Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
7
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Frumflytiir nýtt verk
eftir Jón Asgeirsson
ÞRIÐJU áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða
haldnir í kvöld. Á tónleikunum frumflytur hljómsveitin nýtt
íslenskt verk, „Konsert fyrir hnéfiðlu og hljómsveit“, eftir Jón
Ásgeirsson. Einleikari á selló verður Gunnar Kvaran. Hann ieik-
ur einnig einleik í „Élégie" eftir franska tónskáldið Gabriel
Fauré. Onnur verk á efniskránni verða balletsvíta úr „Petrusjku"
eftir Igor Stravinsky og forleikur úr óperunni „Fidelio" eftir
Ludwig van Beethoven.
Jón Asgeirsson hefur um ára-
bil verið í fremstu röð íslenskra
tónskálda. Eftir hann liggur mik-
ill fjöldi tónverka, hljómsveitar-
og kammerverk, sönglög og kór-
verk. Hann hefur einnig unnið að
útsetningum á íslenskum þjóðlög-
um. Konsertinn sem frumfluttur
verður í kvöld er í þremur köflum,
Adagio, Vivace, og Allegro. Flutn-
ingur hans tekur um hálfa
klukkustund.
Tæp §ögur ár eru liðin síðan
Gunnar Kvaran lék síðast með
Sinfóníuhljómsveitinni. Gunnar
nam hjá Erling Blöndal Bengtsson
í Kaupmannahöfn, auk þess að
kenna við Konunglega tónlistar-
skólann. Hann stundaði fram-
haldsnám í Basel og París, og
hefur haldið tónleika víða á meg-
inlandinu svo og í New York.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Gunnar að hann hefði æft
konsertinn með Jóni um nokkurt
skeið. Verkið var skrifað árið
1983, en síðar lagfærði Jón það
nokkuð. „Þetta er hefðbundið
verk, samanborið við nútímatón-
list í dag,“ sagði Gunnar. „Fyrsti
kaflinn, Adagio, er ákaflega ljóð-
rænn, annar kaflinn, Vivace,
glettinn, en f síðasta kaflanum
blandast saman dramatísk spenna
og ljóðræn fegurð." Gunnar sagði
að „Éligie" væri eitt frægasta
verk sem samið hefði verið fyrir
selló. Faure fæddist árið 1845,
og lést árið 1924. Hann er talinn
eitt helsta rómantíska tónskáld
Frakka. Gunnar sagðist hafa leik-
ið verkið nokkrum sinnum með
píanóundirleik, en þetta væri í
fyrsta sinn sem hann léki það
með fullskipaðri hljómsveit.
„Þetta verður ný og skemmtileg
upplifun" sagði Gunnar Kvaran.
Hljómsveitarstjóri á tónleikun-
um verður Bandaríkjamaðurinn
Arthur Weisberg og verða þeir
hljóðritaðir fyrir Evrópusamband
útvarpsstöðva.
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Ásgeirsson, tónskáld, ásamt Gunnari Kvaran, sellóleikara.
SVS og Varðberg;
Erindi um nauðsyn NATO
FORSTÖÐUM AÐUR upplýsinga-
deildar Atlantshafsbandalagsins,
dr. Wilfried A. Hofmann er
staddur hér á Iandi. Samtök um
vestræna Samvinnu (SVS) og
Varðberg munu halda sameigin-
legan hádegisfund með honum
laugardaginn 1. nóvember.
Dr. Hofman mun flytja erindi á
ensku, sem nefnist „Nato er enn
nauðsynlegt“, og svara fyrirspum-
um fundargesta. Fundurinn verður
haldinn í Atthagasal Hótel Sögu
og hefst kl. 12.00. Fundarseta er
aðeins heimil félagsmönnum SVS
og Varðbergs, en þeir mega hafa
með sér gesti, segir í fréttatilkynn-
ingu frá skrifstofu Atlantshafs-
bandalagsins á íslandi.
Góð aðsókn að
sýningu Karólínu
GÓÐ aðsókn hefur verið að sýn-
ingu Karólínu Lárusdóttur að
Kjarvalsstöðum, og seldist mikill
meirihluti verkanna fyrstu sýn-
ingarhelgina.
Sýningin var opnuð s.l. íaugar-
dag, en Karólína sýnir 86 verk,
vatnslitamyndir, olíumálverk og
grafíkverk.
Morgunblaðið/Ól. K. Magnússon
Aðstandendur útgáfu annálsins, Hafsteinn Guðmundsson, Gisli Ólafsson og Björn Jóhannsson.
Bókaútgáfan Þjóðsaga:
Annáll ársins 1985 með ís-
lenskum sérkafla kominn út
ÚT ER kominn bókin „Árið 1985, Stórviðburði í myndum og máli
með íslenskum sérkafla". Þetta er í 21. skiptið sem þessi annáll
kemur út hér á landi. Bókaútgáfan Þjóðsaga gefur bókina út í sam-
vinnu við „Weltrundschau Verlag AG“ í Sviss. Gísli Ólafsson ritstýrir
íslensku útgáfunni, Björn Jóhannson skrifaði innlenda kafla bókar-
innar sem Hafsteinn Guðmundsson hannaði. Bókin er prentuð i Sviss.
Efnisskipan bókarinnar er með
svipuðum hætti og undanfarin ár.
Atburðir á heimsvísu eru raktir í
tímaröð, hver mánuður myndar
sérkafla sem hefst á fréttaskýringu
um helsta viðburð mánaðaríns.
Ljósmyndir eru á hverri síðu, og
einnig er á myndrænan hátt gerð
grein fyrir stöðu ýmissa mála í
heiminum. Sem dæmi má nefna
kort yfír vímuefnaframleiðslu, út-
breiðslu kjamorkuvera og skuldir
einstakra landa.
í innlenda kaflanum er stiklað á
stóru um helstu viðburði ársins í
máli og myndum. Þar segir m.a.
af fundi Norðurlandaráðs í Reykja-
vik, fyrstu konunni sem gerðist
atvinnuflugmaður á íslandi, stofn-
un einkaskóla, kvennafrídeginum
og kjöri ungfrú heims. Fjórtán ljós-
myndarar myndskreyta kaflann.
Fyrir aftan erlenda annálinn eru
yfírlitsgreinar um ýmis mál: al-
þjóðamál, efnahagsmál, tækni,
læknisfræði, myndlist, kvikmyndir,
tísku og íþróttir. Þar er fjallað um
„Stjömustríðsáætlunina" og mál-
verk Márc Chagall svo eitthvað sé
nefnt.
„Árið 1985“ kemur út á átta
tungumálum um þessar mundir:
þýsku, ensku, frönsku, íslensku,
ítölsku, spænsku, sænsku og
finnsku.
Námskeiðaáætlun
Ópusfjárhagsbókhald 3. nóv. Grunnnámskeið 27. nóv.
Ópus viðskiptamannabókhald 4. nóv. PC stýrikerfi 1 (DOS) 28. nóv.
Ópus birgðir+nótuútskrift 5. nóv. LAUN áramótauppgjör 2. des.
Ópus innflutningskerfi 6. nóv. dBaselll 3.-5. des.
Word Perfect ritv.kerfi 10.-1 l.nóv. LAUN áramótauppgjör 8. des.
S/36 stýrikerfi 12. nóv. S/36 stýrikerfi 9. des.
Grunnnámskeið 13. nóv. Word Perfectframhald 10.-1 l.des.
PC stýrikerfi 1 (DOS) 14. nóv. Wordframhald 12. des.
Lotus 123 17.-19. nóv. Grunnnámskeið 16. des.
S/36IBM fjárhagsbókhald 21. nóv. PC-stýrikerfi 1 (DOS) 17.des.
S/36 Frum vskm./afgr.kerfi 25.-26. nóv. PC stýrikerfi 2 18.des.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði okkar á Nýbýlavegi 16, Kópavogi.
Kennt er 6 klst. á dag, frá 9 til 12 og 13 til 16. Þátttakendum
er boðinn hádegisverður í mötuneyti okkar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar
í síma 641222 rx i_ igísli j. johnsen