Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 17

Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 17 Kynferðislegir síbrotamenn eftirLúðvíg Lárusson Blaðagrein Svölu Thorlacius í Morgunblaðinu þ. 26. september síðastliðinn endurspeglar alvarlegt ástand í réttarfarsmálum á íslandi. Ég vil því nefna þijú atriði þessu viðvíkjandi. Kynhneigð — ofbeldishneigð Kjmvilla eða homofíl-kynhneigð þarf alls ekki að hafa í för með sér tortímandi árásarhneigð. Svo virðist sem kynferðisleg ofbeldishneigð hvort heldur er homofíl eða heterofíl hafí til skamms tíma skammt verið álitin upprunalega kynferðislegt fyr- irbæri, þ.e. óeðlileg kynfýsn og ekki hrein ofbeldisaðgerð sem er ffam- kvæmd innan ramma kynhegðunar. Það er miður. Forsendur ofbeldisað- gerða geta verið í eðli sínum af ýmsum toga spunnar en það sem gæti einkennt kynferðislega síbrota- menn er að forsendumar séu sjaldn- ast fyllilega meðvitaðar en oft ómeðvitaðar djúpsálarlegar togstreit- ur. Það sem kann að hafa villt mönnum sýn er að brenglun í kyn- ferðislegri hegðun, sem hluti af persónuleikabresti, getur verið ein- skorðuð við það atriði og þarf ekki að trufla daglega virkni eða venjuleg samskipti. Hins vegar geta vissar aðstæður og tilfinningalegt álag, sem viðkom- andi getur ekki stýrt meðvitað, orðið til þess að hann úthverfí andlegar togstreitur sínar og yfírfæri forsend- ur þjáningar og niðurlægingar á fómarlambið. Hér er um hreina and- lega og líkamlega ofbeldisaðgerð að ræða en ekki aðeins ólögleg kynmök við drengi undir lögaldri. Ætti það að hafa afgerandi þýðingu fyrir ákvörðun um sakhæfni og auðvelda úrlausn í refsiaðgerðum eða öllu held- ur sálrænni meðferð sem afleiðingu brotsins. Hér vaknar spumingin hvort dómar í afbrotamálum ráðist því af þeirri raunvemlegu húsnæðis- aðstöðu og meðferðarmöguleikum sem heilbrigðiskerfí býður upp á, en ekki af þeim eðlilegu þörfum sem kunna að liggja að baki varanlegri lausn í hveiju afbrotamáli. Með því að gefa hinni djúpsálar- legu ofbeldisforsendu næmari gaum hafa sænskir sálfræðingar skilið bet- ur hvers vegna skyndileg spegilmynd af eigin sjálfseyðingarhvöt yfírfærist á fómarlambið er hún brýst fram í tilfínningalegu uppnámi undir nauðg- un. Dæmigerð lýsing á aðdraganda er að allt var í besta gengi þangað til ofbeldishneigðin úthverfðist skyndilega og fómarlambið fangað í gildru. Astæða er því til að yfirvega hvort umræddar nauðganir N.N. séu ekki dæmi um tímabundna og endur- tekna sjúklega ofbeldishneigð sem eðlilega bitnar aðeins á minni máttar. Kynferðislegir síbrotamenn? Í framhaldi af þessu mætti spyrja hvort ekki sé tímabært að tryggja að hugtakið „kynferðislegur síbrota- maður" sé aðeins hugtak sem samfélagið tryggir að fyrirfinnist ekki í reynd? Það er að sjálfsögðu hægara sagt en gert en þó ekki óyfirstíganlegt og hægt er að nálg- ast markmiðið mun betur. Þetta er ekki síður spumingin um fé sem er af skomum skammti þar sem útgjöld eru vís en ávinningur til þessa greini- lega talinn óvís. Væri ekki snjallt að gera þetta eitt af máleftium kosningabaráttunn- ar til Alþingis næsta kjörtímabil? Það ætti að vera göfugt verkefni fyrir væntanlega frambjóðendur að „Því er mikilvægt að fagleg aðstoð bjóðist sem fyrst og foreldrum hjálpað við að hjálpa bami sínu, þar sem tengslin eru nánust og þörfin mest.“ spreyta sig á svo lqosendur geti dæmt. Hagsmunir fómarlamba Nú á tímum hefur reynslan sýnt að þiýstihópar ná ýmsum gagn- merkum kröfum fram séu þær skipulega rökstuddar. Hér skortir greinilega á að mynda sérstök hags- munasamtök fómarlamba og að- standenda þeirra, þar sem þau standa áberandi höllum fæti og fyrir utan áhrifasvið réttarfarsmála. Slík hags- munasamtök geta að minnsta kosti þjónað tveimur hlutverkum, að mynda stoðhópa þeirra sem orðið hafa fyrir svipuðu ofbeldi og skipzt á reynslu. Eyða þau þar með þeirri bannhelgi sem legið hefur yfír reynslu af ofbeldi, kynferðislegu sem og öðru. Þau geta líka gefíð aðilum möguleika á að koma á framfæri uppbyggjandi gagmýni og reynslu í gegnum talsmenn sína. Við það geta þau gefið biturri reynslu sinni já- kvæðan tilgang og mikilvægar upplýsingar til þeirra sem kljást fag- lega við vandann. Það er ekki veigalítið. Hvað líður annars bömunum sem verða fyrir þessum líkamlegu of- beldisaðgerðum? Viðbrögðin em háð þroskastigi þeirra og getu til að skilja hversu alvarlegu samskiptagmnd- völlurinn er umfram líkamlegan sársauka og þá óftjálsu þvingun sem þau verða fyrir. Smábam bendir að- eins á hvar „meiddið" sé en hægt er að nota leikföng til að auðvelda því að tjá sig um atburðinn. Eldri böm og unglingar skilja nokkuð vel þá svívirðingu sem þau verða fyrir. Á þessum ámm þróast og hendir svo margt vitsmunalega og líkamlega, sem bömin eiga fullt í fangi með að ráða fram úr, dæmigert upp á eigin spýtur, að þörf aðstoðar er bráðnauð- synleg verði þau fyrir ofbeldisaðgerð- um. Það skyndilega áfall sem bam verður fyrir í þessu samhengi veldur aðlögunarviðbrögðum, sem taka á sig ýmsar myndir, en hafa að hluta til samnefnara með viðbrögðum fullorð- inna sem má skipta í 2—3 þrep. Við verknaðinn fellur bamið í einskonar andlegan og líkamlegan dvala, sem orsakast af því tilfínningalega áfalli sem það verður fyrir og bamið kann jafnvel að neita atvikinu. Þetta ástand getur varað frá nokkrum klukkustundum til um það bil viku- tíma. Á meðan á þessu stendur getur bamið óttast, fyllst hryllingi, fyrirlitn- ingu, niðurlægingu, áhrifaleysi og verið næmt fyrir álagi, þ.e. sýnt ýmis tilfinningaleg viðbrögð sem gefa vanlíðan til kynna. Á þessum knappa tíma er mikilvægt að foreldrar eða aðstandendur uppgötvi atvikið og leiti aðstoðar. Að þessum tíma liðnum hefur bamið glímt það mikið við atburðinn með sífelldum uppri^unum og mar- tröðum, skulum við segja, pakkað atvikinu það vel inn, að bamið getur betur beint athygli sinni að öðmm daglegum verkefnum. Samt sem áð- ur skjóta endurminningamar upp kollinum, sem bamið reynir að halda í ske§um með skipulegum vamar- háttum, því hið tilfinningalega álag sem fylgir er truflandi. Er það eins konar aðlögum við ytri aðstæðum. Það er framar öllu mikilvægt að hvetja bamið til að láta tilfínningar sínar í ljósi með samtali, leikjum og teikningum og öðmm tiltækum ráð- um. Hafa ber í huga, að minning og lýsing bams af atburðinum getur breyzt með tímanum sem liðið hefur — bamið er að melta það sem gerzt hefur. Hér er líka mikilvægt að bam- inu sé bent á ábyrgðarleysi afbrota- mannsins við verknaðinn og það hjálpar því að réttlæta atburðinn. Þriðja þrepið einkennist af sam- hæfíngu á persónulegri reynslu, sem tengist þessari nýju stöðu, þ.e. að vera næmur fyrir öllu sem minnir á þau atriði sem líktust þeim sem gerð- ust er verknaðurinn var framinn eða rétt áður. Þunglyndi er hinn eðlilegi fylgifiskur ef ekkert er að gert. Líkamlegir sjúkdómar og fruflanir svo sem lystarleysi, magaverkir, svefntruflanir, undirmiga og óróleiki geta komið sem afleiðing af hinu andlega ójafnvægi. Hræðsla við fólk, að fara að heiman, vera ein(n), að forðast vini og skóla getur líka hent. Ofbeldisatburðurinn hefur þó ekki aðeins djúpstæð áhrif á fómarlambið heldur einnig á foreldra. Sektarkennd getur eðlilega gert vart við sig ef foreldrum finnst þau ekki hafa gert nægilegar varúðarráðstafanir, þó slíkt sé nær óframkvæmanlegt. Hefnigimi er þar af leiðandi algeng viðbrögð eins og Svala nefndi og ofur eðlileg. Þó bera foreldrar að forðast sterk tilfinningaleg viðbrögð á þennan hátt að baminu áheyrandi. Getur það valdið baminu enn meiri vandkvæðum en orðið er og lengt aðlögunarferil þess að þola stígandi í ofbeldisatvikinu. Onnur viðbrögð foreldra, sem eiga sér eðlilega skýr- ingar, eru að ofvemda bamið með ýmsum hætti svo sem að halda því enn meira innan dyra og frá félags- legum tengslum sem gerir bamið enn tortryggnara. Batalíkur eru tiltölu- lega góðar en tilfinningalegar trafl- anir og önnur vandkvæði era eðlilega afleiðingar meðan á aðlögunartíma stendur. Því er mikilvægt að fagieg aðstoð bjóðist sem fyrst og foreldram hjálpað við að hjálpa bami sínu, þar sem tengslin era nánust og þörfin mest. Höfundur er cand. psych. og starf- ar sem sálfræðinguri Solrod kommime í Danmörku. FJARSKIPTIMEÐ TÖLVUM Á seinustu tveimur árum hefur orðið gerbylting á sviði gagnaflutninga og tölvufjarskipta I Evrópu. Við íslendingar erum nú orðnir þátttakendur í þessari byltingu meö tilkomu gagnanets Pósts og slma og opnun þess fyrir tölvufjarskipti til útlanda. í byrjun sumars opnaöist okkur allt I einu auö- veldur og ódýr aógangur að upplýsingaveitum, gagnabönkum, pósthólfum, telexþjónustum, tölvu- ráóstefnum og þingum út um vlða veröld. Innlendir gagnabankar og tölvuþing eru einnig I hraðri upp- byggingu. Stjórnunarfélagið hefur af þessu tilefni ákveðið að efna til námskeiðs um Fjarskipti með tölvum þar sem sýnd veröur tenging viö marga innlenda og erlenda upplýsingamiðla. Einnig verða sýndir kostnaöarútreikningar við uppsetningu og rekstur sllkra tenginga um gagnanet Pósts og slma og talslmanetiö. Efni námskeiðsins: Hvað er gagnanet? — mótald? — samskiptaforrit? — Tenging einmenningstölva við gagnanetið. Uppiýsingaveitur (videotex) — Prestel — gagna- bankar — Dialog — DataStar — SKÝRR — telex- þjónusta — pósthólf — EasyLink — Telcom Gold — Tölvuráóstefnur (Computer Conferensing) — The Source — QZ — Tölvuþing (Bulletin Boards) — Háskóli íslands — RBBS — frétta-, auglýsinga- og upplýsingamiölar — CompuServe Kostnaðarútreikningar við upp- setningu og rekstur tengingar um gagnanet og talslmanet. Notkun gagnabanka og ann- arra upplýsingamiölatil öflunar upplýsinga I viðskiptalegum til- gangi. (Umboð fyrir vörur, fram- leiösluleyfi, tilboð um samstarf o. fl.). Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Reynir Huga- son rafeindaverkfræðingur, ráögjafi hjá Skýrsluvél- um rlkisins og Reykjavíkurborgar. Tími og staður 10.—11. nóvember, kl. 08.30—12.30. Stjórnunarfélag islands Ananaustum 15 • Simi: 6210 66 IBM System/36 QUERY/36 Query/36 er gagnasafnskerfi hannaö fyrir tölvur af geröinni IBM System/36. Meö Query getur notandi unnið með sín gagna- söfn sjálfur án aöstoöar kerfisfræðinga. Notandinn getur bæöi búið til fyrirspurnir, eöa útbúiö prentlista og jafnvel breytt skrám peim sem geymdar eru á diskum tölvunnar. Markmið: Tilgangur þessa námskeiðs er aö kenna notkun Query/36 þannig aö þátt- takendur geti aö námskeiöi loknu unniö hvers konar fyrirspurnir á skrám þeim sem þeir hafa aðgang aö. Efni: - Skráakerfi S/36 - Uppbygging skráa - Grundvallaratriði Query/36 - Skipanir í Query - Tengsl viö IDDU - Fyrirspurnir - Útprentun - Uppfærsla á skrám Leiðb.: Ftagna Sigurðard. Guðjohnsen Þátttakendur: Námskeiðiö er ætlaö notendum Syst- em/36 sem áhuga hafa á aö kynnast og notfæra sér þaö mikla hagræði sem notkun gagnasafnskerfa hefur í för með sér. Tími: 10.—12. nóvember, kl. 13.30—17.30. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.