Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8: JÚNÍ1986
B 9
úreltasta bátaflota í heimi hér í
Homafírði. Það er enginn yfír-
byggður bátur til utan togarinn.
: Þessi sem við erum staddir í er 26
ára gamall. Upphaflega var þetta
Runólfur frá Grundarfírði.
Já, ég er búinn að vera lengi á
sjó, eiginlega frá því ég var 11 ára.
Eg hef aldrei gert neitt annað og
ég hef stundað sjómennsku árið um
kring síðan 1963, byijaði í raun á
fullu til sjós 15 ára, en hafði verið
11 ára gamall og eftir það með
Hauki Runólfssyni á Akurey 1960.
Jú, eins og þú sérð, þá höfum við
góð tæki hér um borð. En það er
ekki nóg þó að gott sé að hafa góð
tæki, bátana þarf að endumýja."
„Hvað fínnst þér um fískveiði-
stjómunina?"
„Ég er sáttur við hana að mörgu
leyti, tel nauðsynlegt að stjóma
þessum málum eins og staðan er
og ég hef trú á því að friðunin sé
eitthvað farin að skila sér nema
hvað ég tel að það sé illa komið
fyrir ýsunni, við höfum ekki séð
: hana hér í mörg ár.
Á sjómannadaginn? Ætli ég verði
ekki bara með ijölskyldunni á sjó-
mannadaginn heima. Ég held mér
þyki það mest spennandi. Við byrj-
uðum á humamum eftir hvítasunnu
og þannig gengur þetta sinn gang.
Ég er mikið með sömu mennina.
Það eru sömu mennimir uppistaðan
í skipshöfninni í mörg ár og þetta
er góður mannskapur."
-á.j.
Grein og myndir:
ArniJohnsen.
--
Helgi Jóhannsson.
„Þessir bátar em allir mjög vel
útbúnir. Með talstöð, radar, dýptar-
mæli og jafnvel lóran. Svo sníða
menn sér auðvitað stakk eftir vexti
og halda ekki í róður ef eitthvað
er að veðri. Þegar komin eru 5-6
vindstig mega menn fara að gá að
sér. Menn em svo kannski aðgætn-
ari þegar þeir hafa ekki á aðra að
treysta."
Að lokum Halldór, nú hefur
sjómannadagurinn verið færður
til. Eru sjómenn sáttir við það?
„Alls ekki. Það er grundvallarat-
riði að lögbinda daginn og ég trúi
raunar ekki öðm en það verði gert.
Sjómannadeginum var flýtt nokkr-
um sinnum fyrir einum 20 ámm
vegna þess hversu sumarsfldveiðar
hófust þá snemma. Þá var dagurinn
haidinn síðasta sunnudag maí-
mánaðar. Og það varð til þess þá
að við gátum t.d. ekki róið kappróð-
ur — eins og hér hefur verið venja
á sjómannadaginn — vegna ísa sem
lagði inn allan Qörð. Hér er alltaf
mikið um að vera á sjómannadag-
inn. 011 skip inni eins og um jól og
áramót. Bærinn fánum prýddur.
Dagskrá hefst venjulega um miðjan
laugardag og stendur sleitulítið
fram á mánudagsnótt. Það á ekki
að vera að hringla með sjómanna-
daginn. Það er vanvirða við sjó-
menn.“ -Ólafur
Það var létt yfir strákunum á
Frey SF-20 í
Hornarfjarðarhöfn þegar við
sprönguðum um bryggjuna og
hittum menn að máli um
sjómennsku, stöðu og stefnu.
yið ræddum við þá Björn
Armannsson og Valdimar
Einarsson skipveija.
Bjöm Ármannsson hefur verið
sjómaður síðan hann var smápolli
að eigin sögn, en hann er frá
Vopnafírði. „Eg hef verið sjómaður
Björn og Valdimar á Frey.
Það þýðir ekkert að gogga
í öðru en léttum tón
Rœtt við skipverja á Frey SF-20
hér síðan 1972, tók eitt sumar í
landi til þess að gifta mig, sagði
Bjöm og brosti sínu blíðasta. Það
sem mér fínnst helzt brenna á hjá
sjómönnum eru launin og ég tel í
rauninni að við fáum ekki laun fyrir
okkar vinnu. Ég hygg að það sé
kominn nýr gmndvöllur í þessari
stöðu, einmitt sá að fá kostnaðar-
hlutdeildina til baka aftur. Varðandi
fískveiðistjómunina þá er ég fylgj-
andi henni, en ég er mjög óánægður
með söluna á kvótanum. Mér finnst
það stórskrýtið að það skuli vera
hægt að selja þorskinn syndandi í
sjónum á kr 7 kr. kg.
Já, mér líkar ágætlega á sjónum.
Mig hefur að vísu alltaf langað til
að fara í land, prófa það. En það
er þá ekkert annað sem býður
manns en fara að gogga físk upp
í kar í frystihúsinu, jafnvel þótt ég
sé vélstjóri. En ég nenni því ekki
og þá held ég að mig langi heldur
á sjóinn. Það er gott að vera hér á
Homafírði í útgerðinni. Ég er búinn
að vera með sama skipstjóranum í
13 ár, Birgi Sigurðssyni, og líkar
vel. Það er líka svo að albeztu
menn sem á íslandi búa eru sjómenn
þótt verið sé að saka þá um fyllirí.
Það verður hins vegar ekkert af
þeim skafíð að þeir em engir englar
í þeim efnum, en ég held að það
sé allt í hófí miðað við það sem
gerist og gengur. Já, það er létt i
okkur hljóðið, enda þýðir ekkert að
vera að gogga í neinu öðm.
Valdimar Einarsson er kokkur á
bátnum. Hann er frá Keflavík og
er 24 ára gamall og hefur verið á
sjó síðan hann var 16 ára.
Ég hef það gott, það er ekkert
annað að segja. Þeir sem vilja hafa
það gott hér geta það, en það
kostar auðvitað vinnu.
Já, það hefur alltaf fylgt því að
ef maður vill hafa það gott, þá
kostar það vinnu, skaut Bjöm inn
í. Hitt er að það er gott að fá frí-
stundir og satt að segja vill það nú
brenna við að maður bíði svolítið
spenntur eftir frídögum um páska -
og þeim dögum sem koma til í
sambandi við sóknarkvótann. Já,
það er skemmtilegt að vera á sjón-
um, það er skemmtilegt að vinna
með duglegum mönnum og taka á.
Halldór Ásgrímsson var héma eitt
sinn með okkur um borð á milli
þinga minnir mig. Dóri var harð-
duglegur sjómaður. Hann var á
blökkinni, alerfiðasta staðnum og
dró einn kapalinn af spiltromlunum.
Spilinu var kúplað út, en hann stóð
einn í verkinu. Árið eftir þurfti hins
vegar tvo í að draga kapalinn.
Nei, ég hef aldrei lent í neinu sem
betur fer og vona að það eigi ekki
eftir að koma upp.
Ég spurði þá Valdimar og Bjöm
hvað þeir gerðu á Sjómannadaginn
sér til skemmtunar. Þeir svömðu í
einum kór: Við fömm á fyll... .
nei, sögðu þeir svo báðir í einu,
nei, nei. Við fömm væntanlega á
hótelið í boði útgerðarinnar í eins-
konar vertíðarslútt, en við höfum
slegið tvær flugur í einu höggi á
þennan hátt, haft vertíðarlokin og
Sjómannadaginn undir einni sæng.
Og það er engin spuming að það
er veitt vel í mat og drykk. _ - ■
s
>
~a
z
SUMARBUSTAÐA
EIGENDUR
Notið dagsbirtuna til þess að lýsa upp
sumarbústaðinn.
Nú er hægt aö lesa í rúminu, hafa meö sér sjónvarp, útvarp, setja upp viftu fyrir
gaseldavélina o.fl. o.fl.
Fáanlegt í pakka sem inniheldur: Sólarsellu
Stjórnstöð
Ftafgeymi
I
Inniljós 6 stk.
50 m rafleiðslur
tenglar og klær, tilbúiö til uppsetningar.
Getum einnig afgreitt pantanir eftir þörfum hvers og eins.
Aðstoð við uppsetningu.
Leitið nánari upplýsinga.
ðLAÍUS GÍSLISON 4 co. m.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
Eigum fyrirliggjandi
YAMAHA utanborðsmótora
í stæröum £rá 4—40 hestöíl.
Útvegum allar stæróir
með 3—5 vikna fyrirvara.
BÍLABORGHF
Smiðshöföa 23, s: 6B 12 $9
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!