Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.09.1986, Qupperneq 1
 Islandsmótið í knattspyrnu: Framarar sigurvegarar B PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 19S6 BLAÐ t Ac U7 88' 811' -6 iiJ flU V f/ I i Guðmundur sá besti! Morgunblaöiö/Einar Falur • Guðmundur Torfason var á sunnudaginn útnefndur besti leik- maður fyrstu deildarinnar í knattspyrnu árið 1986. Það voru félagar hans í 1. deildinni sem kusu hann besta leikmanninn, en kjörið var kunngjört i lokahófi félags 1. deildar leikmanna sem haldið var á sunnudaginn. Gauti Laxdal félagi Guðmundar úr Fram, var út- nefndur efnilegasti leikmaðurinn á þessu ári við sama tækifœri. Á myndinni má sjá Guðmund fagna kjörinu og heldur hann á Flug- leiðahorninu og bikar sem heiðrinum fylgir. Sjá nánar um lok 1. deildarinnar á síðum 4B, 5B, 6B, 7B, 8B, 9B og 10B í dag. Eftir- minni- leg sigur- hátíð ÞAÐ var mikið fjör í félagsheimil- inu á Húsavík á sunnudag eftir leikinn við Selfoss og einnig um kvöldið. Strax eftir leik fjöl- menntu Húsvíkingar í húsið og þar voru lesnar upp allar kveðjur sem bárust, en þær voru fjöl- margar og víða að af landinu. Þá bárust góðar gjafir frá stuðnings- mönnum Völsunga. Um kvöldið var síðan slegið upp mikilli veislu í félagsheimilinu. Bæjarstjórn bauð liðsmönnum, eiginkonum þeirra og forráða- mönnum íþróttamála í mat og síðan var dansleikur á eftir þar sem öllum bæjarbúum var boðið að koma án endurgjalds. Leikið var fyrir dansi fram eftir nóttu og að því loknu tók við dans á götum úti fram undir morgun. Viðmælendur Morgunblaðsins á Húsavík sögð- ust aldrei hafa orðið vitni að öðru eins í bænum - sigurgleðin hefði verið hreint ótrúleg. I Einkunnagjöf Morgunblaðsins: Viðar Þorkelsson stigahæstur allra VIÐAR Þorkelsson, bakvörður I keppnistímabilið 1986. Hann Fram varð stigahæstur allra leik- hlaut að meðaltali 3.17 stig fyrir manna fyrstu deildar í einkunna- leiki sína í sumar, sem að sjálf- gjöf Morgunblaðsins fyrir | sögðu er mjög góður árangur. Félagi hans í Framliðinu, Guð- mundur Torfason varð f öðru sæti með 3.11 stig. Guðni Bergs- son, Val og Ágúst Már Jónsson, KR, urðu jafnir í þriðja til fjórða sæti með 3.00 stig. Friðrik Friðriksson, Fram, hafn- aði í fimmta sæti með 2.94 stig, Valur Valsson í því sjötta með 2.93 stig, Guðmundur Steinsson í sjö- unda með 2.88 stig að meðaltali, Óli Þór Magnússon í áttunda með afhentur í dag LIÐ Fram vann öruggan sigur i keppninni um Markabikar Morg- unblaðsins 1986. Fram skoraði langflest mörk í 1. deild í sumar, alls 39 mörk. Skagamenn komu næstir með 33 mörk og Vaismenn lentu í þriðja sæti með 31 mark. Bikarinn verður afhentur leik- mönnum Fram fyrir ieikinn gegn Katowice í dag. & Markabikar Morgunblaðsins ET nn Morgunblaðsmótið ítennis: Christian Staub sigursæll CHRISTIAN Staub sigraði í einliðaleik karla á Morgun- blaðsmótinu í tennis, sem haldið var um helgina, og Margrét Svavarsdóttir sigr- aði í einliðaleik kvenna. Á mótinu sem fram fór á nýjum glæsilegum tennisvöll- um á iþróttasvæöi Víkings í Fossvoginum kepptu 49 tenn- isleikarar í 5 flokkum. Christian Staub hefur unnið sigur í ein- liðaleik á öllum þremur Morgunblaðsmótunum í tenn- is, sem haldin hafa verið. 2.87 stig, Gauti Laxdal í níunda með 2.84 stig, og þeir Pétur Ormslev og Þorsteinn Bjarnason urðu jafnir í tíunda sæti í einkunna- gjöfinni með 2.83 stig. Sem að líkum lætur urðu Fram- arar stigahæstir í hinni óopinberu stigakeppni liðanna með 29.50 stig að meðaltali í hverjum leik. Valsmenn urðu í öðru sæti, eins og í deildarkeppninni með 28.66 stig, og Keflvíkingar í þriðja sæti með 27.22 stig að meðaltali fyrir hvern leik. Nánar verður skýrt frá niður- stöðum einkunnagjafarinnar Lokastaðan 1 1 ■ deild Fram 18 11 5 2 39:13 38 Valur 18 12 2 4 31:11 38 ÍA 18 9 3 6 33:22 30 KR 18 7 8 3 21:10 29 ÍBK 18 9 1 8 23:27 28 Þór 18 6 4 8 21:31 22 Viðir 18 5 4 9 21:26 19 FH 18 5 4 9 24:36 19 UBK 18 4 4 10 18:35 16 ÍBV 18 3 3 12 20:40 12 • Viðar Þorkefsson hefur leikið mjög vel í sumar. Hann sést hér glíma við Paul MacGrath í landsleiknum við fra á Laugardalsvellinum i vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.