Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Fjall- Hver þátttakandi hefur litla tölu til að færa á milli reit- anna. Það þarf líka að nota tening. Hafíð tölumar við ör- ina. Kastið síðan teningnum eftir röð en tölumar má aðeins flytja þegar teningurinn sýnir sama íjölda og reitimir á spil- inu. Þannig að fyrst má flytja þegar teningurinn sýnir 1, næst þegar hann sýnir 2 o.s. frv. Hver verður fyrstur á toppinn? Það getur tekið sinn tíma að komast á toppinn jafn- vel þó það séu aðeins sex reitir í spilinu, en Qallganga getur verið erfíð, ekki satt? A leið í skólann Já, skólinn er töngu byrjað- ur. Nú er líka kominn vetur, þar sem fyrsti vetrardagur var í lok síðustu viku. Gunnhildur og Guðjón eru systkin og fara oftast samferöa í skólann. Áður en skólinn byrj- aði fóru þau í könnunarferð um hverfið með mömmu sinni. Hvar var bestur að fara yfir götur, hvaða leið var öruggust? I sam- einingu fundu þau út leiðina sem best var að fara í skólann. Þau höfðu nokkur atriði í huga við val á gönguleiö í skólann: 1. Forðast miklar umferðar- götur. 2. Fara yfir götur á gang- brautum. 3. Nota umferðar og göngu- Ijós þar sem þau eru. Þau Guðjón og Gunnhildur reyna að fara snemma á fætur því þau eru fyrir hádegi í skólan- um. Stundum eru þau sein og þá gleyma þau frekar að fara varlega og gleyma jafnvel að líta til beggja hliða þegar þau fara yfir götur! Fitt er það þó sem Guðjón gleymir ekki þegar hann fer í skólann. Hann gleymir aldrei nestinu sínu! Guðjón er mikill matmaður og vill alltaf stjórna því sjálfur hvað hann hefur í nesti. Seinna ætlum við að líta í nestisboxið hans og sjá hvað þar er að finna. Þar er áreiðan- lega eitthvað sniðugt og gott. Eitt er það sem Guðjóni og Gunnhildi leiðist mjög. Það er þetta með hjólin. Hjólin eiga að vera niðri í geymslu á veturna! Það er erfitt að sætta sig við að geta ekki notaö hjólin yfir veturinn. Smám saman hafa þau þó sætt sig við þetta. Um leiö og hjólin eru sett niður í kjallara eru tekin upp endurskinsmerkin (þó voru þau ekkj geymd niðri í kjallaral). Á hverjum vetri fá þau ný endurskinsmerki svo nú eiga Brosum Margir krakkar senda bama- síðunni brandara. Hér eru tveir sem Ema Björg á Húsavík sendi um daginn. Hún vill gjama kenna þessa brandara við Kópavogsbúa. Gunnar litli, sjö ára Kópavogs- búi, kom hlaupandi inn í stofu og spurði pabba sinn. — Pabbi! Eignast kýr böm? — Ha, ööö, ja, jú, að sjálfsögðu gera þær það. — Eg hélt það líka, sagði Gunnar — það var einhver að segja að þær eignuðust kálfa. Móðir í Kópavogi átti þessi viltu orðaskipti við dóttur sína: — Mamma. Hvers vegna ekki leika við mig? — Vegna þess að ég hef ekki tíma til þess. — Hvers vegna hefurðu ekki tíma til þess? — Af því að ég þarf að vinna. — Til hvers þarftu að vinna? — Til þess að eignast peninga. — Til hvers þarftu peninga? — Til þess að kaupa mat handa þér, elskan. Þögn. — En ég er ekki svöng. Þakka þér fyrir bréfið og send- inguna Ema Björg. þau endurskinsmerki á allar ut- anyfirflíkur. Það er annars bara gaman að vera byrjuð í skólanum. Brátt er von á nógum snjó til að búa til snjókarla og snjóhús. Guðjón og Gunnhildur eru svo heppin að við hliðina á heimili þeirra er stórt opið svæði sem er gott leiksvæði. Krakkarnir í hverfinu fara þangað gjarna á vetrum og byggja heilt snjóhúsaþorp. Einu sinni höfðu þau mikla veislu í þorpinu sínu og buðu foreldrum sínum og vinum að koma og taka þátt í hátíðinni. Já, þeirra kynslóð bíður spennt eftir snjónum. Fullorðna fólkið ætti að hætta að kvarta yfir snjónum og klæða sig al- mennilega í kuldabuxur og stígvél og allt sem við á í slíku veðri, það ættu bara að vita hvað snjórinn getur verið skemmtilegur. MYNDAGÁTAN15 Myndagáta 14 hafði að geyma nagla á hvolfi. Rétt svar hafði m.a. Friðrik Þór Erlingsson úr Breiðholtinu. Allir sem sendu inn svör höfðu þau rétt. Hérer ný myndagáta. Vittu hvort þú sérð ekki hvað er á myndinni. Það er gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að senda bréf. Um leið og þið sendið svörin mættuð þig segja álit ykkar á Bamasíðunni og hvað þið viljið hafa á henni. Heimilisfangið er: Barnasíðan Morgunblaðinu Aðalstræti 6 101 Reykjavík Hallgríms- vers Það hefur ekki farið framhjá neinum að Hallgrímskirkja var tek- in í notkun og vígð á sunnudaginn var. Margir krakkar kunna bæna- vers sem sr. Hallgrímur Pétursson hefur samið. Ég læt hér fljóta með eitt morgunvers og eitt kvöldvers sem flestir krakkar kunna. Ef þú kannt þau ekki getur þú lært þau: Morgunbæn: Verkin mín, Drottinn, þóknist þér þau láttu allvel takast mér, ávaxtasöm sé iðjan min, yfír mér hvíli blessun þín. Kvöldbæn Legg ég nú bæði líf og önd, Ijúfí Jesús, í þina hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfír mér.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.