Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 36
aapr aTOA.TfTi/íTTrmnw PK f(TTnA(TTTTWMI r 36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Alþingi í gær: Fiskkvóti og almenn- ar atkvæðagreiðslur Fundir vóru í báðum þing- deildum í gser. í efri deild bar hæst þijú þingmál: stjómarfum- varp um framlengingu tíma- bundinna skatta 1987, stjóraar- frumvarp til staðfestingar á bráðabirgalögum um verkfall flugvirkja hjá Arnarflugi og frumvarp Mariu Jóhönnu Lárus- dóttur (Kl.-Rvk.) um atkvæða- greiðslur um einstök sveitar- . stjóraarmál. í neðri deild mæltu ráðherrar fyrir stjómarfum- vörpum um landhelgisgæzlu, um skógrækt og um tékka. Þá urðu nokkrar umræður um frumvarp Karvels Pálmasonar (A.-Vf.) og fleiri þingmanna um breytingu á lögum um stjóra fiskveiða [fiskk- vóta]. Frumvarpið um breytta fískveiði- stjóm gerir ráð fyrir því að fískkvóti nái ekki til veiða með línu og hand- færa. Ennfremur að skip í byggðar- lögum þar sem a.m.k. 35% vinnuafls starfar við fískveiðar og fískvinnslu fái 25% hærra afla- eða sóknar- mark en skip I öðrum plássum. Flutningsmenn eru: Karvel Pálma- son (A-Vf.), Olafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.), Jón Baldvin Hannibalsson (A.-Rvk.) og Hjörleifur Guttorms- son (Abl.Al.) Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, sagði efíiislega, að handfæraveiðar væru þegar svo að segja frjálsar. Svipað mætti segja um línuveiðar. Ef hinsvegar ætti að færa aflaheimildir bolfisks frá stöðum eins og Reykjavík, Hafnar- fírði og íjölmörgum öðrum, þar sem hlutföll milli atvinnugreina féllu ekki að ákvæði þessa frumvarps, „Erfitt að moka eftir dagatali, en er betra að moka eftir veðri?“ „ÞAÐ ER mikill þrýstingur á að leiðin til Reykjavíkur sé opin á ákveðnum dögum,“ sagði Krist- ján Kristjánsson umdæmistækni- fræðingur Vegagerðar rikisins á ísafirði, en Ólafur Vilþjálmsson hefilstjóri vegagerðarinnar gagnrýnir þær sqjómoksturs reglur sem i gildi eru i viðtali * sem birtist i Morgunblaðinu i gær. Hann stjórnaði vegheflinum sem vah út af veginum á Breið- dalsheiði sl. minudagsmorgun Kristján sagði að aðallega væri mokað vegna flugsamgangna við Reykjavík, mjólkurfluttinga og heil- brigðisþjónustunnar en læknar á ísafírði þjóna stóru svæði ( ná- grenninu. „Læknar þurfa að vera á ákveðnum stað á ákveðnum degi og miða áætlanir sína við fyrirfram ákveðna mokstursdaga," sagði Krisyán. „Síðan má segja að snjó- mokstur sé skipulagður á öllu landinu í einu." Hann tók sem dæmi að leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur væri öll mokuð sama dag svo að menn kæmust leiðar sinnar á einum degi. Ef mokað væri eftir veðri á hveijum stað þá væri það ekki mögulegt. „Ég er síðasti maðurinn til að samþykkja að senda menn af stað í brjáluðu veðri til að moka ef það kemur að engu gagni," sagði Kristj- án. Hann sagði að oft væri erfítt að taka ákvörðun þegar vitað er af mönnum sem bíða, oft í smabíl- um, eftir að leiðin verði opnuð. Mokstur hefst milli kl. 4 og 5 á nóttunni til að hann megi koma að gagn í dagsbirtu. Oft er veður slæmt að morgni þegar mokstur hefst en batnar þegar líða tekur á daginn. Þá er of seint að he§a moksturinn ef honum hefur verið frestað. „Það er eins og maðurinn sagði, „erfítt að moka eftir daga- tali“ en er betra að moka eftir veðri?,“ sagði Kristján. „Við reynum að miðla málum og meta aðstæður í hveiju tilviki en þetta er óskaplega vandmeðfarið." Fjörutíu fyrirspurnir lagðar fyrir ráðherra Fjörutíu fyrirspumir til ein- stakra ráðherra hafa þegar verið lagðar fram á þessu þingi, sem er rúmlega hálfs mánaðar gam- alt. Meðal fyrirspuma, sem komið hafa síðustu daga, eru: Innlánsdeildir kaupfélaga. Halldór Blöndal (S.-Ne) spyr við- skiptaráðherra, hversku margar og hvar eru innlánsdeildir kaupfélaga; hveijar vóru innistæður í hverri deild um síðustu áramót; hver eru vaxtaskjör; hvaða tryggingar standa á bak við innistæður og hvaða innlánsdeildir hafa verið stofnaðar eða lagðar niður sl. 5 ár? Tilkynningarkerfi fiskiskipa. Ámi Johnsen (S.-Sl.) spyr sam- gönguráðherra, hvað líði þróun sjálfvirks tilkynningakerfis fyrir fískiskip, sem unnið hefur verið að um árabil hjá Háskóla íslands; hvenær og hvemig er áformað að hrinda notkun þess í framkvæmd? Öryggisfræðsla sjómanna. Ámi spyr og samgönguráðherra, hvaða áform séu um framhald ör- yggisfræðslu sjómanna, sem samgönguráðherra fól Slysavamar- félaginu að annast, samkvæmt tillögu öryggismálanefndar sjó- manna; hversu margir sjómenn hafí sótt námskeiðin, hvemig áformað sé að ná til allra sjómanna á sem skemmstum tíma og hvort nám- skeiðin verði ekki framvegis að kostnaðarlausu sem hingað til? Skuldabréfakaup lífeyris- sjóða. Kristín Halldórsdóttir (KL- Rn.) spyr fjármálaráðherra, hve miklu fé sé áætlað að lífeyrissjóðir verji til kaupa á skuldabréfum af Húsnæðisstofnun; hvemig bmgðist verði við ef lífeyrissjóðir óski eftir að kaupa skuldabréf fyrir hærri upphæð en gert var ráð fyrir, hvort hugsanlegri umframfjárhæð verði varið til útlána á vegum Húsnæðis- stofnunar? Erfðafjárskattur. Helgi Seljan (Abl.-Al) spyr fjármálaráðherra, hverjar tekjur hafí verið af erfðaíj- árskatti 1985 umfram þær 25 m.kr. sem runnu í Framkvæmdasjóð fatl- aðra? Almannfé tíl tækifærisgjafa. Jóhanna Sigurðardóttir (A.-Rvk.) spyr forsætisráðherra, hvort reglur haÆ verið settar um notkun almann- afjár til tækifærisgjafa, samanber ályktun Alþingis frá 18. apríl 1985. Viðskipti við varnarUðið. Sva- var Gestsson (Abl.-Rvk.) spyr utanríkisráðherra, hvaða íslenzk fyrirtæki hafí viðskipti við banda- rfksa herinn? Hvaða upplýsingar liggja fyrir um viðskipti hvers fyrir- tækis? Hverju nema heildargjald- eyrisskil? Ný þingmál: Samskipti ríkis og sveitarfélaga 1. hettl 1986 ALÞiNGIS TfDINDI UMRÆÐUR 10., 13., 14., 15. og 16. okL Hér má Uta nýja forsrðu Al- þingistiðinda, sem geyma ræður þingmanna, og koma nú reglu- lega út með glænýjar þingræður handa þeim sem áhuga hafa á þesskonar bókmenntum. mætti allt eins leggja útgerð þar niður. Ráðherra sagði loks fundna stefnu Alþýðuflokksins í fiskveiði- stjómun, en formaður hans væri meðflutningsmaður að þessu frum- varoi. Olafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.) sagði ekkert óeðlilegt við það að sveitarfélög, sem nytu svo til allrar Qölgunar starfa í þjónustugreinum, gæfu eftir störf í frumgreinum. Síðan kvótinn var tekinn upp hafi sem svarar íbúum meðal kauptúns, eða um 350 manns, flutzt burt af VestQörðum. Matthías Bjamason, samgöngu- ráðherra, sagði m.a., að á árabilinu 1981-1985 hafí fískveiðiskipum fækkað úr 11 í 3 á Patreksfírði, svo dæmi sé tekið, og bolfískafli minnk- að úr 12 þúsund tonnum í rúm 7 þúsund tonn. Þetta væri þó sjávar- pláss við beztu bolfískmið landsins. Kvótinn hafi flutzt annað með seld- um skipum og efir stæði byggð í vanda. Nauðsynlegt væri að skoða vanda sjávarplássa, sem byggju að hliðstæðri reynslu. Fleiri tóku til máls, þó ekki verði frekar rakið. Frumvarp Maríu Jóhönnu Lárus- dóttur gerir ráð fyrir að 10% kjósenda geti krafízt almennrar atkvæðagreiðslu um einstök sveit- arstjómarmál og beri sveitarstjóm að fresta endanlegri afgreiðslu unz hún hafí farið fram. Framsaga Maríu Jóhönnu var jómfrúrræða hennar á þingi. Þingsíða Morgun- blaðsins mun gera henni skil síðar. Þingmenn úr öllum þingflokk- um, utan Kvennalista, flytja tillögu, þessefnis, að fjármála- ráðherra láti vinna yfirlit, í sammvinnu við einstök ráðuneyti og Samband íslenzkra sveitarfé- laga, um „fjárhagsleg samsk félaga. Greint verði milli sam- skipta er lúta að framkvæmdum annars vegar og rekstri og ýmissi þjónustu hins vegar. Fram komi skuldbindingar og fjárhagsstaða hvors aðila fyrir sig miðað við árslok 1985.“. Fyrsti flutnings- maður er Davíð Aðalsteinsson (F.-Vl.). Lánastofnun sparisjóða Fram hefur verið lagt sljómar- frumvarp, þessefnis, að Lánastofn- un sparisjóiða geti gefið út tékka á stofnunina og þannig sinnt þeirri greiðslumiðlun, sem henni er ætlað að hafa á hendi fyrir sparisjóði. Þjóðaratkvæði María Jóhanna Lámsdóttir (Kl.- Rvk) o.fl. þingmenn flylja tillögu til þingsályktunar um þjóðarat- kvæði. Samkvæmt tillögunni skal „stefnt að því að tíundi hluti kosn- ingabærra manna eða þriðjungur alþingismanna geti farið fram á ráiðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu Fram hefur verið lagt stjóra- arfrumvarp um skógrækt og skógverad, sem ætlað er að fella saman þijá lagabálka: gildandi lög um skógrækt (frá 1955), lög um skjólbeltarækt (frá 1966) og lög um ræktun nytjaskóga (frá 1984). Frumvarpið er í níu köfl- um: 1) markmið, skýrgreiningar og yfirstjórn, 2) Skógrækt ríkis- ins, 3) skógverad og friðun, 4) meðferð skóglendis, 5) ræktun nytjaskóga á bíyörðum, 6) rækt- un skjólbelta og skógarlunda, 7) um einstök mál. Komi fram slík krafa um mál, sem er til meðferðar á þingi, skal fresta endanlegri af- greiðslu þess þar til þjóðaratkvæða- greiðsla hefur farið fram..." Örorkumatsnefnd Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) o.fl. þingmenn flytja í fímmta sinn frum- varp til laga um örorkumatsnefnd, sem þeir, er óánægðir em með úr- skurð tryggingayfírlæknis varðandi örorkuúrskuði, geti vísað máli sínu til. Örorkumatsnefnd skal skipuð þremur mönnum, tilnefndum af Óryrkjabandalagi, Hæstarétti og heilbrigðis- og tryggingarráðu- neyti. Náttúruvernd Hjörleifur Guttormsson (Abl.- Al.) o.fl. þingmenn flylja tillögu til þingsálylrtunar um úrbætur I um- hverfísmálum og náttúmvemd. Samkvæmt tillögunni skal undirbú- in löggjöf um umhverfísmál og helztu málaflokkar á sviði umhverf- isvemdar sameinaðir í einu ráðu- neyti. Auknar verði rannsóknir dýrastofna og gert átak f skipulags- málum. Mótuð verði opinber stefna í ferðamálum og hafín fræðsla um íslenzka náttúm. sölu og skiptingu skógarjarða og skóglendis, 8) Skógræktarfélag íslands, 9) sektir, málsmeðferð o.fl. Árið 1979 skipaði landbúnaðar- ráðherra nefnd til að endurskoða lög nr. 3/1955 um skógrækt. Hún lauk ekki störfum. Þessi endurskoð- un var síðan tekin upp I samráði við starfsmenn Skógræktar ríkisins. Fmmvarpið er „árangur þeirrar samvinnu", eins og segir í greinar- gerð með því. Stj 6r narfrumvarp: Skógvemd og skógrækt Framlenging tímabundinna skatta: Húsnæðisgjald til byggingarsj óða Hluti af framlagi ríkissjóðs Eitt prósent húsnæðisgjald á söluskattsstofn gefur ríkissjóði 600 m.kr., samkvæmt tekju- áætlun 1987. Húsnæðisgjaldið verður hluti af 1.300 m.kr. framlagi ríkissjóðs til bygging- arsjóða [húsnæðislánakerfis- ins[ á komanda ári. Þetta kom fram í máli Þorsteins Pálsson- ar, fjármálaráðherra, er hann mælti fyrir framlengingu tíma- bundinna skatta út komandi ár, þ.e. sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði, 1% hús- næðisgjalds á söluskattsstofn og sérstaks tímabundins vöru- gjalds, á Alþingi i gær. Helgi Seljan (Abl.-Al.) og Eiður Guðnason (A.-V1.) sögðu eftiis- lega, að húsnæðisgjaldið hafí til komið vegna samkomulags þing- flokka, þessefnis, að tryggja flármuni til sérstaks neyðarhlut- verks í húsnæðislánakefinu 1986. Samkvæmt frumvarpi til fram- lengingar skattsins 1987 nýttist það hinsvegar til að létta á al- mennu fjárframlag ríkisins til byggingarsjóðanna. Þeir minntu og á hatrama bar- áttu þingmanna Sjálfstæðisflokks gegn sérstökum skatti á verzlun- ar- og skrifstofuhúsnæði. Þor- steinn Pálsson væri hinsvegar annar Qármálaráðherra flokksins í röð sem fengi það hlutverk að mæla fyrir framlengingu skatts- ins. Fjármálaráðherra kvað §ár- magnsþörf húsnæðislánakerfísins og þröga fjárhagsstöðu ríkissjóðs forsendu framlengingar hús- næðisgjaldsins og hið sfðartalda forsendu framlengingar annarra tímabundinna skatta, sem reiknað væri með í frumvarpi að Qárlögum 1987. Stjómarandstöðuflokkar væm að sjálfsögðu ekki bundnir að samkomulagi um húsnæðis- gjald 1986. Fmmvarp þetta væri flutt á ábyrgð ríkisstjómarinnar. Stjómarandstaðan yrði síðan að vega og meta, hvort hún teldi forsendur til framlengingar skattsins eða ekki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.