Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 16
16r
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
moigna
.... hei/sunnar vegna
Leiðtogar
í sviðsljósi
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777
eftir Garðar
Alfonsson
Að afloknum leiðtogafundi er ekki
úr vegi að líta örlítið til þeirra manna
sem birtust okkur í íjölmiðlum, Qöl-
miðlar geta að vísu blekkt okkur hér
uppi á fslandi eins og þeir bleklcja
hundruð milljóna manna annars stað-
ar, þó mun því miður hvergi vera
eins mikið fjölmiðlafár og í Banda-
ríkjunum þar sem milljónir virðast
gleypa við ásjónu forseta síns þrátt
fyrir að þeir séu honum ósammála í
flestu því sem gert er. Við vitum að
vísu ekki hvemig þessu er varið í
Rússlandi, vonandi kemur að því að
skoðanakannanir verði leyfðar í því
ríki eins og öðrum. Við þíðum eftir
því. En hver er þá munurinn á þess-
um leiðtogum, er hann í raun enginn
eða er hann mikill, hverjar em að-
staeður þeirra og hvaða áhrif hafði
útkoman á Reykjavíkurfundinum á
hvorn þeirra fyrir sig?
Ég lít ekki svo á að ég sé óbrigð-
ull sérfræðingur í þessum málum,
en hef þó ekkert á móti því að láta
mínar skoðanir í ljósi.
A hvorum á ég þá að byija, slíkt
er vandaverk, svo ég kastaði upp
peningi og upp kom hlutur Reagans,
nú má ekki taka það sem fyrirboða
Núerbaraadglímavið
eigin sköpunargáfu því
TOYOTA-SAUMAVÉLIN SÉR UM FRAMKVÆMDINA
—
gpf \ -
TOYOTA 8900 er með 25 sporum sem gefa þér allar auðveldustu leiðirn-
ar til frábærs saumaskaps.
Þú snertir barahnappinn og velur sporið sem þú vilt.
SOLUUMBOÐ
VIÐ ERUM EINU SPORI Á UNDAN TÍMANUM:
V ARAHLUT AUMBOÐIÐ
Hann er, eins og margir Amerík-
anar, í hærra lagi, þó fínnst mér
hann lægri en hann var, það er ef
til vill vegna þess að hann er nú
farinn töluvert að eldast, rúmlega
sjötugur. Viðarhöggið virðist þó gera
honum gott. í nokkur ár hefiir mér
fundist þetta vera yngri maður, sér-
staklega þegar ég heyrði röddina sem
hann beitti á Margréti Thateher áður
en hann réðist á Lábýu.
Eitt af því sem maður verður var
við þegar maður ígrundar Banda-
ríkjaforseta er hversu erfítt hann
virðist eiga með að svara spumingum
sem koma honum á óvart, það er
þá ef til vill ellin sem þar kemur til,
eitthvað er að. Það gengur ekki á
öðru nú en því að sannfæra heiminn
um hversu Reagan hafí staðið sig
vel á Reykjavíkurfundinum og hversu
harður hann hafi verið, hann hafði
meira að segja bölvað í bílnum sagði
ýmislegt ljótt, sem bendir til þess að
maðurinn sé í toppformi og ekki ljúf-
ur, sem sé ímynd hins harða manns.
Maður kemst ekki hjá að halda
að hann sé ekki eins harður og af
er látið.
Snúum okkur þá að Gorbachev.
Hann er um það bil meðalmaðurá
hæð, frekar þéttur. Þetta hjálpar
honum örugglega, hann vekur ekki
sérstaka athygli vegna vaxtar. Hann
minnir á íslenskan skipstjóra eða
flugstjóra. Gorbachev er yngsti leið-
togi Ráðstjómarríkjanna frá því að
Stalín heitinn var upp á sitt besta,
það gerir hann að sjáífsögðu athyglis-
verðan. Hann er óragur við að standa
í orðasennum og svara ýmsu sem
að honum er beint.
Mér fínnst þó að undir yfirborðinu
leynist mikið skap og töluverð óþolin-
Garðar Alfonsson
mæði. I þeirri stöðu sem hann er í
í dag er það örugglega ókostur.
Undir óþolinmæðina gæti verið ýtt
af konu hans.
Mér finnst staða flokksritarans sé
bæði hlaðin styrk og veikleika. Hvert
verður þá framhaldið fyrir þessa
menn eftir Reykjavíkurfundinn? Báð-
ir leiðtogamir hafa í kringum sig
ýmsa menn, sérfræðinga í hinu og
þessu, á öllum aldri, allskonar per-
sónuleikar. Einhvem veginn hefur
ásjóna þessara manna breyst. í stað-
inn fyrir harðsvíraða byssumenn og
aðra slíka em komnir tölvufræðingar
og sérfræðingar á þeim sviðum, þetta
er meira áberandi hjá Ameríkönum.
Ásjóna Reagans er föst í sessi og
henni verður haldið uppi eins lengi
og hægt er. Staða Grobachevs er
óömggari vegna þess að hann er að
beijast við þungt og erfítt kerfi og
ennþá verra er að það er hann að
gera á tímum þar sem allt stendur
í jámum. Ef honum tekst að lifa
þetta af hafa Sovétmenn eignast leið-
toga sem vert er að tala um.
Þær hugleiðingar sem hér hafa
verið settar fram segja að sjálfsögðu
ekki mikið, þær hafa þó orðið til
þess að vekja hjá mér þá einkenni-
legu tilfínningu að einhvers staðar
að baki leiðtoganna séu sömu menn.
Höfundur er rennismiður.
Reykjavíkurlj óð
afhent öldruðum
ÁRMÚLA 23 SÍMAR 685870-681733
sra
KLAPPARSTÍG 31 SÍMI 14974
ÚT ER komin ljóðabókin
„Reykjavíkurljóð“, sem Heim-
dallur, félag ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík, gefur út í
tilefni 200 ára _ afmælis
Reykjavíkurborgar. í bókinni
eru 27 Ijóð eftir 20 höfunda, sem
allflestir eru ungir að árum.
Meirihluti ljóðanna tengist höf-
uðborginni á einn eða annan
hátt og var það upphafleg ætlun
ritnefndar að í bókinni kæmi
fram borgarandinn og tilfinning-
ar ungra Reykvíkinga til borgar-
innar, segir í frétt frá Heimdalli.
Ljóðabókin er tileinkuð öldmðum
í Reykjavík og er henni dreift á öll
elliheimili í borginni. Mánudaginn
27. október tók Þórður Kristleifs-
son, 92 ára gamall vistmaður á
Droplaugarstöðum, við eintaki af
bókinni fyrir hönd elstu kynslóðar-
innar í Reykjavík. Meðfylgjandi
mynd er tekin er fulltrúar Heimdall-
ar, þau Halldóra Vífílsdóttir og
Ólafur Þ. Stephensen, afhentu
Þórði bókina.
Þeir, sem eiga ljóð í bókinni, em
eftirtaldir: Bjamey Kristín Ólafs-
dóttir, Dagný H. Lilliendahl, Edith
Randy, Gerður Kristný Guðjóns-
dóttir, Guðmundína Ó. Magnús-
dóttir, Guðrún Jenný Jónsdóttir,
Hjördís Sigurðardóttir, Hrafnkell
Óskarsson, Jóhann Valdimarsson,
Kristinn Gíslason, Láms Jón Guð-
mundsson, Ólafur Þ. Stephensen,
Ólöf Ásgeirsdóttir, Ómar Gíslason,
Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Ragn-
hildur Ófeigsdóttir, Sigríður Hall-
dórsdóttir, Sólveig Bima Daníels-
dóttir, Stefán Snævarr og Tryggvi
V. Líndal.
Bókin fæst í bókaverslunum
Sigfúsar Eymundssonar og Lámsar
Blöndal.