Morgunblaðið - 02.10.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
43
Urvals norskir tog- og
snurpuvírar frá ScanRoj
Júlíus Skúlason skip-
stjóri á skuttogaran-
um Hegranes frá
Sauðárkróki notaði
togvírana frá Scan-
Rope í 14 mánuði.
Tókvírana þá íland
og notar nú í grand-
ara.
Að fenginni góðri
reynslu hefur Júlíus
ákveðið að nota ein-
göngu víra frá
t ScanRope
íframtíðinni.
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855,
Vegna mikillar aðsóknar
sl. sunnudag heldur
Kanarí/Madeiraklúbburinn
annan fund á
Hótel Esju (2. hæð)
sunnudaginn 5. okt. kl. 15.00.
Kynntar verða sérstakar
Kanaríeyjaferðir ætlaðar þeim
sem eru 60 ára og eldri.
Sýnd verður sjónvarpsmynd og
litskyggnir frá Kanaríeyjum, Þórir
S. Guðbergsson flytur stutt erindi,
leikin lét tónlist og lagið tekið.
URVAL
FLUGLEIDIR
Samvinnuferdir
Landsýn hf.
UTSYN
ELDRI BORGARAR ATHUGIÐ!
Vaskir knattspyrnumenn i Grindavík tyrfa af kappi
Grasvöllur
í Grindavík
Grindavík.
í SUMAR hefur verið unnið að
knattspyrnuvelli í Grindavík.
Völlurinn er staðsettur fyrir
norðan gamla malarvöllinn og
er hugsaður sem æfingavöllur.
Fyrst um sinn verður þó keppt á
honum, eða þar til byggður verð-
ur íþróttaleikvangur. Stærð
vallarins verður 110x110 m, og
er fyrirhugað að spila á sitt
hvorri hlið til að draga úr álag-
inu á grasinu.
Kostnaðaráætlun er 2,5 milljónir
en ljóst er að kostnaður fer fram
úr áætlun.
Um helgina var fjölmennt á
svæðinu, enda verið að tyrfa. Félag-
ar úr öllum flokkum knattspymu-
deiidar ungmennafélagsins höfðu
tekið að sér í sjálfboðaliðsvinnu að
týna grjót úr moldinni og tyrfa.
Einnig mátti sjá gamla grind-
víska íþrótta- og knattspymukappa
leggja hönd á plóginn.
Formaður knattspymudeildar-
innar, Jónas Þórhallsson, sagði að
þessi grasvöllur væri knattspymu-
mönnum hjartans mál og vildu þeir
sýna áhuga sinn m.þ.a. gera þetta,
enda Grindavík eina byggðarlagið
á Suðumesjum þar sem ekki er
keppt á grasvelli.
„Þessi verkþáttur ér metinn á
800 þús., en það er vægt áætiað,
því að vinnan er geigvænlega mik-
ii. Við viljum samt leggja það á
okkur," sagði hann brosandi, „ef
það verður til að flýta fyrir að völl-
urinn komist í gagnið."
Kr. Ben.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
^ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
^ tals í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
^ kl. 10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
^ spurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
| boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
í Laugardaginn 4. október verða til viðtals Hilmar Guðlaugsson, formaður bygging-
^ arnefndar Reykjavíkur, stjórn Verkamannabústaða og Anna K. Jónsdóttir,
k formaður stjórnar Dagvistunar barna og fulltrúi í heilbrigðisráði.