Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 198G
Sjomanna-
dag’smáltíð
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Sjómannablaðið Víking
3. tölublað 1985 skrifar
Jónas heitinn Guðmunds-
son merka grein um
Hraf nistuheimilin.
þeirri grein kemur fram,
hver aðdragandi varð að stofn-
un Sjómannadagsins. Þar segir
Jónas:
„Það var árið 1936, er líða
tók að jólum, að haldinn var
stjórnarfundur í F.f.L. eða nán-
ar til tekið 14. des. árið 1935,
en meðal mála voru tilmæli frá
Ioftskeytamönnum um að kom-
ið yrði á alþjóðlegum minning-
ardegi um loftskeytamenn, sem
farist höfðu.
Hinn dugmikli félagshyggju-
maður Henry Hálfdánarson,
var þá formaður F.Í.L. og gerði
hann sér Ijóst að hér var gullið
tækifæri til að reyna að ná
samstöðu meðal sjómanna um
að þetta næði til allra íslenskra
sjómanna, er létu lif sitt við
skyldustörfin á sjónum og jafn-
framt í sambandi við það yrði
möguleiki á að efna til árlegs
sjómannadags, er sjómennirnir
sjálfir hefðu allan veg og vanda
af. I framhaldi af þessu skrifaði
Henry Hálfdánarson forystu-
grein í Firðritarann, 3. tbl.
1936, en það var fjölritað
fréttablað F.Í.L., og bar greinin
nafnið Sjómannadagur. Fyrsti
sameiginlegi fundurinn var svo
haldinn í Oddfellowhúsinu
mánudaginn 8. mars 1937 og
voru mættir fulltrúar frá 9 fé-
lögum. Var þar lagt fram upp-
kast af starfssviði sjómanna-
dagsins og fóru fram um það
fjörugar umræður. Fundar-
mönnum þótti málið það yfir-
gripsmikið að heppilegra væri
að kjósa nefnd til að fjalla um
það, er svo legði það fyrir full-
trúanefnd. Var síðan samþykkt
að kjósa einn mann frá hveiju
félagi, til að ganga frá reglu-
Forréttur
Handa 5
200 g beinlaus lúða
2 dl vatn
xh dl mysa
xh lárviðarlauf
3 piparkom
1 tsk salt
gerð fyrir starfssvið sjómanna-
dagsins og var formaður kjör-
inn Henry Hálfdánarson. Fyrsti
fundur í Fulltrúaráði sjó-
mannadagsins var svo haldinn
hinn 27. febrúar 1938_“
Síðar segir Jónas í sömu
grein að samþykkt hafi verið
að halda sjómannadaginn há-
tíðlegan 1. sunnudag í júní. En
þetta ár bar hann upp á hvíta-
sunnudag, og var samþykkt að
halda hann á annan í hvíta-
sunnu. En þá bar hann upp á
hestamannadag hestamannafé-
lagsins Fáks og var þá sam-
þykkt að ef hann bæri upp á
hvítasunnudag, skyldi halda
hann hátíðlegan annan sunnu-
dag í júní. Þetta gerist raunar
núna, þó ekki vegna þess að
hann bæri upp á hvítasunnu-
dag, heldur vegna þess að hann
bar upp á daginn eftir bæjar-
1 bikar sýrður ijómi
lmsk olíusósa (mayonnaise)
xh msk tómatsósa
1 tsk milt sinnep
5 dropar tabaskósósa
steinselja eða dill
1. Hitið vatn og mysu ásamt
lárviðarlaufí, piparkomum og
salti.
2. Þvoið lúðuna upp úr köldu
vatni, leggið síðan í löginn og sjóð-
ið við hægan hita í 10 mínútur.
Kælið.
stjórnarkosningar þessu sinni
og var því samþykkt að halda
hann annan sunnudag í júní,
eða8. júní.
Hér f nágrenninu er gamli
Stýrimannaskólinn, en tengda-
faðir minn útskrifaðist þaðan
með 1920 árganginum. Hálfri
öld síðar voru svo bamabörnin
hans þar við sitt grunnskóla-
nám, en þá hafði þetta virðu-
lega hús fengið nafnið Barna-
skóli Vesturbæjar. Þar sem sjó-
mannaefnum var áður fyrr
kennt að taka sólarhæðina og
stinga út í sjókortum, er ung-
viðið í Vesturbænum að þreifa
sig áfram við að stinga út í
korti lifsins. Líklega em dagar
þessa skóla sem grunnskóla
senn taldir, og verður fróðlegt
að fylgjast með, hvað gert
verður við skólahúsið, eftir að
þessu hlutverki þess lýkur.
3. Afþíðið rækjumar.
4. Nuddið sveppina vel með
eldhúsrúllu. Þvoið ekki. Skerið
síðan í sneiðar.
5. Skerið greipávöxtinn í
tvennt. Takið síðan aldinkjötið úr
himnunni og setjið í skál. Geymið
allan safa.
6. Skerið lúðuna í bita, setjið
síðan í smá skálar ásamt rækjum,
greipi og sveppum.
7. Blandið saman sýrðum
ijóma, olíusósu, sinnepi, tómat-
sósu, og tabaskósósu. Setjið
greipsafann saman við ef hann
er til.
8. Saxið dill eða steinselju og
setjið út f sósuna. Hellið sósunni
jafnt yfir það sem er í skálunum.
9. Skreytið með steinselju eða
dillgrein.
10. Berið kalt á borð með rist-
uðu brauði og smjöri.
Pottréttur úr
svínakjöti
IV2 kg svínakjöt, frampartur
3 stórir laukar
3 msk matarolía
3 stórar gulrætur
2 stórar grænar paprikur
1 msk smjör + 1 msk matarolía
2 tsk salt
1 tsk paprikuduft
xh dl kínversk soya
3 msk vínedik
1 lítil dós tómatmauk
1 heildós ananas í bitum
1 dl vatn
200 g ijómaostur án bragðefna
1. Skerið kjötið í litla bita,
þerrið síðan vel með eldhúspappír.
2. Hitið helming olíunnar á
pönnu þar til rýkur úr henni og
steikið helming kjötsins. Setjið
síðan í pott. Steikið hinn helming
kjötsins og setjið í pottinn.
2. Skerið gulræturnar í þunnar
sneiðar, takið steinana úr paprik-
unum og skerið f sneiðar, saxið
laukinn.
3. Hitið smjör + olíu í potti,
hafíð vægan hita. Sjóðið gulræ-
tumar laukinn og paprikumar í
smjörinu í 10 mínútur. Setjið þá
yfír kjötið.
4. Hellið safanum úr ananasdó-
sinni yfir kjötið ásamt vatni, so-
yju, ediki og tómatmauki. Setjið
salt og paprikuduft út í.
5. Setjið lok á pottinn og látið
þetta sjóða við vægan hita í 1 klst.
6. Setjið ananasbitana út í og
látið sjóða áfram í 15 mínútur.
7. Hrærið ijómaostinn út í.
8. Berið réttinn fram í pottinum
eða hellið í skál.
Meðlæti: Soðin hrísgijón og
hrásalat.
Bananar með
súkkulaði og ís
Handa 5
5 litlir bananar
1 pk suðusúkkulaði, 100 g
1 dl vatn
25 gmöndlur
lh lítri ís, sú tegund sem ykkur
hentar
1 peli ijómi
1. Hellið sjóðandi vatni á
möndlumar, látið standa í 10 mín-
útur. Afhýðið þær síðan. Skerið í
aflangar ræmur. Hitið pönnu og
ristið möndlumar á þurri pönn-
unni. Kælið.
2. Afhýðið bananana og skerið
í þykkar sneiðar.
3. Setjið súkkulaði og vatn í
pott og bræðið.
4. Þeytið ijómann.
5. Setjið banana og ís á botninn
á 5 desertskálum, hellið súkkul-
aðisósunni yfir.
6. Setjið ijómann ofan á, stráið
möndlunum yfir.
150 grækjur
100 g ferskir sveppir
Beckers
Vdrumarkaðurinn hf.
lÁrmúla 1a. Sími 91-686117.
Alíar víkur verða
fegrunarvíktir með
Beckers málníngu.