæð staða í útveginum utan það að við erum komnir á úrelta báta og í þeim efnum verður að taka til hendinni að endumýja bátaflotann, þ.e.a.s. ef þetta á ekki að verða sjálfdautt. Það er algert skilyrði að endumýja bátaflotann. Við eigum elzta og Hornafjarðarbáturínn Sigurður Ólafsson var að leggjast að bryggju í Hornaf irði þegar okkur bar að garði. Við brugðum okkur upp í brú og ræddum við Óla Björn Þorbjörnsson skipstjóra. „Við erum búnir að vera í viku- tíma á steinbít, trolli, en við höfum 10 daga sóknarkvóta í maí. Þetta er ágætur afli. Við erum með 15 tonn eftir sólarhring, en steinbít höfum við veitt á þessum árstíma undanfarin 4 ár. Þú spyrð hvers vegna við höfum ekki veitt stein- bítinn áður á þennan hátt, en það er líklega vegna þess að við höfum þá haft nóg af öðm að moða úr áður. Verðið á steinbítnum er 10.88 kr. fyrir 1. flokk. Þetta em hæg heimatökin má segja. Við emm héma 3 mflur fyrir utan og það er stutt að fara en hins vegar furðulegt ÓliBjörn. Lagst að bryggju. IWTClVr A TT'DCtlT% Jk F&TTD lyijlAA U tr O JL U JK, Eg get ekki hugsað mér að vinna í landi — segir Helgi Jóhannsson, stýrimaður og trillukarl í frístundum Á sjónum er maður frjáls Spjallað við Halldór Þorsteinsson trillukarl á Veiðibjöllunni „Ég er búinn að vera 23 ár á sjónum og get alls ekki hugsað mér að hætta sjómennsku og fara að vinna í landi. Ég er núna stýrímaður á Beiti — sem Síldarvinnslan hérna i Neskaupstað gerir út — og ég er meira að segja svo altekinn af sjómannsbakteríunni að ég er trillukarl í frístundum. Geri út þessa 4ra tonna tríllu, Sunnu Björk NK78,“ segir Helgi Jóhannsson. Tíðindamaður Morgunblaðsins hefur tekið hann tali þar sem hann er að dytta að trillu sinni í smábáta- höfninni í Neskaupstað. Það er blíð- viðri. Fjörðurinn er spegilsléttur og trillukarlar í landi enda var kosið í gær og svo ætti í raun að vera sjó- mannadagurinn í dag, fyrsti sunnu- dagurjúnímánaðar. „Þetta er smán. Ég held að það hefði nú mátt kjósa á einhveijum öðmm tíma. Það er verið að troða á sjómönnum með því að færa sjó- mannadaginn svona til. Sjómenn em mjög óánægðir með þetta hér um slóðir," segir Helgi. Heldurðu að þetta muni þá skyggja á hátíðahöldin á sjómanna- daginn að þessu sinni? „Nei, nei. Við sjómenn látum ekkert slíkt spilla gleðinni. Það hefur alltaf verið mikið um að vera héma í Neskaupstað á sjómanna- daginn — og hér verður nú mikið um dýrðir eins og endranær. Já, auðvitað. Öll skip inni og hver og einn tekur þátt í gleðinni. Engu að síður á sjómannadagurinn að vera á réttum tíma. Rétt skal vera rétt.“ Hvað er það sem gerir sjómanna- starfíð svona heillandi? „Spennan, maður. Spennan í kringum veiðimennskuna. Maður gjörsamlega gleymir sér þegar maður lendir í físki. Veit ekkert hvað tímanum líður. Þessa spennu finnur maður ekki í landi.“ En ef þér byðist nú gott starf í landi — værirðu þá bara ekki til- búinn að yfírgefa sjóinn? „Nei, nei, kemur ekki til greina. Eg yfírgef ekki ævintýrið. Veiði- mennskan er mér í blóð borin." En er sjómannsstarfíð ekki erfítt starf í raun og veru — og jafnvel hættulegt? „Ekki miðað við það sem áður var. Aðstaða hefur öll gjörbreyst. Ég byrjaði t.d. á 24 tonna skipi og er nú á 1000 tonna skipi. Það er gjörólík aðstaða og raunar ekki saman jafnandi. Öryggisbúnaður er líka allur annar, þótt öryggis sé enn víða ábótavant. En það er þá ekki síst okkur sjómönnunum sjálf- um að kenna. Pyrst og fremst held Morgunblaðið/Ólafur Halldór Þorsteinsson um borð í trillu sinni, Veiðibjöliunni. ég þó að það skorti þjálfun í örygg- ismálum, að halda þekkingunni við og það stendur vonandi til bóta. Nei, ég held að íjölskyldulíf sjó- manna sé yfirleitt gott — en auðvit- að er það persónubundið eins og hjá öðru fólki. Hins vegar er því ekki að leyna að sjómannskonan er oft í tvíþættu hlutverki á heimil- inu vegna fjarveru mannsins og á henni hvílir e.t.v. meira álag en öðrum húsmæðrum. Launin? Þau hafa nú farið versn- andi held ég — og versnuðu til muna þegar skiptaprósentan var lækkuð. En launin endurspegla ekki .afstöðu þjóðarinnar til sjómannsins. Ég held að sjómenn njóti vaxandi almenningsálits — og meiri skiln- ings,“ segir Helgi Jóhannsson að lokum. — Ólafur. Egilsatöðum. Halldór Þorsteinsson er Norðfirðingur í húð og hár, 45 ára að aldri og hefur stundað sjóinn lengi. Allt frá árínu 1971 hefur hann stundað smábátaútgerð á surnrum en verið á togurum á haustin og veturna. „Ég var 12 ára þegar ég fór í minn fyrsta sjóróður. Það var með frænda mínum, sjósóknara. Sjó- mennsku hóf ég svo að stunda fyrir alvöru 1956 frá Keflavík. Þá réðist ég þangað á vetrarvertíð og komst í skipsrúm á Langanesinu, 58 tonna bát sem raunar var smíðaður hér í Dráttarbrautinni í Neskaupstað. Síðan má segja að ég hafí stundað sjóinn alla tíð utan þess tíma er fór í vélvirkjanám. — Já, Veiðibjallan. Þetta er for- láta gripur, 5 tonna bátur sem var smíðaður fyrir mig á Borgarfírði eystri fyrir nær 12 árum. Eg hefí róið einn á Veiðibjöllunni síðan 1980 — einfaldlega vegna þess að fiskverðsþróunin hefur verið á þann veg að svona smábátaútgerð ber hreinlega ekki nema einn mann.“ Er gaman að vera trillukarl? „Það er ævintýri. Á sjónum er maður fijáls. Að vera einn með sjálfum sér og gefa sig veiði- mennskunni á vald. Það er fátt jafn stórkostlegt." Og hvernig gengur svo út- haldið fyrir sig hjá tríllukarli í Ncskaupstað? „Veiðisvæðið er yfírleitt fjörður- inn héma og allt út að 12 mílum. Það er misjafnt hvað menn sækja langt. Menn halda yfirleitt út í býtið á morgnana og koma svo að upp úr miðjum degi. Flestir stunda þessa útgerð einungis á vorin og sumrin en aðrir árið um kring. Flestir stunda þetta alfarið sem atvinnu en þeir eru líka til sem hafa þetta fyrst og fremst sem tómstundagam- an. Ja, ætli það séu ekki gerðar út héðan um 40 trillur og aðstaðan fyrir þessa útgerð er orðin dágóð." Ertu aflakló? „Ég held að ég sé nú svona venjulegur meðaljón í þeim efnum. Fiska þetta frá 25-32 tonn yfír sumartímann. Aðrir físka meira, allt að 70 tonnum yfír árið — en þeir teggja líka meira undir." Segðu mér eitt. Ertu aldrei sjóveikur? „Ég fínn stundum fyrir einhvers konar jafnvægistruflunum í fyrstu róðrunum á vorin á meðan ég er að ná takti við trilluna. Svo er það búið.“ Kanntu ekki eina sjómanns- sögu að segja okkur? „Nei, blessaður vertu. Slíkar sögur heyra allar fortíðinni til. Síð- an tæknin varð svona háþróuð eru menn löngu hættir að taka land í Mjóafirði í stað Seyðisfjarðar." En er þetta ekki hálfgert glæfraspil að vera einn á trillu langt úti á hafi?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.