Morgunblaðið - 02.10.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
53
Amnesty International:
Fangar mánaðarins — september 1986
Mannréttmdasamtökin Amnesty
Intemational vilja vekja athygli al-
mennings á máli eftirfarandi
samviskufanga í september. Jafn-
framt vonast samtökin til að fólk
sjái sef fært að skrifa bref til hjálp-
ar þessum föngum og sýna þannig
í verki andstöðu sína við að slík
mannréttindabrot eru framin. Is-
landsdeild Amnesty hefur nú einnig
hafið útgáfu póstkorta til stuðnings
föngum mánaðarins, og fást
áskriftir á skrifstofu samtakanna.
Singapore: Chia Thye Poh er
halffimmtugur fyrrverandi þing-
maður stjómarandstöðuflokksins
Barisan Sosialis. Hann sagði af sér
þingmennsku í okt. 1966, ásamt 8
flokksfélögum sínum, að sögn til
þess að mótmæla stöðugum yfir-
gangi stjómarinnar. Seinna f
mánuðinum var hann í hópi 22
manna sem handteknir voru í kjöl-
far mikilla mótmæla gegn þátttöku
Bandaríkjamanna í Víet Nam
stríðinu. Hann var settur í 2 ára
varðhald í nóv. 1966 og síðan hefur
varðhaldið verið endumýjað með 2
ára millibili á grundvelli öryggislög-
gjafar sem leyfir slíkt og hefur
hann verið í fangelsi síðan. Fullyrð-
ingar innanríkisráðherra í maí
1985, um að Chia Thye Poh væri
í kommúnistaflokki Malaysfu og
hefði starfað að því að grafa undan
stjómvöldum með skipulagningu
ólöglegra motmæla og verkfalla
hafa ekki sannast í réttarhöldum
og stjómvöld hafa í 20 ár ítrekað
reynt að fá hann til að Játa“ til
að vera látinn laus. AI telur að lang-
varandi fangelsisvist Chia Thye Poh
sé e.t.v. hugsuð sem liður í að halda
niðri pólitískum aðgerðum stjómar-
andstæðinga.
Rúmenía: Ion Bugan er fimm-
tugur rafvirki, sem var handtekinn
í marz 1983 eftir að hafa ekið
bílnum sfnum í gegnum miðja höf-
uðborgina, Búkarest, með mynd af
Nicolae Ceausescu, forseta ríkisins
og leiðtoga kommúnistaflokksins
og áletruninni: „Við viljum þig ekki,
böðull". Hann var dæmdur í 10 ára
fangelsi á grundvelli 166. greinar
rúmensku hegningarlaganna, sem
fjallar um „áróður gegn alþýðulýð-
veldinu" og getur leitt til 5-15 ára
fangelsunar. Dómurinn hefur þó
hugsanlega verið styttur um 4 ár
í almennri sakaruppgjöf í ágúst
1984 og júní 1986 og mundi þá
fangelsun hans ljúka í marz 1989.
Burundi: Antoine Manirakiza er
kaþólskur sóknarprestur frá Buj-
umbura, sem var í hópi ca. 20
manna sem handteknir voru í júlí-
ágúst 1985 eftir að öryggislögregl-
an hafði fundið opið bréf tii
biskupsins í Bujumbura, þar sem
skorað var á hann að óhlýðnast
banni við guðsþjónustum á virkum
dögum. Bréfíð, sem var 5 síður,
gagnrýndi einnig aðrar takmarkan-
ir stjómarinnar á helgihaldi, og
sagði að Burundi hefði komist und-
ir „satanísk" áhrif. Réttað var í
máli Antoine Manirakiza og 10
annarra í nóv. 1985. Hann var sak-
aður um að hafa hjálpað höfundi
bréfs sem svívirti leiðtoga Burundi.
Hann viðurkenndi að hafa dreift
eintökum af bréfinu í pósti biskups-
dæmisins, en kvaðst ókunnugur
efni þess þar sem hann hefði aðeins
lesið fyrstu síðuna. Saksóknari
staðhæfði að Manirakiza hefði
reynt að leyna nafni bréfritara í
fyrstu yfirheyrslum og hefði því
vitað að efni bréfsins væri saknæmt
og var þetta tekið gilt. Manirakiza
og 2 aðrir vora dæmdir í 2 ára
fangelsi, bréfritari til 5 ára, en sjö-
tugur prestur í 4 ára fangelsi fyrir
aðstoð við fyrsta handrit bréfsins.
Allir 5 era í hópi samvizkufanga AI.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, era
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykjavík. Þar fást nánarí upplýs-
ingar sem og heimilisföng þeirra
aðila sem skrífa skal til. Einnig er
veitt aðstoð við bréfaskriftir ef ósk-
að er.
eiriháttar
Haust-tilbod!
Nú er hægt að gera reyfarakaup á
öllum okkar hjólum.
20—30% afsláttur!
Til dæmis:
20“ BMX - Áður kr. 9.604.- Nú kr. 6.740.-
26“ kvenreiðhjól: Áður kr. 9.796.- Nú kr. 6.860.-
Komið og skoðið úrvalið.
Sérverslun Reiðhjólaverslunin
í meira en
hálfaöld
/» _ Reiðhjólaverslunin--
ORNINNL
Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888
Snöggar hitabreytingar, snjór og ís í dag,
regn og þíða á morgun eða sterkt sólskin.
„PLAGAN POPULÁR“ er framieitt til að standast
erfiöustu veðurskilyrði.
„PLAGAN POPULÁR" er meðfærilegt og
traust þak- og veggklæðningaefni úr galvaniser-
uðu stáli með veðrunarþolinni GAULE ACRYL
húð.
ro®S
BYKO
Skemmuvegi 2, Kópavogi.
Simi 41000.
Dalshraun 15, Hafnarfirði.
Sími 54411 — 52870.
RITVINNSLUKERFIÐ
WORD
Ritvinnsla er nú fastur liður í störfum á flestum skrif-
stofum. Ritvinnslukerfið WORD er eitt öflugasta og
mest notaða ritvinnslukerfiö hérlendis. Auk hefð-
bundinna ritvinnsluaðgerða býður Word m.a. upp á
samruna skjala ,,merging“, stafsetningarleiðréttingar
og fjölbreyttar útlitsgerðir sama skjals, ,,style sheet".
Tilgangurþessa námskeiðs er tvíþættur. Annars veg-
ar að þjálfa þátttakendur í notkun ritvinnslukerfisins
WORD en einnig að kenna uppsetningu skjala og
bréfa, með sérstöku tilliti til þeirra möguleika sem
Word býður uppá.
Efni:
— Helstu skipanir kerfisins
— íslenskir staðlar
— Æfingar
— Helstu skipanir stýrikerfis
Námskeiðið er ætlað öllum
notendum IBM einkatölva
eða samhæfðra véla.
Leiðbeinandi er Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari. Auk þess að hafa kennt notkun
fjölda ritvinnslukerfa hefur Ragna mikla reynslu sem
ritari.
Tími: 13.-16. október, kl. 13.30-17.30.
A
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66