Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 23

Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 23 • • Oryggisfræðslan eftirRósu Magnúsdóttur Hvers virði er líf sjómanna? Hvað er að gerast? Hvers vegna segir eng- inn eitt orð? Eins og við vitum hefur flárlagafrumvarpið 1986 nú séð dagsins ljós með bauki og bramli að vanda. Er þar ýmislegt furðulegt en þó er það skrítnast af öllu undar- legu, að ekki er einni krónu, einum eyri, veitt til öryggisfraeðslu sjó- manna. Vitið þið þingmenn ekki, hveijir það eru sem halda þessu landi uppi og m.a. borga sultarlaunin ykkar? Við, almenningur í þessu landi, sjálf- boðaliðar í Slysavamafélagi íslands og margir fleiri, erum að berjast við að skapa aðstæður til að öiyggis- fræðsla sjómanna okkar verði að fostum lið í námi þeirra. Fræðsla, sem við trúum að geti komið í veg fyrir slys og jafnvel bjargað lífum. En hvað skeður? Síðasta ár fékkst ijár- veiting til öryggisfræðslu sjómanna. Slysavamafélagi íslands nánast gefið varðskipið Þór, hafin almenn flár- söfnun til að koma Þór í það lag að hægt væri að hefja þar öryggis- fræðslu, mikið sjálfboðaliðastarf unnið. Námskeið hafa verið haldin, ætíð fullsetin, mikill áhugi og bjart framundan. Hvað skeður þá? Engin íjárveiting, enginn öryggisskóli. Sjómannslífið fótum troðið og lítilsvirt, starf og strit félaga í SVFI og margra ann- arra hunsað. Loksins, þegar sjá mátti fram á betri tíma og bjartari vonir um að það slysastríð sem ríkir á hafinu hér við landið okkar, færi að linna. Sjálf- sagt er niðuiröðun 5árve't'nfta vandasöm, sum mál hafa forgang, eru meira virði en önnur. Trúlega finnst öllum sitt mál meira virði en önnur. En er ekki öryggismál sjó- manna forgangsmál allra sem þetta land byggja? Við getum litið á þetta frá því sjón- arhomi að við séum í stríði við Ægi konung. Við höfum farið halloka fyr- ir honum í margar aldir og er nú kominn tími til að snúa vöm í sókn. Oft em það okkar hraustustu menn sem láta lífið eða tapa heilsu í þessu stríði. Sé grannt skoðað og allri við- kvæmni sleppt, má oftar en ekki kenna um reynslu og þekkingarleysi þeirra sem í vandanum lenda. Þetta sjáum við ef við gluggum í skýrslur Rannsóknamefndar sjóslysa. Og em oft ekki öll kurl komin til grafar þar. Illa er hægt að kenna um lélegum farkostum, því vart er nokkurt land með betri skip en við íslendingar. Þá er það kunnáttuleysi. Þar kemur enn að öryggisfræðslu sjómanna. Ekki ætti að ráða mann á bát eða skip sem ekki hefur hlotið slíka Rósa Magnúsdóttir „Trúlega finnst öllum sitt mál meira virði en önnur. En eru ekki ör- yggismál sjómanna forgangsmál allra sem þetta land byggja?“ fræðslu, á löggjafinn að koma til og gera slíkt nám að skilyrði til lög- skráningar á skip og báta Það er' framtíðin, það er draumurinn sem við héldum okkur sjá hilla undir og vera að verða að vemleika með ör- yggisfræðslu sjómanna um borð í gamla Þór, nú Sæbjörgu. Þessu skipi sem með nægu íjármagni og stuðn- ingi er ætlað að sigla á hafnir hér á Islandi og halda uppi kennslu í öiygg- ismálum fyrir verandi og verðandi sjómenn okkar. íslenskir sjómenn, sjómannsfjöl- skyldur, allir þið sem er annt um sjómennina okkar, unga sem aldna, tökum höndum saman og velqum þessa menn sem við höfúm kosið til forystu þjóðar okkar. Kosið í þeirri trú að þeir hafi óbrenglað vemleika- skjm. Vekjum þá til vemleikans á úfnu hafi, trylltu og hættulegu. Minn- um á þá hjálpandi hönd á hættustund sem öryggisfræðsla sjómanna getur rétt. Stöndum saman um þetta stór- mál, öryggisfræðslu sjómanna. Þessi grein er rituð 22. október. Nú, 24. október í hádegisfréttum, kom fram að sjávarútvegsráðuneytið mun láta þó nokkra peningaupphæð til öryggisfræðslu sjómanna og er það vel. Það breytir því samt ekki að engir peningar em lagðir fram til þessa málefnis á fjárlögum þessa árs. Höfundur er húsmóðir, hjúkrunar- fræðingur og formaður Slysa- vamadeildarinnar Eykyndils í Vestmannaeyjum. Reykhólasveit: Fyrsti bóndinn þiggur kaupleign- samning á ám Vestfirðingar gagnrýna gylliboð Framleiðnisjóðs Miðhúsum, Reykhólasveit FYRSTI bóndinn hér hefur þegið boð Framleiðnisjóðs um að leigja á kaupleigusamningi 230 ær. Ánum verður slátrað í Skriðul- andi, í Saurbæ, Dalasýslu. Bóndinn fær um 3000 krónur fyrir ána um leið og henni er slátr- að, og þar að auki 700 krónur á ári næstu 6 árin, en þá upphæð má flokka undir atvinnuleysis- bætur. Eigi er þess getið að í lok samningstímabils sé fullvirðisréttur sá sami. Vestfírðingar hafa yfirleitt tekið þessu boði Framleiðnisjóðs illa og hefur Fjórðungssamband Vest- firðinga varað við gylliboði þessu og í fundarsamþykkt þess segir, að hvert byggt ból sé ómissandi hlekk- ur í stijálbýlinu á Vestflörðum. Fjórðungssambandið vill einnig að sala eða leiga fullvirðisréttar sé háð leyfi sveitarstjóma. Deilt er hér á Framleiðnisjóð, hve óskipulega er unnið að þessu máli og geta jarð- ir farið í eyði með góð skilyrði og bent er á að fyrst var úthlutað kvóta, sem reyndist einskis virði. Því næst kom búmarkið sem fór sömu leið og nú er það fullvirðisrétt- urinn sem minnkar ár frá ári. Vitað er að Stéttarsamband bænda á í vök að veijast vegna þess að neysla landbúnaðarvara minnkar ár frá ári. Hætt er því við að margar jarðir verði óseljanlegar, þegar fullvirðisréttinn vantar. Sveinn AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓæ FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1983-2. fl. 01.11.86-01.05.87 kr. 280,81 Tnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, október 1986 SEÐLABANKIÍSLANDS iVuer korrunn timi til ao þú farir á stefnumót við New York, því Orval býður þér þriggja, fimm eða sjö daga ódýrar ferðir þangað og gistingu á mjög góðu hóteli á miðri Manhattan. Þrír dagar í New York. Verð frá aðeins kr. 20.399 Allar nánari upplýsingar veita sölu- og umboðsmenn Urvals um land allt ftRÐASKRIFSTOFAN ÚRVOL FLUGLEIDIR t Úrval við Austurvöll, sími(91)-26900. Innifalið er flugið til og frá New York og gisting á hóteli mitt í hringiðu mannlífsins á Manhattan. ( New York geturðu gert allt sem þig hefur alltaf langað til að gera og meira til, á hvaða tíma sólarhringsins sem er. New York er miðstöð lista og menningarlífs þar sem daglega eiga sér stað stórviðburðir á öllum sviðum. Úrval minnir einnig á borgarferðirnar til London frá aðeins kr. 12.570.-, Amsterdam frá aðeins kr. 14.540,- og Glasgow frá aðeins kr. 12.440.-. Ríflegur barnaafsláttur er í öllum þessum ferðum. GOH fúlk / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.