Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
41
Afmæliskveðia:
Þórhallur Hálfdán-
arson skipstjóri
Síðla sumars 1948 settist sá er
þetta skrifar í undirbúningsdeild
fyrir þá sem reyna vildu að þreyta
prófa upp í annan bekk fiskimanna-
deildar Stýrimannaskólans í
Reykjavík þetta sama haust.
Enda voru þeir „prófsveinar" sem
þátt tóku með þann lágmarks sigl-
ingatíma sem þá var krafist, eða
að hafa verið lögskráðir í 24 mán-
uði að minnsta kosti.
Ég var þá nýorðinn tvítugur að
aldri og taldi sjálfur sem ég og vissi
best að þessi leið væri mér bráð-
nauðsynleg vegna skorts á fjármun-
um. Það álit mitt hafði ég ekki
hátt um eftir að hafa kynnst þeim
sem með mér voru á námskeiði
þessu, þótt eitt og annað hefði
mátt telja fram.
Það var m.a. vegna fyrstu kynna
minna þá af Þórhalli Hálfdánar-
sjmi, sem þama settist með mér á
skólabekk, orðinn 32 ár gamall,
giftur og þegar 4 bama faðir og
búinn að koma upp yfir sig og fjöl-
skyldu sína góðu einbýlishúsi. Sýnir
þetta þolinmæði hans, þrautseigju
og fyrirhyggju.
Við náðum prófinu báðir og luk-
um þessum áfanga vorið 1949.
Þórhallur gerðist þá skipstjóri á
ýmsum bátum og stundaði fiskveið-
ar um nokkurt árabil. En 1964
flytur hann með íjölskyldu sína
vestur á Barðaströnd og tekur að
sér rekstur drengjaheimilis í
Breiðuvík. Við þessa stjóm og
rekstur upptökuheimilisins unnu
hann og kona hans allt til ársins
1972, er þau flytja suður aftur og
var hann næsta ár og störfum hjá
Fiskimati ríkisins.
En 1. nóvember 1973 hóf hann
störf sem allir sjómenn á íslandi
þekkja hann nú fyrir, er hann gerð-
ist framkvæmdastjóri Rannsóknar-
nefndar sjósiysa, en þessi nefnd
starfaði allt til 1. júlí 1986, en var
þá lögð niður og önnur nefnd sett
á stofn í stað hennar. Ágætt starf
þeirra sem þar unnu að verður ekki
tíundað hér, en skýrslur hennar ein-
ar og sér em til mikillar fyrirmynd-
ar.
Þórhallur hefur alla tíð látið fé-
lagsmál sjómanna til sín taka. Hann
var að sjálfsögðu á sínum háseta-
árum í Sjómannafélagi Hafnar-
fjarðar og gegndi þar stjómarstörf-
um um skeið. Lengi hefur hann
verið í Skipstjóra- og stýrimannafé-
laginu Kára í Hafnarfirði, en 1949
tók hann við formennsku þar og
gegndi henni í nokkur ár.
Hann var fulltrúi fyrir Kára á
þingum Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands. I Sjómanna-
dagsráð kom hann fyrst áður en
hann fluttist vestur í Breiðuvík og
svo aftur eftir að hann hafði flust
suður að nýju.
í Sjómannadagsráði gegnir hann
nú aðalgjaldkerastörfum. I bæjarfé-
lagi sínu hefur hann unnið að
mörgum framfaramálum og hefur
verið formaður í Framsóknarfélagi
bæjarins um langt skeið.
Þórhallur Hálfdánarson er
kvæntur hinni mætustu konu, Guð-
mundu Halldórsdóttur, en þau giftu
sig 17. október 1942 og eiga nú 5
böm. Þau eiga sin sameiginlegu
áhugamál, en Hafnfirðingum og
öðrum sem leið eiga fram hjá húsi
þeirra munu þá sjá eitt það, sem
alltaf hefur dregið þau saman, en
bæði starfa þau af mikilli gleði og
dugnaði við að fegra sinn fallega
skrúðgarð. Það er gott að vinna
með Þórhalli Hálfdánarsyni. Hann
er heill í starfí og við félagar hans
í Sjómannadagssamtökunum og á
Hrafnistuheimilunum sendum hon-
um okkar innilegustu ámaðaróskir
í tilefni þessara tímamóta í lífi hans.
Persónulega vil ég flytja honum
Árstíðasveiflur í mjólkurframleiðslu:
Mikill munur á
milli samlaganna
MJÓLKURFRAMLEIÐSLAN dreifðist mjög jafnt yfir allt
síðasta verðlagsár á 1. sölusvæði mjólkur, sem nær yfir
Suður- og Vesturland, en þar er rúmur helmingur allrar
mjólkurframleiðslunnar. Skiptingin var mun ójafnari í öðr-
um landshlutum. Munurinn var mestur hjá mjólkursamlag-
inu á Djúpavogi þar sem aðeins rúmlega 15% framleiðslunn-
ar féll til á 2. verðlagstímabili (desember, janúar og febrúar)
en tæplega 40% á 4. tímabili (júní, júlí og ágúst).
Síðasta verðlagsár hófst 1. sept-
ember 1985 og lauk 31. ágúst
síðastliðinn. í yfirlit Framleiðslu-
ráðs um dreifíngu mjólkurfram-
leiðslunnar er árinu skipt í 4.
verðlagstímabil. Fyrsta tímabilið
nær frá september til og með nóv-
ember. Annað tímabil er desember
til febrúar, það þriðja mars til maí
og fjórða júní til ágúst.
Framleiðslan á Mjólkursamsölu-
svæðinu skiptist þannig á tímabil-
in: Á því fyrsta kom 25,82% af
ársmjólkinni, öðru 24,12%, þriðja
25,12% og því Qórða 24,94%. Á
þessu svæði eru fjörgur mjólkur-
samlög, samlögin á Selfossi, í
Reykjavík, Borgarnesi og Búðardal
og nemur framleiðsla þeirra
52,74% af mjólkurframleiðslunni í
landinu.
Skiptingin er miklu ójafnari hjá
samlögunum utan Samsölusvæðis-
ins. Þar kemur 23,80% mjólkurinn-
ar á fyrsta tímabilið, 19,87% á
annað, 24,44% á þriðja og 31,89%
á fjórða tímabilið. Af einstökum
samlögum, fyrir utan samlagið á
Djúpavogi sem áður er nefnt, eru
samlögin á Patreksfirði, Biöndu-
ósi, Þórshöfn og Neskaupsstað
með hvað ójöfnustu framleiðsluna.
Fyrir allt landið lítur dæmið
þannig út: 27,7 milljónir mjólk-
urlítrar (24,87%) faila til í septem-
ber, október og nóvember; 24,7
milljónir lítra (22,11%) falla til í
desember, janúar og febrúar; 27,7
milljónir lítra (24,80%) eru fram-
leiddir í mars, apríl og maí og
31,5 milljónir lítra (28,28%) falla
til í júní, júlí og ágúst. Forystu-
menn bænda og söluaðilar hafa
undanfarin ár lagt áherslu á jöfnun
framleiðslunnar eftir árstímum
vegna markaðarins og virðist þeim
hafa orðið vel ágengt, að minnsta
kosti í sumum héruðum. Má búast
við að lögð verði enn meiri áherslu
á jöfnun árstíðasveiflna en áður
þegar dregið er úr framleiðslunni
og hún nálgast innanlandsneysl-
una, því annars getur orðið hætta
á offramleiðslu yfir sumarið en
mjólkurskorti yfir vetrartímann.
þakkir mínar og þeirra alþingis-
manna, sem samgönguráðherra
skipaði í svokallaða Öryggismála-
nefnd sjómanna á árinu 1984, en í
þeirri nefnd gegndi Þórhallur rit-
arastörfum alla tíð þar til hún
skilaði af sér störfum nú fyrir
nokkrum dögum.
Þar sem endranær kom einkar
vel í ljós og að notum hans mikla
yfirsýn og fróðleikur um sjó-
mennsku, siglingar og um allt sem
betur má fara til þess að öryggi
sjómanna verði betur tryggt.
Ég vona að þú og kona þín eigi
saman friðsælt og heillaríkt ævi-
kvöld.
Pétur Sigurðsson
Þórhallur tekur á móti gestum
laugardaginn 1. nóvember á heimili
dóttur sinnar og tengdasonar,
Hrauntungu 24, Hafnarfirði, milli
kl. 16.00 og 19.00.
Sauðfjárslátrun lokið á Blönduósi:
Austur-Húnvetningar fara
fram yfir fullvirðisréttinn
Blönduósi.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hjá Sölu-
félagi Austur-Húnvetninga á
Blönduósi lauk fimmtudaginn 23.
október og var slátrað alls 51.280
kindum en til uppgjörs komu
50.511 kindur, sem er 2.162 kind-
um fleira en siðastliðið haust.
Innlagðir dilkar voru 45.909, sem
er 1.555 dilkum meira en í fyrra.
Meðalfallþungi dilka reyndist
14,10 kg. sem er 220 grömmum
minna en í fyrra.
Innlagt fullorðið fé var 4.602,
sem er 607 kindum fleira en síðast-
liðið haust. Meðalfallþungi full-
orðna fiárins reyndist vera 21,84
kíló og er það 360 grömmum meira
en í fyrra. Um 83% dilkanna fór í
1. flokk og 5,6% í O-flokk. AUar
líkur eru á því að sauðfjárbændur
í Austur-Húnavatnssýslu fari
20—25 tonnum fram yfir fullvirðis-
réttinn í sauðfé. Endanleg tala
liggur ekki fyrir, þar sem ekki er
ljóst hvað austur-húnvetnskir
bændur lögðu mikið inn annars
staðar en á Blönduósi og hversu
mikið Framleiðnisjóður á í þessari
framleiðslu.
Jón Sig.
f
Viðgerðar-
verkstæði
á hjólum
SÆVAR Sæmundsson rafvirkja-
meistari hefur tekið í notkun
viðgerðarbíl fyrir rafmagnstæki
og ferðast á honum á milli, aðal-
lega í Breiðholtshverfi, en fer
einnig í Árbæjarhverf i og austast
í Kópavog.
Þannig er hann með bílinn við
Grímsbæ í Efstalandi og Verzlunina
Ásgeir í Seljahverfi á þriðjudögum,
Árbæjarkjör í Rofabæ og Kaupgarð
í Engihjalla á miðvikudögum, Kjöt
og Fisk og Hólagarð á fimmtudög-
Sævar Sæmundsson
i viðgerðarbfl sínum.
um og Breiðholtslqör og Fellagarða
á föstudögum. Gert er við minni-
háttar bilanir á staðnum, en farið
með önnur tæki á verkstæði og
gert við þau þar.
VAREFAKTA er vottorS dönsku neytendastofnunarínnar um
eiginleika vara, sem framleiöendur og innflytjendur geta sent
henni tll prófunar, ef þeir vilja, meó ödrum orftum, ef þeir
þora!
EKTA DÖNSK GÆDIMED ALLT Á HREINU
- fjrrir smekk og þarfir Noriurtandabúa
- gxdi á góðu verði!
þorir og þolir KALDAR STADREYNDIR um það sem
máli skiptir, svo sem kæHsvió, frystigetu, einangrun, styrk-
lelka, gangtíma og rafmagnsnotkun.
Hátúni 6a, sími (91) 24420