Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
„Bændur fá varla
svona tilboð aftur“
- segir formaður Framleiðnisjóðs
FJÓRMENNINGARNIR sem þessa dagana ferðast um landið á veg-
um Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til að kynna bændum búvöru-
samning rikis og bænda frá þvi í haust og tilboð Framleiðnisjóðs
um fjárstuðning til að hætta hefðbundnum búskap hafa víðast hvar
fengið heldur kuldalegar móttökur.
Tilboð Framleiðnisjóðs stendur
til 15. nóvember hvað varðar sauð-
fjárframleiðsluna. Jóhannes Torfa-
son formaður Framleiðnisjóðs telur
að markmið sjóðsins náist í minnk-
un mjólkurframleiðslunnar en varla
nema helmingur þess sem að er
stefnt í samdrætti sauðfjárfram-
leiðslunnar, vegna óhentugrar
tímasetningar og þess skamma
tíma sem gefst til að kynna málið
og koma því í framkvæmd. Jóhann-
es sagði meðal annars þegar leitað
var álits hans á gagnrýni bænda:
„Þessi viðbrögð koma mér ákaflega
mikið á óvart því ég tel að verið
sé að gefa landbúnaðinum verulega
gott tækifæri til að aðlagast breytt-
um aðstæðum. Öllum bændum
landsins er gert tilboð sem þeir
geta metið út frá eigin hagsmunum
og hagsmunum heildarinnar. Er
þeim tryggt ámóta eftiahagslegt
öryggi í 4—6 ár og þeir hefðu haft
af framleiðslunni, ef þeir á annað
borð hefðu fengið fullt verð fyrir
hana, sem þó engan veginn hefði
verið öruggt. Auk þess eiga menn
kost á aðstoð við nýja atvinnuupp-
byggingu. Ég tel litlar líkur á að
bændum bjóðist svona gott tilboð
aftur, og þeir sem til þess hafa
aðstæður ættu því að hugsa sig vel
um áður en þeir hafna því.
Viðbrögðin einkennast af því að
menn viðurkenna ekki þá breytingu
sem orðin er á markaðsaðstæðum
landbúnaðarins og að landbúnaður-
inn þurfí að ganga í gegn um þróun
og aðlögun eins og aðrir atvinnu-
vegir. Fyrir utan venjulega tog-
streitu á milli byggðarlaga virðist
mér að tvö atriði séu einkum gagn-
rýnd á þessum fundum: Tímasetn-
ingin og fullyrðingar um að verið
sé að leggja heilu byggðarlögin í
rúst. Ég skil vel fyrra gagniýnisat-
riðið hjá sauðíjárbændum en um
það seinna er aðeins hægt að segja
þetta: Ef ekki er hægt að stunda
sæmilega arðbæra atvinnu í þessum
byggðarlögum fara þau hvort sem
er í eyði. Það eru ekki aðgerðir
Framleiðnisjóðs sem leggja þessar
byggðir í eyði heldur frekar aðgerð-
arleysi stjómmálamanna. Samning-
ar við Framleiðnisjóð eru hins vegar
mikil sárabót fyrir þá sem frá bú-
skap þurfa að hverfa á þessum
svæðum eins og öðrum og einnig
hvatning til að takast á við ný við-
fangsefni."
IÍEÐUR
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
/ DAG kl. 12.00:
Sú aðstoð sem bændur eiga kost
á fer eftir stærð búanna og tegund.
Getur aðstoðin í einstaka tilvikum
farið upp í um 5 milljónir kr., sem
dreifíst á nokkur ár, en í flestum
tilvikum er hún þó mun lægri.
Jóhannes sagði þegar leitað var
álits hans á utandagskrárumræðum
á Alþingi á þriðjudag um aðgerðir
Framleiðnisjóðs: „Það er mjög
mikilvægt að stjómmálamenn átti
sig á því að landbúnaðurinn á ekki
að vera kyrrstöðuatvinnuvegur. Þar
á að vera þróun og aðlögun að
þeirri stefnumótun sem gildir á
hverjum tíma og fellur að þörfum
þjóðfélagsins. Sumir vilja loka aug-
unum fyrir mikilvægi hagkvæmra
rekstrareininga, en í landbúnaði er
lífsnauðsyn að hver eining veiti eft-
irsóknarverða afkomu. Að því eiga
stjómmálamenn að vinna, en ekki
að halda dauðahaldi í bændafjöld-
ann.“
Vegna þeirra ummæla Páls Pét-
urssonar í utandagskrárumræðun-
um að aðgerðimar miðuðu að því
að gera þá ríkari ríkari en þá fátæk-
ari fátækari sagði Jóhannes: „Ég
hef ekki séð þessi ummæli Páls í
heild, en ef þau eru sönn er auðs-
ætt að hann hefur annað hvort
ekki kynnt sér eða ekki skilið eðli
aðgeða Framleiðnisjóðs. En þau eru
að auðvelda bændum að hætta
hefðbundnum búskap til að hefja
annan rekstur á jörðum sínum,
stunda aðra atvinnu eða hverfa á
braut, þannig að rými þeirra sem
eftir eru þrengist ekki, en betri
nýting náist á þá fjárfestingu sem
þegar er til staðar. Þetta er mjög
mikilvægt fyrir yngri bændur sem
yfirleitt bera þyngri fjárhagsbyrð-
ar.“
Miðstjórn ASÍ:
Launamisrétti
verði leiðrétt
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð samhljóða á fundi mið-
stjórnar Alþýðusambands Ís-
lands í gær:
„Með vísan til niðurstaðna launa-
könnunar Kjararannsóknamefndar
samþykkir miðstjóm ASÍ að í kom-
andi kjarasamningum verði lögð
megináhersla á að leiðrétta það
mikla launamisrétti sem nú ríkir
milli karla og kvenna.
í því sambandi leggur miðstjóm
áherslu á að vægi bónus í launum
minnki og að tímakaup hækki. Bón-
usinn hefur á undanfömum ámm
haldið almennum launatöxtum fyrir
neðan allt velsæmi, þannig að þeir
sem ekki eiga þess kost að auka
tekjur sínar með bónusvinnu sitja
eftir. Þá leggur miðstjóm einnig
áherslu á að það mikla misrétti sem
ríkir milli landshluta verði leiðrétt."
Margir Reykvík-
ingar ökklabrotnir
ÞEGAR veturinn gengur í garð
og hálka er á götum og gang-
stéttum fjölgar beinbrotum
borgarbúa.
Á Slysadeild Borgarspitalans
fengust þær upplýsingar að mjög
mikið hefði verið að gera þar síðustu
tvær vikur. Ökklabrot væru algeng,
en ekki væri mikið um mjög slæm
brot, t.d. mjaðmargrindarbrot hjá
eldra fólki. Ekki vildu starfsmenn
þar kenna hálkunni um öll ökkla-
brotin og bentu á að nú væm
skólamir famir að starfa á fullu
og eitthvað af brotunum mætti
rekja til leikfimiiðkana og íþrótta-
iðkana ungs fólks sem hefðu látið
slíkt kyrrt liggja í sumar.
Sauðfjárafurðir:
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 200 km norðaustur af Langanesi er
970 millibara lægð sem þokast norðaustur og önnur minnkandi
980 millibara djúp á sunnanverðu Grænlandshafi.
SPÁ: Norðan kaldi eða stinningskaldi (5-6 vindstig) með éljum um
norðanvert landið en björtu veðri syðra. Hiti á bilinu -5 til 0 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Suðvestlæg átt og slydduél á vestanverðu landinu
en vestlæg átt, þurrt og víða léttskýjað, á norðaustur- og austur-
landi. Fremur kalt í veðri.
LAUGARDAGUR: Sunnan- og suðaustanátt og fremur hlýtt. Sum
staðar þurrt norðaustanlands en rigning í öðrum landshlutum.
TÁKN:
Q ► Heiðskírt
•á
q
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
á Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hHI veður
Akureyri -2 skýjaó
Reytcjavík -1 skýjaö
Bergen B skýjað
Helslnki 7 alskýjaó
Jan Mayen 4 rlgnlng
Kaupmannah. 11 skúr
Narssarssuaq -6 snjókoma
Nuuk —6 léttskýjaö
Osló 10 skýjað
Stokkhólmur 8 rigning
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 12 iéttskýjað
Aþena vantar
Barcelona 20 léttskýjað
Berifn 11 rigning
Chicago 11 skýjað
Glasgow 8 skúr
Feneyjar 15 léttskýjað
Frankfurt 11 rigning
Hamborg 11 skýjað
LasPalmas vantar
London 12 léttskýjað
LosAngeles 17 háifakýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Madríd 18 hálfskýjað
Malaga 21 heiðskírt
Mallorca vantar
Mlami 25 léttskýjað
Montreal 8 þokumóða
Nice 19 skýjað
NewYork 11 helðsklrt
París 13 hálfskýjað
Vín 8 þokumóða
Washington 9 þokumóða
Winnipeg -1 alskýjað
Fullvirðisrétti út-
hlutað á einstak-
linga í fyrsta sinn
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA, Jón Helgason, undirritaði í gær
reglugerð um fullvirðisrétt til framleiðslu sauðfjárafurða verðlagsá-
rið 1987-1988. í reglugerð þessari er í fyrsta sinn gert ráð fyrir að
fullvirðisrétti sé úthlutað á einstaklinga, en hingað til hefur aðeins
verið um að ræða fullvirðisrétt fyrir búmarkssvæðin, en þau eru
26 talsins.
Á tímabilinu 1. september 1987
til 30. ágúst 1988 fá framleiðendur
sauðfjárafurða greitt fullt verð fyr-
ir 11.800 tonn af kindakjöti með
tilsvarandi magni af slátri og gær-
um. Þó breytist sú tala í samræmi
við þau skipti, sölu eða leigu á full-
virðisrétti sem verða á tímabilinu.
Fast er haldið við þá reglu að eng-
inn fær meiri skerðingu á fullvirðis-
rétt sinn en 10%, miðað við innlegg
sitt árið 1984 eða 1985. Hver bóndi
fær upplýsingar um fullvirðisrétt
sinn fyrir 10. nóvember nk.
Á þeim svæðum þar sem fullvirð-
isréttur einstaklinga verður skertur
vegna þess að búmark svæðisins
springur, gildir sú regla um skerð-
inguna að innlegg sem svarar til
95,1-100% af sauðfjárbúmarki
skerðist að hámarki um 10%, inn-
legg sem svarar til 85,1-95%
skerðist um 7%, 75,1-85% skerðist
um 5%, 70,1-75% skerðist um 3%
og innlegg sem svarar til 65,1-70%
af sauðfjárbúmarki skerðist um 1%.
Vinnuslys
við malbikun
UNGLINGSPILTUR brotnaði
illa á fæti í vinnuslysi á
Bíldshöfða í gær.
Slysið varð um kl. 11:30. Piltur-
inn, sem er 16 ára gamall, var að
vinna við malbikunarvél á
Bfldshöfða, fyrir framan slökkvi-
stöðina sem þar er. Svo illa vildi
til malbikunarvélin fór ofan á annan
fót piltsins, sem brotnaði illa fyrir
neðan ökkla.