Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 11
fi fí
nact r/Hi s qtTntnnw/Tip [5T/nr)HOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JUNI1986
ur skipakví í bátahöfninni á ísafirði
þar sem Marzellíus Bemharðsson
Skipasmiður tók skipið í gegn.
Fækkaði möstrum og setti í dísilvél
og nýja brú á. Á árunum 1942 og
1943 var skipið, sem hlaut nafnið
Grótta, í förum fyrir bandaríska
herinn milli Reykjavíkur og Homa-
fjarðar. 1944 tekur Ragnar Jó-
hannsson við skipinu og ræður
strax Símon sem stýrimann. Voru
þeir í fiskflutningum að vetrinum,
en á síld á sumrin. Símon tók svo
við skipinu 1945 og var með það
til ársins 1947. Upp úr áramótunum
1946—1947 var ákveðið að skipta
um kjöl á Gróttunni og var samið
við skipasmíðastöðina á Neskaup-
stað að vinna verkið. Símon sigidi
skipinu austur, en flaug svo heim.
í mars er svo skipið tilbúið og Símon
flýgur ásamt áhöfninni til Reykja-
víkur, þar sem taka átti flugvélina
til Norðfj'arðar.
Með Grumman tíl
Norðfjarðar
Við urðum að bíða í þijá daga í
Reykjavík vegna veðurs, en síðan
var lagt upp í Gmmman flugbát
frá Flugfélagi íslands, segir Símon.
Það var afar gott veður og gaman
að fylgjast með landinu úr lofti.
Flugmaður var Gunnar Fredriksen,
ungur og mjög góður flugmaður.
Ég hafði ekki veitt því athygli, að
einn út skipshöfninni var eitthvað
að staupa sig og var orðinn góð-
kendur þegar við vorum komnir
austur með landinu. Hann var á
sífeldu rápi um flugvélina og olli
flugmanninum nokkru ónæði. Þeg-
ar kom að því að lækka flugið til
lendingar á Norðfirðinum kallaði
Gunnar til okkar að best væri að
loka hurðinni milli flugmannsklef-
ans og farþegarýmisins svo hann
hefði frið í lendingunni.
Þegar flugvélin snerti sjóinn, var
það mjög hart, hentist hún upp í
loftið, síðan í sjóinn aftur, upp og
á hvolf. Höggin voru svo ógurleg,
að ég hélt að hausinn myndi fljúga
af mér, þegar vélinni hvolfdi lenti
ég á sætinu fyrir framan og hálf
rotaðist. Ég rankaði þó fljótt við
mér losaði mig við sætisbeltið og
klifraði upp að hurðinni sem var
aftarlega á búknum. Lítill sjór var
í farþegaklefanum og kom það síðar
í ljós að þar bjargaði að hurðinn á
milli klefanna var lokuð. Sá sem
kenndur var hafði rotast í lending-
unni, en við hinir hjálpuðumst að
við að koma honum út úr vélinni
og út á annan væginn. Flugmaður-
inn, sem fyrst var fastur frammi í
flugmannsklefanum sem að mestu
hafði rifnað af, gat náð að losa sig
og komast út á vænginn til okkar.
í sjóinn í 14 stiga frosti
Úti var lítilsháttar undiralda, en
14 stiga frost. Þar sem við óttuð-
umst að vélin myndi sökkva köstuð-
um við okkur flestir í sjóinn. Skipa-
smiðimir sem voru á leið í mat
þegar slysið varð sáu hvað gerðist.
Þeir hrintu tveim árabátum á flot
og réru lífróður til okkar. Ég held
að enginn hafi slasast alvarlega,
þó nefbrotnaði ég. Við misstum allt
dótið okkar, en Orn Johnson fram-
kvæmdastjóri Flugfélagsins kom
mjög vel fram við okkur og borgaði
okkur allann skaðann. Við tókum
svo hluta af flugvélinni með okkur
suður, en þegar við sigldum milli
lands og Vestmannaeyja varð kola-
myrkur um miðjan dag vegna
gosmökks frá Heklu sem var þá
byijuð að gjósa. Þegar heim kom
hjálpaði Símon svo Björgvini
Bjamasyni við að útbúa bátin til
veiða við Grænland og Nýfundaland
og gerðust þar ýmis ævintýri, sem
ekki verður sagt frá að þessu sinni.
1938 hóf hann kennslu skipstjóra-
éfna og hefur haldið því áfram síðan
og er einn að. Ef til vill segjum við
frá þeim merka þætti í lífi Símonar
Helgasonar síðar.
Úlfar
DJUPSLOKUN
Fræðslumiðstöðin Friðheimar býður upp á helgarnámskeið í djúpslökun-
arkerfi EK EM þjálfunarinnar. Djúpslökunarkerfið er meðal fremstu að-
ferða til tauga- og vöðvaslökunar og byggir m.a. á tónlist sem hefur sjálf-
krafa rósemd í för með sér.
Ásetningur helgarnámskeiðsins eraÖ umbreyta hœfileika þínum til aÖ
upplifa lifiÖ þannigaö streituvaldar sem þú hefur veriö að reyna að breyta
eÖa hefurþolaÖ hverfa íframvindu lífsins sjálfs.
Leiðbeinandi: Guömundur S. Jónasson.
Tími: Heigin 13.—16. júní.
Verö: 3.600 kr. Slökunarkassetta er innifaiin.
Uppl. og skréning er í síma: (91) 671168 frá kl. 10—18.
FRIÐHEIMAR
tftyggvagata io. 101 reykjavik iceland Quintessence Institute
BILSOM COM
Þráðiaust fyrir útvarp/segulband
• Hljómlist • Tilkynningar • Menntun • Útvarp
Þetta kerfi er svokallað þriggjarása kerfi sem sendir á þrem rásum í einu, starfsmaður getur valið
um rás sjálfur óháð öðrum, þ.e.a.s. Rás 1, Rás 2 frá Ríkisútvarpinu og/eða segulbandi, einnig er
hægt að kalla inn á kerfið með hljóðnema ýmsar tilkynningar eins og ef þarf að ná til starfs-
manns í síma eða til viðtals.
Hentar t. d. fyrir verksmiöjur, fiskiskip, frystihús,
trésmiójur, vélsmiðjur, saumastofur o. fl.
Kerfið er ekki stefnuvirkt
Upplýsingar og tæknilega ráðgjöf færðu hjá
OsQa®boTi0 ML
Ármúla 34.108 Reykjavík.Simar: 91-34060-34066.