Morgunblaðið - 08.06.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNl 1986
B 23
Lúðvík P. Jónasson
aðallega að ég held vegna þess að
réttindamenn hafa ekki fengist. Svo
eru það ugglaust margir sem eru
ekki sáttir við að liggja í þessum
viðgerðum í öllum landinniverunum.
Mér skilst að það hafí verið rúmlega
20 vélstjórar á Rauðanúpi á sl.
tveimur árum og það er fullmikið.
Sá sem er 1. vélstjóri nú byijaði í
október og var 17. fyrsti vélstjórinn
á tveimur árum.
Eitthvað mun hafa verið erfítt á
tímabili að fá gert upp hjá útgerð-
inni en það hefur allt breyst til hins
betra og nú er gert upp jafnharðan
og það er gott að eiga við útgerðina.
Þeir vilja ekkert til spara að halda
í horfinu og hafa hlutina í lagi.
Líklega er um það bil helmingurinn
af áhöfninni heimamenn og menn
úr sveitinni í kring, en trillukarlar
hafa lítið viljað sinna þessu starfí
á skuttogurunum. Þeir hafa það svo
gott á grásleppunni að þeir vilja
ekki gera meira en sinna henni.
En ef maður á að lýsa þessu í
stuttu máli, þá er þetta vinna og
aftur vinna. Það er unnið, borðað
og sofíð. Eg hef tekið frekar lítið
af fríum, hef reynt að vera þó 1—2
mánuði í einu á sjónum og taka svo
eitthvað frí á milli. Maður er þá að
gera ýmislegt heima og svo er erfítt
að vera alltaf fjarri fjölskyldunni.
Jú, sjómennskan er erfíð og það
er mikið undir því komið að vel
fari um sjómenn. Hæstu tölur í
launum geta orðið háar, en þá spáir
fólkið sjaldan í alla útiveruna og
vinnuna á bak við og þá fer nú
glansinn af því, en í raun held ég
að væri sanngjamt að auka eitthvað
skattaívilnanir sjómanna.
Jú, ég hef Ient í ýmsu á sjónun,
skipströndum og fleiru. Ég var á
Hvassafellinu þegar það strandaði
í Finnlandi á leið frá Rússlandi á
sínum tíma. Við töfðumst þar í viku
meðan botninn var þéttur, fórum
til Þýzkalands og skiptum um botn
að mestu leyti. Síðan lestuðum við
áburð og 47 dögum eftir Finnlands-
strandið strandaði skipið við Flatey.
Það náðist á flot eftir að áburðurinn
hafði verið losaður í Flatey. Þannig
hefur nú ræst úr hlutunum. Ég var
á Dagstjömunni frá Keflavík þegar
við hálffylltum lestina af sjó á
Faxaflóa og skipið var alveg að
því komið að fara niður. Það var
kominn 45 gráða halli, skutrennan
á kaf og norðaustan leiðindaþræs-
ingur. En það náðist að keyra hann
á fullu upp úr þessu. Það var tekin
áhætta á að keyra hann upp og það
náðist að rétta hann af þegar hann
var kominn fyrir vind. Við urðum
að drepa á öllu. Það var allt orðið
fullt af sjó og við vomm síðan
teknir í tog til lands. Maður getur
þakkað guði fýrir að hafa lánast
að hafa haldið sér á floti í þessu.
- áj.
Greln og myndir:
Arni Johnsen
MÐ ERVIT I
REIKNIVÉLUNUM
FRÁ SHARPl
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103, SÍMI 28766
LSLANDI
FÆREYJA
OG
SKÖTLANDS
OGHEIMAFTUR CCA
FYR/R AÐE/NS KR. lO.JjU,
Flug til Færeyja er ekki aöeins ódýrt — þaö er skemmtilegt og þaö
er líka nýstárlegt því eyjarnar átján hafa ótrúlega margt að bjóða góðum
gesti.
Eftir dvöl í Færeyjum er hægt að fljúga beint þaðan til Skotlands — í
innkaup í Glasgow eða skoða heillandi fegurð skosku Hálandanna.
Aflaðu þér upplýsinga hjá næstu söluskrífstofu Flugleiða,
umboðsmanni eða ferðaskrifstofu um þennan ódýra og nýstárlega
ferðamöguleika.
FLUGLEIDIR
STRIK