Morgunblaðið - 02.10.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
Félag íslenskra iðnrekenda og Neytendasamtökin:
Kanna merkingar á
matvælum og efnavöru
FÉLAG íslenskra iðnrekenda og
Neytendasamtökin hafa ákveðið
að standa að hlutlausri úttekt á
merkingum um innihald á er-
lendum og innlendum matvælum
og efnavörum. Iðntæknistofnun
íslands mun eiga aðild að úttekt-
inni og rannsaka innihald ákeð-
inna vöruflokka. í framtíðinm
verða reglulegar mælingar 4
ákveðnum neysluvöruflokkum á
vegum stofnunarinnar.
Kannað verður hvort á boðstólum
séu matvæli og efnavara, sem upp-
fylla ekki kröfur heilbrigðisyfir-
valda um innihald um leið og borið
verður saman verð og gæði vörunn-1
ar. Brögð eru að því að upplýsingar
á umbúðum séu ófullnægjandi auk
þess sem lesmál og merkingar á
erlendum vörum eru á tungumáli
sem fáir skilja hér á landi. Bæði
félögin telja að merkingar eigi að
vera á íslensku eða skiljanlegar á
annan hátt.
Umíjöllun fjölmiðla um mismun
á verði og innihaldi vöru er stundum
byggð á vanþekkingu og misskiln-
ingi og hafa félögin ákveðið að
undirbúa fræðslunámskeið fyrir
fjölmiðlafólk um þessi mál. Fengnir
verða fyrirlesarar til að fjalla um
helstu atriði sem hafa ber í huga
ICY VODKA hefur nú verið á
markaðnum i eitt ár og er orðið
þriðja mest selda áfengistegund
á íslenska markaðnum. 185.000
þús. flöskur hafa þegar verið
pantaðar og í verslunum ATVR
einum hefur verið selt fyrir 130
milljónir króna.
Icy Vodka er framleitt af Sprota
hf. Hefur fyrirtækið hafíð útflutn-
þegar gerður er verðsamanburður
eða gæðamat á vörum.
íslensk yfírvöld gera strangar
kröfur um merkingar og umbúðir
íslensks iðnvamings á meðan dæmi
eru um að hverfandi eftirlit sé með
sambærilegri innfluttri vöru.
(Úr fréttatilkynningu)
ing í smáum stíl til verslana sem
þjóna utanríkisþjónustunni í Bret-
landi.
Erlend fagblöð í áfengisiðnaði
hafa sýnt Icy Vodka mikinn áhuga
og skrifað um það. Því hafa ýmis
erlend fyrirtæki sótt um að gerast
umboðsmenn og er nú verið að
vinna úr þeim umsóknum.
130 milljón króna sala
á Icy Vodka í ÁTVR
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT 6 hádegi í gær: Við Mýrdal er vaxandi 982 millibara lægð
á hreyfingu í austnorðaustur, en vaxandi 1017 millibara hæð yfir
Grænlandi. Lægðasvæði fyrir norðaustan land þokast í norðaust-
ur. Veður fer kólnandi.
SPÁ: Á norðaustur- og austurlandi verður fremur hvöss norðvestan-
átt. Bjartviðri verður á suður- og suðausturlandi. Slydduél vestan-,
noröan- og norðaustanlands. Hiti á bilinu 0-6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Hægviðri og skýjað um allt land, að mestu úrkomu-
laust. Hiti á bilinu 4-6 stig.
LAUGARDAGUR: Suðaustanátt verður ríkjandi, lítilsháttar rigning
sunnan- og vestanlands, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti á bil-
inu 6-9 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J0° Hrtastig:
10 gráður á Celsius
*\J Skúrir
*
V El
—. Þoka
— Þokumóða
>, ’ Súld
oo Mistur
_Skafrenningur
Þrumuveður
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 I gaer)
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hhl veður
Akurayri 2 skýjað
Reytcjavik 4 stydda
Bergen 11 súld
Helslnld 14 skýjað
Jan Mayen 5 skýjað
Kaupmannah. 14 þokumóða
Narssaraauaq -1 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað
Osló 12 þokumóða
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 29 helðskirt
Amsterdam 18 mistur
Aþena 22 skýjað
Barcelona 18 skýjað
Berifn 18 lóttskýjað
Chicago 16 aiskýjað
Glasgow 13 rignlng
Feneyjar 22 helðskfrt
Frankfurt 20 léttskýjað
Hsmborg 18 helðskfrt
Las Palmas 26 léttskýjað
London 14 mlstur
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 17 helðskfrt
Madrid 21 skýjeð
Malaga 23 skýjað
Mallorca 24 •kýjað
Miaml 26 akur
Montreal 16 skýjað
Niee 26 léttskýjað
NewVork 24 hátfskýjað
Paris 21 helðsklrt
Róm 26 helðsklrt
Vln 18 léttskýjað
Washington vsntar
Winnipeg 1 hálfskýjað
í DAG kl. 12.00:
Joðinu ofaukið
Nýlega voru götuskilti sett upp og stafsetningarvilla slæðst inn
við nokkrar götur á Selfossi. á skiltið, sem blasir þannig við
Eitthvað hefur skiltasmiðunum vegfarendum. Vætanlega verður
förlast við gerð skiltisins sem það nú lagfært fljótlega.
visar leiðina að Selfossbæjunum Sig. Jóns
Nýr framkvæmda-
stjóri Arnarflugs
STJÓRN Araarflugs hefur ráð-
ið Kristin Sigtryggsson lögg.
endurskoðanda sem fram-
kvæmdastjóra félagsins frá 1.
janúar nk. Agnar Friðriksson
mun gegna starfi fram-
kvæmdastjóra til þess tíma.
Kristinn sagði að of snemmt
væri að segja til um hvort ein-
hverra breytinga væri að vænta á
rekstri fyrjrtækisins þegar hann
tæki við. „Ég er að byrja að kynna
mér fyrirtækið og of fljótt að segja
til um það. Það kemur í ljós þegar
nær dregur að ég taki við,“ sagði
Kristinn. Þegar hann var spurður
um hvemig honum litist á þær
fréttis sem bæmst af aðgerðum
starfsmanna Amarflugs, sagði
hann: „Það era alltaf vissir hópar
í þjóðfélaginu sem era erfíðir í
samningum. Þetta er erfítt starf
að vinna en ekki uggur í mér því
stjóm félagsins er mjög góð, hæfír
stjómarmenn sem ég legg mikið
upp úr að starfa með.“
Kristinn er fæddur 2. febrúar
1944. Hann fékk löggildingu sem
endurskoðandi árið 1970, en hafði
starfað frá árinu 1963 hjá Endur-
skoðendum N. Mancher, nú
Endurskoðunarmiðstöðin hf. N.
Mancher. Frá árinu 1970 hefur
hann verið meðeigandi og fram-
Kristinn Sigtryggsson ný ráðinn
framkvæmdastjóri Araarflugs
hf.
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Krist-
inn hefur starfað mikið á vegum
löggiltra endurskoðenda, setið í
nefndum og í stjóm félagsins og
gegnt formensku í félaginu um
skeið.
„HÍ, óskabarn
eða öskubuska?“
„HÁSKÓLI íslands, óskabam
eða öskubuska?" er yfirskrift
fundar sem Bandalag háskóla-
manna gengst fyrir sunnud. 5.
okt. n.k., kl. 14.00 í Odda, hinu
nýja hugvísindahúsi HÍ.
Formaður BHM, Gunnar G.
Schram, setur fundinn en að því
loknu verða erindi þriggja fram-
sögumanna, þeirra Friðriks Páls-
sonar, forstjóra SH, Ingjalds
Hannibalssonar, forstjóra Alafoss
og Þorsteins Gylfasonar dósents.
Síðan verða pallborðsumræður
framsögumanna þar sem þeir svara
einnig fyrirspumum.
Umraeðustjóri verður Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari.
Fundur þessi er hluti af hátíða-
höldum vegna 75 afmælis HÍ og
er hann öllum opinn.