Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 31 Mynd þessi var tekin í aprUmánuði árið 1945 og sýnir japanska sjálfsmorðssveit. Nobyua Kinase, sem annaðist þjálfun flugmannanna er lengst tíl vinstri í neðri röð. í júni árið 1945 höfðu allir meðlimir sveitarinnar farið i hinsta flugið. Japan: Sj álf smor ðsflugmenn minnast fallinna félaga NOKKRIR þeirra örfáu flug- manna sjálfsmorðssveita Japana i siðari heimsstytjöld- inni sem lifðu þann hildarleik af komu saman í Tókýó í vik- unni tíl að minnast fallinna félaga. Nobuya Kinase, sem annaðist þjálfun sjálfsmorðssveitanna, en kennir nú ensku við japanskan kvennaskóla átti hugmyndina að endurfundunum. „í þá daga taldi japanska þjóðin okkur nánast til guða þó svo að það sjónarmið heyrist sjaldan í dag,“ sagði hann. Kinase kvaðst ætíð hafa verið sannfærður um að hann yrði send- ur í sjálfsmorðsflug en kallið kom aldrei. Hann annaðist þjálfun flugmannanna sem flugu sér- hönnuðum flugvélum, troðfullum af sprengiefni á bandarísk skot- mörk. Flugvélar þessar minntu raunar frekar á eldflaugar því þeim var sleppt frá móðurflugvél- um og var það hlutverk flugmann- anna að stýra þeim í mark. 2.198 flugmenn frömdu sjálfsmorð með þessum hætti í Kyrrahafsstyrjöld- inni. „Það var óskaplega átakana- legt að horfa á eftir flugvélunum þegar þær héldu af stað f hina hinstu för. Ég grét oft eins og bam þegar ég stóð einn á flug- brautinni og vissi að þessir ungu menn myndu aldrei snúa aftur,“ sagði Nobuya Kinase. Bandarísk kona handtekin í Moskvu Moskvu, AP. BANDARÍSK kona og sovézkur eiginmaður hennar voru hand- tekin og höfð i haldi i þijár klukkustundir i Moskvu i gær. Voru þau að safna undirskriftum að áskorun til stjómvalda um að fá leyfi til að fara 'ur landi er þau voru tekin. Susan Graham og Matvey Finkel höfðu fengið rúmlega 20 vegfarend- ur til að undirrita áskorunarskjalið er lögreglumenn birtust og hand- tóku þau. Hún er ófrísk að fyrsta bami og vill eignast það á banda- rísku sjúkrahúsi. Þau gengu í hjónaband árið 1979 og hefur Finkel verið synjað marg- sinnis um leyfí til að flytjast til Bandaríkjanna frá þeim tíma. Hann er af gyðingaættum, en honum hefur verið synjað um brottfarar- leyfi af öryggisástæðum, eins og það væri orðað, vegna herþjónustu hans á síðasta áratug. Susan Graham er þrítug en mað- ur hennar 37 ára. Hún starfar í hálfu starfí á vegum bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS í Sovét- ríkjunum. Hún er frá Spokane í Washingtonríki. Móðir hennar, Anna Mae, sagðist í gær hafa gert ráðstafanir til að hitta Ronald Rea- gan, Bandaríkjaforseta, í Spokane á föstudag og hyggst bera mál ERLENTV dóttur sinnar upp við hann. Reagan fundi bandaríska öldungadeildar- heldur ræðu í Spokane á framboðs- mannsins Slade Gorton. Innanríkisráðherra Frakklands: Sýrlendingar sak- lausir af ódæðis- verkum í París stjómvöld í Damascus, höfuðborg Sýrlands, fullvissað franska ráða- menn um að þau væru reiðubúin til samstarfs til að binda enda á hryðjuverk sem þessi. „Ég tel að flestöll ríki Araba séu tilbúin til að aðstoða okkur við að hafa upp á þeim mönnum sem frömdu þessi ódæðisverk,“sagði Charles Pasqua. Bretar slitu stjórnmálasambandi við Sýrlendinga þar sem fullsannað þótti að sendimenn þeirra hefðu reynt að koma fýrir sprengju um borð í ísraelskri farþegaþotu á Heathrow-flugvelli í London í apríl- mánuði. Bandaríkjastjóm kallaði heim sendiherra sinn í Damascus sem og Kanadamenn. Á mánudag hafnaði Evrópubandalagið, sem Frakkland á aðild að, kröfu Breta um samræmdar aðgerðir gegn Sýr- landsstjóm. Riyadh, Saudi-Arabíu, AP CHARLES Pasqua, innanrikis- ráðherra Frakklands, kvaðst í gær ekki telja að Sýrlendingar hefðu staðið að baki sprengjutil- ræðum i París að undanförnu. í viðtali við’ dagblað í Saudi- Arabiu sagðist hann telja full- sannað að flugumenn Arabaríkja hefðu ekki verið þar að verki. Aðspurður kvaðst Charles Pas- qua vera þess fullviss að Sýrlend- ingar væru Frökkum vinveittir og sagðist vænta þess að ríkin tvö tækju upp nánara samstarf til að hefta hryðjuverkastarfsemi bæði í Frakklandi og Líbanon. í frönskum fjölmiðlum hafa verið uppi getgátur um aðild Sýrlendinga að sprengjutilræðunum í París, sem kostuðu tíu manns lífið. Pasqua sagði Sýrlendinga hafa áhyggjur af þessum ásökunum og hefðu Sjóflugvél fórst við Jómfrúreyjar Christiansted, Jómfrúreyjum, AP. SJÓFLIJGVÉL af gerðinni Grumman Mallard fórst skömmu eftir flugtak við eyna St. Croix í gær. Fimmtán manns voru um borð, einn beið bana og 13 slösuð- ust. Rétt eftir að flugvélin lyfti sér byijaði annar hreyfíllinn að skjóta öfugt og reykur stóð aftur úr hon- um. Steyptist hún í sjóinn við Protestant Cay, smáeyju, sem er aðeins nokkur hundruð metra frá flugtaksstaðnum. Flugvélin brotnaði í sundur er hún skall á haffletinum í krappri hægri beygju. Kona, sem var far- þegi, drukknaði. Þrettán farþeg- anna slösuðust, flestir þeirra þó aðeins litillega. Aðeins 5 þurfti að leggja inn í sjúkrahús. Flugvélin var á leið til nágrannaeynnar St. Thomas. Vegna fjölda áskorana mun hið frábæra Ríó tríó ásamt Stórhljómsvelt Gunnars Þórðarsonar skemmta í Broadway föstudags- og laugardagskvöld. Að sjálfsögðu munu þeir leika öll Reykja- víkurlögin ásamt öðrum gullkornum. Þetta er skemmtun í algjörum sérflokki þar sem Ríó tríó fer svo sannarlega á kostum ásamt Stór- hljómsveit Gunnars Þórðarsonar. MatseAill: Rjómasúpa Favori Heilsteiktur grísahryggur ísdúett með rjóma- líkjörssósu. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.