Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 27

Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 27 „Kirkjan þarf aðvera samfélag“ HELGA Soffía Konráðsdóttir er prestur íslendinga í Svíþjóð, en þar hefur hún starfað i tvo og hálfan mánuð. Hún er einnig í hálfu starfi hjá Kirkjusambandi Norðurlanda. Hún útskrifaðist í fyrra og var fyrst aðstoðarprest- ur í Breiðholti. „Kirkjan þarf að hafa tvennt á hreinu, boðskapinn og það þjóðfélag sem hún ætlar að tala tii. Mér finnst persónulega mikið hafa verið rætt um þjóðfélagið héma og hvar kirkj- an ætlar að láta rödd sína heyrast. Boðskapurinn er ekki síður mikil- vægur, hvað er það sem gerir kirkjuna að því sem hún er en ekki að stofnun eða meðferðarheimili. Kirkjan er eina stofnunin sem hefur annan tón og öðruvísi kölllun, hún er boðberi réttlætis, friðar og hjálp- ræðis, og tekur afstöðu til mála.“ Helga Soffía sagði að í nútíma fjölhyggjuþjóðfélagi þyrfti fólk á því að halda að gefa sér tíma til að fara í kirkju og setjast þar niður í þögninni. „Fólk þarf að fá frið til að hugsa um sjálft sig í afstöðunni til guðs. Það er eins og það þurfti að fylla allar stundir í frítíma fólks með einhverri afþreyingu og háv- aða, sjónvarpi, útvarpi eða ein- hverju öðru, en þetta kemur niður á sköpunarþránni og því að menn rækti manneskjuna í sjálfum sér. Kirkjan þarf líka að vera samfélag þar sem fólk getur sest niður yfír kaffibolla og rætt málin." „Fólk þarf að gefa sér tíma til að fara í kirkju og setjast niður í þögninni." Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prestur íslend- inga í Svíþjóð. „Hrífandi að vera við vígsluat- höfnina." Sigmar Torfason prestur á Bakkafirði. Könnun á trúar- lífi Islendinga næsta ári. Könnunin er fjármögnuð úr Vísindasjóði íslands. Að sögn Bjöms Bjömssonar guðfræðipró- fessors eru svör við útsendum spumingarlistum að berast þessa dagana. Spurt er 62 spuminga og ef svarshlutfall verður nægi- lega hátt má gera ráð fyrir að töluverðar upplýsingar fáist um trúarlíf og viðhorf Islendinga, en samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var af Hagvangi fyrir nokkru kom í ljós að Islendingar töldu sig mjög trúaða þjóð en lítt kirkjurækna. Elín Ósk syngur Tosca Elín Ósk Óskarsdóttir í hlutverki Toscu. KÖNNUN fer nú fram á trú- arlífi og trúarlegum viðhorf- um íslendinga, á vegum Guðfræðistofnunar Háskóla íslands. Könnunin nær til þúsund manna úrtaks úr þjóð- skránni og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á ANNAÐ kvöld syngur Elín Ósk Óskarsdóttir hlutverk Toscu í fyrsta sinn í Þjóðleik- húsinu, en Tosca er fyrsta óperuhlutverk Elinar. Þær Elísabet F. Eiriksdóttir munu skiptast á að syngja hlutverk- ið er sýningar hefjast að nýju seinni hluta nóvember. Söngkonan Floria Tosca er að- alpersónan í óperunni. Af frægum söngkonum í hlutverki Toscu má nefna Renate Tebaldi, Mariu Call- as, Mariu Jeritza, Ljubu Welitsch, Birgit Nilson og fyrstu Toscuna, Hariclea Darclée. Elín Ósk hóf nám í Söngskólan- um haustið 1979 og var Þuríður Pálsdóttir kennari hennar þar. Hún lauk einsöngvaraprófi 1984 og hélt þá til framhaldsnáms hjá Pier Miranda Ferraro í Mflanó. Fyrir nokkmm árum hlaut hún önnur verðlaun í keppni ungra einsöngvara í sjónvarpinu og hélt sína fyrstu einsöngstónleika í Gamla bíói á liðnu hausti. Hún söng í G-dúr messu Schuberts í Mflanó og víðar á Ítalíu, auk þess að taka þátt í tónleikahaldi þar. Féll af húsi og slasað- ist á höfði DRENGUR féll fram af palli yfir anddyri íþróttahúss Lækjarskóla í Hafnarfirði á mánudag. Hann hlaut höfuðáverka, en mun ekki vera í lífshættu. Drengurinn, sem er níu ára gam- all, var að klifra utan á handriði á pallinum þegar hann missti takið og féll til jarðar. Nokkuð algengt mun vera að böm klifri þama og er ærin ástæða til að vara þau við svo hættulegu athæfi. Gyða Björk Hilmarsdóttir, sonardóttir Jons, Jónína Kristjánsdóttir ekkja Jóns, Jón Kári Hilmarsson, sonarsonur Jons, Brynhildur Björns- dóttir, Hilmar B. Jonsson, sonur Jóns, og Elín Káradóttir, eiginkona Hilmars, við minnismerkið. Miiinisvarði um Jón frá Ljárskógum MINNISVARÐI um skáldið og söngvarann Jón frá Ljárskógum var afhjúpaður í túnfæti Ljár- skóga f Dölum sl. sunnudag. Hilmar Bragi sonur hans af- hjúpaði minnisvarðann, Þorra- kórinn söng og Friðjón Þórðarson minntist Jons. Við- staddir athöfina voru m.a. tveir eftirlifandi meðlimir M.A. kvart- etsins, Þorgeir og Steinþór Gestssynir frá Hæli í Hreppum. í frétt frá aðstandendum Jóns, seg- ir að hann hafi fæðst 28. mars árið 1914. Jón varyngstur 8 bama hjón- anna Önnu Hallgrímsdóttur og Jóns Guðmundssonar. Á námsámnum í M.A. söng hann með M.A. kvartet- inum sem varð landsfrægur. Jón varð stúdent árið 1934. Hann smit- aðist af berklum í nóvember 1942 og lést liðlega þremur ámm síðar, aðeins 31 ára að aldri. Eftirlifandi kona hans er Jonína K. Kristjáns- dóttir. Eftir Jón liggja nokkrar ljóðabækur og þýðingar. Félag nýrna- sjúkra stofnað STOFNFUNDUR Félags nýma- sjúkra á íslandi verður haldinn fimmtudaginn 30. október og hefst klukkan 20 að Borgartúni 18, kjall- ara (hús Sparisjóðs vélstjóra). Þar verða lögð fram drög að lögum fyr- ir félagið. Askriftarsiminn tr M3033 Góður matur og hröð þjón- usta eru helstu kostir steik- arabarsins á Hrafninum. Nú er loksins mögulegt að fá virkilega góðan mat í hádeginu án þess að eyða öllum matartímanum í bið. Steikarabar er ísienskt nýyrði fyrir enska hugtakið „Carvery“. Fjölmargir Islendingar hafa kynnst „Carvery11 á Bretlandi en nú kynnir Hrafninn, fyrst íslenskra veitingahúsa, steikarabarinn hér heima. Á steikarabarnum velur þú um ofn- steikt nautcikjöt, grillsteikt lambakjöt, ofnsteikt grísakjöt, grillaða kjúklinga eða pottrétt. Kokkurinn aðstoðar þig við valið og sker kjötið á diskinn. Meðlætinu blandar þú saman að eigin smekk. Með steikarabarnum fylgir súpa, brauð og salatbar. Fyrir þá sem ekki vilja kjöt er jafnan um fjóra mismunandi fiskrétti að velja. Á steikarabarnum setur þú saman þinn eigin matseðil og borðar eins og þig lystir. Hádegisverður kl. 11.30-14.00* kr. 580.- Kvöldverður kl. 17.30-21.00* kr. 640,- *Ath. aðeins opið matargestum. 1Í HQÁFNINN I * v- SKIPHOlll 17^^"-:- SIMIM5b70

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.