Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 6

Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 6
b e MORGtWBÍ^IÐl'SÖNNtfÖÁGÚÉ^e: OltTÖÉfe'R' i§áé Rœtt við Guðlaugu Sveinbjarnar- dóttur Það var óskaplegt áfall að eignast mongólíta- bam, mesta áfall lífs míns," segir Guðlaug. Við erum sestar í sinn hvcm sófann í stofunni en frá her- bergi fyrir neðan berst málmkennt tal frá vídeótæki. Látill dökkhærður drengur með gleraugu, sem hafa runnið niður á nefið, situr fyrir framan sjónvarpið og horfír, líkt og heillaður, á teiknimyndafígúrur þeytast um skerminn. Guðlaug seg- ir mér að Jón vilji fátt fást við af eigin frumkvæði nema að horfa á vídeó. Hún fer niður til að lækka í tækinu en ég virði fyrir mér bjarta og hlýlega stofuna á meðan. Það Ieynir sér ekki að þama hafa örugg- ar hendur verið að verki. Af mótaðri smekkvísi er ýmsum góðum gripum komið fyrir, gamalt og nýtt mynda eina heild, áhrifín em nýtískulegt og fagurt heimili þar sem margt gleður augað. Ég hefði viljað hafa mann- inn minn hjá mér á þeirri stundu Guðlaug kemur aftur og við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið. „Ef svona lagað kemur eins og skellur er það meira áfall, sumir fá að aðlagast bami sinu og sætta sig smám saman við að eitthvað sé að, en slíkt er ekki hægt þegar böm fæðast eins og Nonni minn er“ held- ur Guðlaug áfram frásögn sinni. „Það komu strax í Ijós erfíðleikar með næringuna, hann var slappur og átti bágt með að sjúga. Pabbi hans er með örlítið skásett augu svo augnsvipurinn á baminu gat verið ættareinkenni, en samt var eitthvað að bijótast í mér. Á ákveðnum degi í sængurleg- unni var ég kölluð inn til læknis eins og gerist við slíkar kringum- stæður, þá fékk ég að vita að mjtt bam væri sennilega mongólíti. Eg hefði viljað hafa manninn minn hjá mér á þeirri stundu. Svo fórum við með drenginn heim og áttum að bjarga okkur. Fannst ég fá skömm í hattinn Okkur fannst við alltaf vera á skjön við þetta venjulega ungbamaeftir- lit, það var einhvem veginn ekki gert ráð fyrir okkur. Drengurinn átii erfítt með að nærast, það fór óskaplegur tími í að gefa honum, en árangurinn var lítill, mér fannst ég fá skömm í hattinn þegar hann var vigtaður. Mínir nánustu studdu mig og svo komu velmeinandi vinir sem sögðu að það væri nú svo gott á Skála- túni. Við vonuðum að hann yrði ekki svo „slæmur“ mongólíti. Mest er um vert, við þessar aðstæður, að gefast ekki upp. Það tekur óskaplega langan tíma að venjast því að eiga svona bam. Að vera með bam sem verður alltaf bam, er erfítt að lifa með. Venjuleg böm Mesta áfall I kvöldrökkrinu kasta trén við Sundlaugarveginn skugga sínum á mig þegar ég stíg út úr bílnum. I froststillunni læsi ég bílhurðinni og fyrr en varir er ég komin inn í ljósgeislann sem stafar niður frá ljósaperunni hátt uppi á gráum staurnum. Þessi stutta ganga er sem endurspeglun á lífshlaupi mannsins, þar sem skiptast á skin og skuggar. Eg er á leið inn á heimili Guðlaugar Sveinbjarnardóttur og Höskuldar Jónssonar til þess að ræða um drenginn þeirra, hann Jón, sem er tíu ára gamall en samt sem áður jafn fjarri því að geta staðið úti í hretviðrum lífsbaráttunnar og hann var þegar hann fæddist. Jón og fjöldskylda hans. F.v. Þórður, Höskuldur, Guðlaug, Jón og Sveinbjöm fara að losa sig úr tengslum við foreldrana þegar þau fara aðeins að tosast upp, fara að leika sér úti o.s.frv., en þetta bem er alltaf hjá manni, sambandið rofnar ekki, hinn eðlilegi aðskiinaður verður ekki. Nauðsynlegt á fá leíkskólapiáss Ég er sjúkraþjálfari og það var heilmikil eftirsókn eftir slíkum starfskröftum. Ég fór fljótt að taka hann með mér í vinnuna. Það er mjög mikilvægt fyrir foreldra van- gefínna bama að komast frá heimilinu. Þess vegna er nauðsyn- legt að fá leikskólapláss, ekki síður fyrir bamið. Hér heima er hann jafnbundinn okkur og hann var hér áður. Ég kom Jóni á leikskóla þeg- ar hann var á fjórða ári og þar var hann þar til hann var sjö ára. Það var indælis þroskaþjálfari, sem fylgdi honum þennan tíma. Dreng- urinn hafði gott af að vera þama, en hann var ekki með krökkunum, nema að fóstmmar tækju hann með. Hann er þannig bam, sem dregur sig inn í skel sína, hefur alltaf verið ónýtur að leika sér og þannig er hann líka heima, leikur sér ekki nema leikið sé við hann. Við áttum tvo stráka, sjö og níu ára, þegar Nonni fæddist. Þeir hafa verið mjög liðtækir að passa hann og duglegir að leika við hann. En nú em þeir orðnir fullorðnir menn og þurfa að hafa sinn tíma sjálfír. Okkar tómstundagaman verður einnig að vera hans Við fömm með Jón með okkur næstum hvert sem við fömm. Hann getur orðið gengið í allt að 10 km í einu. Okkar tómstundagaman verður einnig að vera hans. Við fömm með hann á skíði, emm með hann í bandi, en hann stendur á skíðunum. Hann er bara að verða of stór til að hægt sé að hafa þenn- an háttinn á. Nú langar okkur að eiga eina helgi í mánuði frí, koma Jóni í skammtímavistun. Þetta er þó ekki mögulegt eins og er, það em miklu meira fötluð böm sem verða að hafa forgang. Ég ætla ekki að verða gömul kona með full- orðinn mongólíta Ég get ekki hugsað mér að koma honum á sólarhringsstofnun, en þætti gott að koma honum fyrir eina helgi í mánuði, líka af því að ég veit að hann verður svona allt- af, hann þroskast svo hægt og þarf sennilega alltaf gæslu. Ég ætla þó ekki að verða gömul kona með full- orðinn mongólíta. Ég vona að hann flytji að heiman, fari á sambýli eða þess háttar, kannski þegar hann verður kominn um tvítugt. Annars er hætt við að hann standi uppi vegalaus, ef við af einhverjum ástæðum getum ekki haft hann. Þá yrði breytingin miklu meira áfall fyrir hann. Þannig hefur farið fyrir mörgum vangefnum þegar aðstand- endumir hafa misst heilsuna eða dáið. Þessi tilhugsun brennur á mörgum foreldrum, þetta öryggis- leysi gagnvart framtíðinni. Þess vegna er ég talsmaður þess að það verði lögð miklu meiri áhersla á að byggja upp sambýli, en verið hefur. Var alltaf að týnast Jón er meðfærilegur og það hefur orðið til þess að við getum auðveld- lega farið með hann í hús og haldið þannig sambandi við ættingja og vini. Félaga á hann enga, nema á Lyngási, hefur ekki tök á slíku vegna málerfíðleika og þroskaleys- is. Mál hans er mjög ófullkomið, aðeins við og þjálfari hans skiljum hann. Allt gengur mjög hægt hjá honum. Hann klæðir sig og háttar, en það þarf að ganga eftir því, hann er ógurlega latur. í skólanum eru þessar athafnir tengdar sundi eða mat. Öfugt við marga mong- ólíta er Jón þó hófsemdarmaður á mat. Eftir að hann var búinn að læra að fara í úlpu og skó, var hann alltaf að týnast. Hann fór þá út, ef hann komst, en rataði svo ekki heim. Nú ratar hann um hverf- ið og á velvilja að mæta hjá bömum og fullorðnum. Krakkamir þekkja þennan litla skrítna mann og kalla til hans: „Halló, Nonni!“. Ég leitast við að taka hann með mér það sem hægt er, einnig að hafa hann hjá mér við eldhússverkin. Hann er líka lífsmíns nýkominn í dansskóla. Það þykir honum óskaplega gaman. Þegar hann kemur heim segir hann: „Akja“, sem þýðir að dansa. Ekki eingöngn neikvæð lífssreynsla Hvað hjónabandið snertir, þá hugsa ég að sé það band ekki sterkt, losni endanlega um það við þessar að- stæður. Fólk verður að hafa mjög svipaða afstöðu til bamsins til þess að þetta geti gengið. Hjá okkur kom aldrei neitt annað til greina en að hafa drenginn okkar heima. Að eiga svona bam er lífsreynsla, sem ekki er eingöngu neikvæð, en þetta hef- ur áhrif á allt líf manns. Frá því að ég gerði mér grein fyrir hvemig þetta væri hefur sú tilfínning búið með mér að ég yrði aldrei fijáls manneskja á ný. Ég held að' það sé gott fyrir fólk, sem stendur í svipuðum sporum og við stóðum í fyrir tíu ámm, að bera saman bæk- ur sínar við þá sem eins er ástatt hjá. Það er léttir að geta talað um það sem þrúgar mann. Við hér höf- um lært að lifa við þessar kringum- stæður án allrar sjálfsvorkunnar eða beiskju. Við reynum að lifa eins eðlilegu Iífí og hægt er og mér fínnst ekki að við höfum misst af mörgu." TEXTI: GUÐRÚN GUÐLAUGS- DÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.