Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Prestastefna 1986 í Hallgrímskirkju Boðun kirkjunnar í lok 20. aldar PRESTASTEFNU lauk í fyrra- dag, en aðalefni hennar var boðun kirkjunnar á 20. öld. Haldin voru fjögur framsögu- erindi, umræður fóru fram og unnið var í 12 vinnuhópum. Að sögn Bemharðs Guðmunds- sonar fréttafulltrúa þjóðkirkjunn- ar var prestastefnan haldin á þessum tíma vegna vígslu Hall- grímskirkju. Hann sagði að séra Hallgrímur hefði átt aðild að hverjum söfnuði í landinu í 300 ár og því ekki óeðlilegt að presta- stefnan hefði verið haldin í þessu tilefni. Fjögur framsöguerindi voru flutt á mánudaginn, fram- sögumenn voru séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, séra Bemharður Guðmundsson, séra Birgir Ás- geirsson prestur á Mosfelli og dr. Bjöm Bjömsson prófessor. Að loknum framsöguerindum var skipt niður í 12 umræðuhópa, og gátu menn valið sér hóp eftir umræðuefni. Á þriðjudagsmorgun vom ýmis efni á dagskrá og samþykktar ályktanir, m.a. hvatt til stuðnings við starfsemi Kvennaathvarfsins. Eftir hádegið var fjallað um boðun kirkjunnar í lok 20. aldar. Presta- stefnunni lauk með boði hjá biskupi íslands, herra Pétri Sigur- geirssyni. Blaðamenn iitu inn í Hallgríms- kirkju síðasta dag prestastefn- unnar og tóku nokkra þátttakend- ur tali. „Sjálfstæð kírkja og minni hópar“ SÉRA Þorvaldur Karl Helgason er prestur í Njarðvík og séra Jakob Hjálmarsson prestur á ísafirði. Á prestastefnunni líkti séra Jak- ob starfí kirkjunnar við altaríð i Hallgrímskirkju. „Altarisborðið er tákn fyrir söfnuðinn sem hvílir á tveim fótum, annar er tákn hins ritaða orðs, biblíunnar, en hinn táknar sakramentin, skím og heil- aga kvöldmáltíð. Ofan á borðinu er altarisdúkurinn sem er tákn þjón- ustu presta og biskupa. Á altarínu em tvenn ljós sem em tákn þjón- ustu og lofgjarðar, en á milli þeirra er krossinn sem er tákn boðunarinn- ar. Krossinn hér í Hallgrímskirkju er spegilsléttur, og stendur á islensku stuðlabergi. Krossinn er því tákn fyrir það sem við emm að ræða hér á prestastefnunni, boðun kirkjunnar í íslensku samfélagi." Séra Þorvaldur er á þeirri skoðun að kirkjan eigi að beita sér í ríkara mæli meðal minni hópa. „Þrátt fyr- ir að heimurinn hafi minnkað með tilkomu sjónvarps og aukinnar tækni, þá er hann jafnvel meira einmana nú en nokkm sinni fyrr. Því er mjög mikilvægt fyrir kirkj- una að ná til fólks í gegnum smærri hópa og það er jafnframt lausn fyrir manninn." Hann nefnir nokkra hópa sem hægt væri að boða sérstaklega svo sem syrgjend- ur, hjónahópa, fráskilið fólk, böm og fl. „Mér er ógleymanlegt nám- skeið sem ég hélt með 6 hjónum í Skálholti. Það var haldið til að styrkja hjónabandið og það er ekki hægt að lýsa því sem gerðist, hjón- in nálguðust hvort annað og ég held að þetta námskeið hafi verið upphafíð að langri göngu okkar í þessa átt.“ Morgunblaðið/Þorkell „Hægt að líkja kirkjustarfinu við altarið.“ Séra Þorvaldur Karl Helgason og séra Jakob Hjálmarsson. Þeir Þorvaldur og Jakob segja að eftirminnilegast af prestastefn- unni sé erindi félaga þeirra er hann stóð upp og tjáði sig um þá erfíð- leika sem hann hafði orðið fyrir í starfinu. „Hann lýsti því hve erfítt hlutverk prestsins er í dag, opnaði hjarta sitt fyrir starfsbræðrum sfnum, og sagði að hann hefði oft verið kominn að því að hætta störf- um. Prestamir hafa gengið í gegnum þjóðfélagsbreytingar eins og aðrir, prestsfrúin sem studdi mann sinn og sinnti ýmsum störfum er farin út á vinnumarkaðinn, og presturinn því meira einn í starfi sínu en áður. Hann tjáði það sem er að bijótast um í okkur öllum, og að loknu erindi hans tóku eldri prestar til máls, voru ánægðir með þetta og sögðu að áður fyrr hefði engum dottið í hug að tala á þenn- an hátt á prestastefnum." Jakob var þátttakandi í umræðu- hóp um kirkjuna og stjómmál og segir það skoðun sína að það standi kirkjunni jafnvel fyrir þrifum að vera ríkiskirlq'a. ISðlilegra væri að efla sjálfstæði kirkjunnar. „Sérhver er í augum guðs gildur og elskaður, í þessu þjóðfélagi þar sem allir þurfa að standa sig og taka fullan þátt í framleiðslunni" segir Þorvaldur. „Hver er sú frelsun sem Jesú boðar 20. aldar mannin- um? Það er frelsun frá tilgangsleysi, vonleysi og einmanaleika. Kirkjan verður að bjóða upp á innihaldsríka samvem fyrir hina ýmsu hópa.“ „Hið óbreytanlega er Jesús Kristur, sem er hinn sami f dag, gær og um allar aldir.“ Biskup íslands herra Pétur Sigurgeirsson. „Eftirminnilegri gnðsþjónustu er varla hægt að hugsa sér.“ „Prestastefnan hefur verið mjög blessunarrík og sérstæð, ekki sist þar sem við gátum hafið störf með þvi að taka þátt í vígslu Hallgrimskirkju. Eg hef heyrt fólk segja, að það hafi ekki sett svo lítinn svip á vigsluna að hafa presta landsins saman komna í kirkj- unni og má segja að það hafi verið upphaf prestastefnu að þessu sinni“ sagði biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson. „Við heQum prestastefnuna yfír- sínu. Tímamir sem við lifum á eru leitt með guðsþjónustu þann dag sem stefnan er sett, en eftirminni- legri guðsþjónustu en þessa er varla hægt að hugsa sér. Prestastefnan hefur verið starf- söm, auk framsöguerinda og umræðna hefur verið starfað í 12 vinnuhópum sem allir hafa tekið fyrir vissa þætti í höfuðefni presta- stefnunnar, sem er boðun kirkjunn- ar í lok 20. aldar. í lok prestastefnunnar er mér ofarlega í huga hve framsöguerind- in vom markviss og vel undirbúin og afmörkuð við ákveðin svið í starfsemi kirkjunnar. Erindin voru opinská og menn tjáðu hug sinn í sambandi við þjónustu við kirkjuna, og ræddu það sem þeir þyrftu að ganga í gegnum í þjónustustarfí að breytast, fólk stendur frammi fyrir ólíkum viðhorfum frá því sem áður var, og þá er mjög mikilvægt að kirkjan mæti þeim breyttu við- horfum, þannig að hún geti náð til fólksins og fólk til kirkjunnar. Jafn- framt er gott að hafa í huga það sem Þórarinn Bjömsson skóla- meistari sagði eitt sinn, að á tímum mikilla breytinga og ölduróts væri aldrei meiri þörf á þvi að eitthvað haldist óbreytt. Það óbreytanlega er Jesús Kristur, hann sem er hinn sami í dag og í gær og um allar aldir. í því felst boðun kirkjunnar í lok 20. aldar. Mér er einnig ofar- lega í huga þakklæti til presta landsins, þeir hafa verið virkur og samstæður hópur í allri þessari umQöllun." „Erum að líta til framtí ðarinnar u SIGURVIN Elíasson er prestur á Skinnastað i Öxarfírði í Þingeyj- arsýslu, og hefur verið þar í 20 ár. Áður var hann á Raufarhöfn í 7 ár, eftir að hafa verið eitt ár prestur f Flatey. „Ég var síðasti presturinn í Flat- ey, en þá voru tæplega 40 manns í eyjunni og fleiri eyjar í byggð. Mér er margt minnisstætt frá langri starfsævi, ég hef kynnst mjög mörgu ágætu fólki.“ Sigurvin sagðist mjög ánægður með prestastefnuna, framsöguer- indin hefðu mörg hver verið mjög áhugaverð, einkum þó erindi Auðar Eir um kvennaguðfræðina og erindi Bjöms Bjömssonar prófessors. „Við prestamir emm alltaf hræddir við stöðnun, við þurfum að laga okkur eftir breyttum tímum. Það er alltaf eitthvað nýtt að koma fram, í dag tölum við um nýja guðfræði, mann- réttindaguðfræði og kvennaguð- fræði. Á þessari prestastefnu erum við m.a. að líta til framtíðarinnar. Það er okkur dreifbýlisprestum „Þörfin fyrir fagnaðarerind- ið söm og áður SIGMAR Torfason hefur ver- ið prestur á Skeggjastöðum við Bakkafjörð í 42 ár, en hann var vígður 18. júni 1944. „Kirkjusókn ekki minni hjá okk- ur.“ Séra Sighvatur Birgir Emilsson. „Vígsluna bar einna hæst“ „Þurfum að laga okkur eftir breyttum tímum.“ Séra Sigurvin Elíasson prestur á Skinnastað. mjög mikils virði að koma hingað, við eigum oft erfíðara að fylgjast með því sem er að gerast, ná okkur í nýjustu bókmenntimar og fleira þess háttar.“ SIGHVATUR Birgir Emilsson hefur verið eitt ár prestur að Ásum í Skaftártungu, en áður var hann í 9 ár að Hólum. „Vígsluna bar einna hæst“ segir Sighvatur, er hann er spurður hvað honum sé minnisstæðast frá presta- stefnunni. Þá segir hann umræðu um störf presta og boðun kirkjunn- ar á 20. öld hafa verið mjög gagnlega, „prestar glíma við svipuð vandamál hvar sem þeir eru, fólkið er svipað og boðskapurinn hinn sami. Starf dreifbýlisprestanna er þó um margt öðruvísi, vegalengdir lengri og færð oft erfíð. Prestamir í dreifbýlinu hafa rætt saman hér og ætlunin er að við höfum áfram- haldandi samstarf okkar á milli þar sem við búum við önnur kjör og aðstæður en aðrir. Ég held þó að kirlqusókn sé ekki minni hjá okkur, oft kemur fólk frá öllum bæjum í sveitinni til kirkjunnar." „Það hefur ákaflega margt breyst þennpn tíma, en tvennt er þó óbreýtt, fagnaðarerindið sjálft og þörfin fyrir það. Á prestastefn- unni hefur verið talað um að eitthvað nýtt þurfí að koma í boð- un kirkjunnar, og það er sjálfsagt að reyna ýmislegt nýtt, en það má ekki fella niður það sem sígilt er. Kirlqan rúmar þetta allt.“ Sigmar sagði að það hefði verið hrífandi að vera við vígsluathöfn Hallgrímskirlqu og það væri mik- ill sigur að þetta hús væri nú vígt, en honum er í fersku minni upp- haf byggingarsögunnar. „Það var mjög ánægjulegt að sjá þá séra Jakob og séra Sigurbjöm við vígsluna, en til þeirra sóttum við guðfræðistúdentar messur í bíósal Austurbæjarskólans er ég var við nám ’40-’44.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.