Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 28

Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Þota í nauðum yf ir Japan: Rannsókn beinist að því hvort sprenging hafi orðið Tókýó, AP. Flugslysasérf ræðingar beina nú athygli sinni að þvi hvort sprenging hafi valdið bilun í Airbus-300 þotu frá thailenzka flugfélaginu Thai, sem steyptist í átt til jarðar við Osaka á sunnu- dag. Síðustu haustæfwgamar „Þeir höfðu illt hár á höfði, reru húðkeipum og veift af hveiju skipi trjánum." Svo segir í Eiríks sögu rauða um um fund þeirra Þorfinns karlsefnis og skrælingja eða indíána í Ameríku en mennimir á þess- ari mynd eru annarrar ættar, vestur-þýskir hermenn á síðustu haustæfingum Atlantshafsbandalagsins. Hárið illa á höfði þeirra er aðallega lauf- og sinubrúskar, einhvers konar felubúningur, sem getur kannski líka skotið óvininum skeik í bringu. í þessum æfíngum, sem hófust 20. október sl., taka þátt vestur-þýskir, bandarískir, kanad- ískir, breskir og danskir hermenn, samtals rúmlega 20.000 manns. Bandaríkin: Ýmislegt þykir benda til sprengingar, m.a. grunsamlegar riflínur í þrýstingsveggnum aft- ast í þotunni. Einnig hafa fundist málmbútar, sem virðast hafa lent í bruna, eins og sprenging hafí átt sér stað. Sérfræðingamir telja útilokað að smíðisgallar eða málmþreyta í þotunni hafí valdið brestunum í þrýstingsskilrúminu, því hún var aðeins tveggja vikna gömul er óhappið varð. Er það bilaði fór loftþrýstingur af þotunni með þeirri afleiðingu að flugmennimir urðu að steypa henni hið snar- asta úr 33.000 feta hæð í 6.000 fet. Embættismenn skýrðu frá því í gær að rannsókn færi nú fram á því hvort verið hefði um „óeðili- legar mannaferðir" aftast í þotunni í ferðinni örlagaríku. Farþegar, sem sátu aftast, hefðu verið spurðir um ferðir „grun- samlegra manna“. Kyodo-frétta- stofan skýrði frá því að farþegar hefðu skýrt frá „grunsamlegum" mönnum, sem reykt hefðu eins og togarar og ráðlagt farþegum, sem gengið hefðu öma sinna, hvaða salemi væru laus. Greidsluhalli ríkis- sj óðs aldrei meiri Washington, AP. GREIÐSLUHALLI á ríkissjóð Bandaríkjanna á nýloknu fjár- hagsárí nam 220,7 milljörðum dollara og hefur aldrei veríð meirí, að sögn talsmanna fjár- málaráðuneytisins og Hvita hússins. Að þeirra sögn dugði víðtæk löggjöf um niðurskurð og aðhald í ríkisbúskapnum ekki til að koma í veg fyrir methalla. Tekjur ríkissjóðs á fjárlagaár- inu, sem lauk 30. september síðastliðinn, námu 769,1 millj- arði dollara, en útgjöld hins vegar 989,8 milljörðum. Hallinn er 8,8 milljörðum dollara meiri en á fjárlagaárinu 1985, en þá nam greiðsluhalli ríkissjóðs 211,9 milljörðum dollara. Þetta er í 25. sinn á síðustu 26 árum sem greiðsluhalli verður á ríkissjóði og nemur hann á þessum tíma samtals 2,2 billjörð- um, eða 2.200.000.000.000,00 dollara. Fjármagnskostnaður ríkissjóðs vegna þeirrar skuldar nam 187,1 milljarði dollara á Qárlagaárinu 1986, og er þar um hækkun að ræða frá fyrra ári þegar sá kostnaður nam 178,9 milljörðum dollara. Hagfræðingar ríkisstjómar- innar og einkafyrirtækja spá minni greiðsluhalla ríkissjóðs á yfírstandandi fjárhagsári, eða um 170 milljörðum dollara. Bandaríkjaþing samþykkti svokölluð Gramm-Rudman að- haldslög sl. vetur, sem hafði í för með sér 12 milljarða dollara niðurskurð á sl. fjárlagaári. Lög- in gera ráð fyrir hallalausum ríkissjóði árið 1991. Þau gera ráð fyrir því að hallinn verði ekki meiri en 144 milljarðar doll- ara á yfírstandandi ári, eða talsvert minni en sérfræðingar spá að þau verði. A Israelsks kjarneðlisfræð ings bíður langt fangelsi Jerúsalem. AP. MORDECHAI Vanunu, fyrrum starfsmaður við kjamorku- áætlun ísraels, verður að öllum líkindum dæmdur í leynilegum réttarhöldum og búist er við að hann hljóti langan fangels- isdóm, að sögn prests, sem er honum kunnugur. ísraelskir leyniþjónustumenn tóku Vanunu fastan, annað hvort í London eða um borð í lysti- snekkju undan Bretlandsströnd- um eftir að grein um kjamorku- vopn ísraela birtist í breska blaðinu Sunday Times og fluttu hann nauðugan til ísraels. Hon- um er gefíð að sök að hafa lekið ríkisleyndarmálum í blaðið, sem skýrði frá því fyrst fjölmiðla, að ísraelar framleiddu kjamorku- Nicaragua: Lögfræðingur Hasenfus mátti ekki ræða við hann Managua, AP. FYRRUM dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Griffin Bell, sneri í gær heim frá Nicaragua. Bell fór þangað í þeim erindagjörðum að hitta að máli Bandaríkjamanninn Eugene Hasenfus. Stjórn sandinista heldur Hasenfus föngum vegna ákæru um þátttöku hans í birgðaflutningum til Contra- skæruliða. Sandinistastjórnin neitaði Bell um leyfi til að ræða við Hasenfus. Griffín Bell sagði framferði sandinista „fullkomið siðleysi" og var augsýnlega mjög reiður þegar hann ræddi við fréttamenn í Mana- gua. „Það er fáheyrt að maður, sem ákærður er um svo alvarlega glæpi sem Hasenfus, fái ekki leyfi til að ræða við lögfræðing sinn,“ sagði Griffín Bell. Eugene Hasenfus komst einn lífs af þegar stjómarher Nicaragua skaut niður flutningavél þann 6. þessa mánaðar. Fullyrt heftir verið að vélin hafí verið í vopnaflutning- um fyrir Contra-skæruliða, sem njóta stuðnings Bandaríkjastjóm- ar. Sérstakur „byltingardómstóll" mun dæma í máli Hasenfus og kann hann að verða dæmdur í allt að 30 ára fangelsi ef sekt hans þykir sönnuð. Eugene Hasenfus hefur lýst því yfír að hann hafí taiið sig vera að vinna fyrir banda- rísku leyniþjónustuna, CIA, og hefur hann í samtölum við banda- ríska blaðamenn kvartað yfír því að Bandaríkjastjóm sýni máli hans lítinn áhuga. Stjómin hefur til- kynnt að hún hafí ekki átt neinn þátt í vopnaflutningunum til Contra-skæruliða. Griffín Bell kvað augljóst að Hasenfus hefði framið afbrot sam- kvæmt lögum Nicaragua. Sagðist hann hafa komið til Nicaragua til að skipuleggja vöm hans en slíkt væri erfítt þegar lögfræðingi væri neitað um leyfí til að ræða við skjólstæðing sinn. Kvaðst Bell ætla. að snúa aftur til Bandaríkjanna til að skipuleggja málsvömina og halda síðan til Nicaragua á sunnu- dag en réttarhöldin hefjast væntanlega á miðvikudag í næstu viku. Daniel Ortega, forseti Nic- aragua, lét að því liggja í sjón- Eugene Hasenfus varpsviðtali um síðustu helgi að til greina kæmi að sleppa Hasenfus 8. nóvember en þá verða liðin 25 ár frá stofnun hreyfingar sandin- ista. Nefndi Oretga náðun ýmissa stjómarandstæðinga í gegnum ár- in og sagði byltingarmenn í Nicaragua vera einstaklega þolin- móða gagnvart þeim sem spilla vildu því sem áunnist hefði. Mordechai Vanunu vopn í verksmiðju neðanjarðar. Vanunu er meintur heimilda- maður blaðsins og afhenti hann því einnig ljósmyndir, sem hann sagðist hafa tekið með mynda- vél, sem hann smyglaði inn í verksmiðjuna. Blaðið sannreyndi upplýsingamar og leiddi í ljós að ísrael er sjötta kjamorkuveldi heims. Ástralskur prestur að nafni John McKnight, sem kynntist Vanunu í Ástralíu í sumar, segist hafa fyrir því heimildir að sett verði yfír honum lejmileg réttar- höld og að hann hljóti líklega áratugalangan fangelsisdóm fyr- ir að ljóstra upp ríkisleyndarmál- um. McKnight sagði að sömu aðilar segðu sér að líklega yrði aldrei skýrt frá réttarhöldunum eða niðurstöðu þeirra opinber- lega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.