Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
42
Samþykktir 15. þings Sjómannasambands íslands
Kostnaðarhlut útgerðar
verði skilað til hlutaskipta
15. þingi Sjómannasambands ís-
lands lauk síðastliðinn laugar-
dag. Þingið sendi frá sér
ítarlegar ályktanir um kjara- og
atvinnumál og öryggis- og trygg-
ingamál. Fer það helzta úr þeim
hér á eftir:
'A Kjara- og atvinnumál
fiskimanna
„Á undanfömum árum hafa
stjómvöld leitast við að leysa vanda
sjávarútvegsins með því að skerða
kjör sjómanna og láta þá þannig
greiða hluta af rekstrarvanda út-
gerðarinnar. Viðbrögð sjómanna
hafa verið þau að fækka í áhöfn
skipanna til að halda í við tekjur
annarra launþega í landinu. Með
auknum bolfiskafla hafa telqur sjó-
manna á þeim veiðum aukizt
nokkuð, en tekjuaukningin er ekki
meiri en svo, að hún haldi í við
það, sem gerzt hefur á almennnum
vinnumarkaði. Tekjur á öðmm veið-
um, svo sem loðnu- og síldveiðum
hafa lækkað stórlega á þessu ári.
Enn stendur eftir sú staðreynd, að
í mörgum tilfellum em færri menn
um borð en gert er ráð fyrir í kjara-
samningum og forsvaranlegt er að
séu um borð. 15. þing Sjómanna-
sambands íslands tekur undir
eftirfarandi ályktun framkvæmda-
stjómar, þar sem segir
„Framkvæmdastjóm Sjómanna-
sambands íslands lýsir furðu sinni
á þeirri ætlun ríkisstjómarinnar að
innheimta sérstakt innflutnings-
gjald af olíu og bensíni, sem
áformað er að skili ríkissjóði um
600 milljóna króna tekjum á árinu
1987, eins og fram kemur í nýfram-
lögðu fjárlagafrumvarpi.
Um mitt ár 1983 gaf ríkisstjóm-
in út lög um sérstakan 29% kostn-
aðarhlut útgerðar framhjá skiptum.
Þessi kostnaðarhlutur var tekinn
af fiskverði og kom ekki til skipta
til sjómanna, heldur rann hann
beint til útgerðar og raskaði þar
með hlutaskiptakjörum sjómanna.
Þessi lög voru sett í skjóli erfiðrar
stöðu útgerðarinnar, meðal annars
vegna mikils olíukostnaðar og með
þeim voru sjómenn látnir greiða af
launum sinum hluta af vanda út-
gerðar.
Nú, þegar staða útgerðarinnar
hefur batnað verulega, er það ætlun
sjómanna að sækja til baka þá
kostnaðarhlutdeild, sem enn hefur
ekki verið skilað inn í hlutaskiptin.
Á sama tíma er ríkisvaldið með
áform um að hirða til sín hluta af
þeim ávinningi útgerðar, sem orðið
hefur vegna olíuverðslækkunarinn-
ar, í stað þess að skila til baka
því, sem áður hefur verið tekið af
sjómönnum. Framkvæmdastjóm
Sjómannasambands íslands krefst
þess af stjómvöldum, að hlutaskip-
takjör sjómanna verði leiðrétt áður
en þau fara að innheimta til sín
þann ávinning, sem orðið hefur af
olíuverðslækkuninni."
í ljósi góðrar stöðu útgerðarinnar
er það krafa 15. þings Sjómanna-
sambands íslands, að þeim kostnað-
arhlut, sem enn fer framhjá
skiptum, verði skilað til baka inn í
hlutaskiptin. Þetta verður að vera
aðalkrafa í komandi kjarasamning-
um. Með því einu móti er hægt að
búa sjómönnum þau kjör að viðun-
andi sé.
Við sjóðakerfísbreytinguna 15.
mái síðastliðinn lækkuðu aflahlutir
hjá sjómönnum á frystiskipum, sem
fiysta bolfískafla um borð. Fulltrú-
ar sjómanna í sjóðakerfísnefndinni
og stjóm sambandsins ákváðu að
standa að breytingunni þrátt fyrir
þennan ágalla með því fororði að
leiðréttingar yrði síðar krafízt.
Þingið samþykkir að leiðréttingar á
aflahlutum þessara skipa verði
krafízt í komandi samningum.
Tekjur loðnu- og síldveiðisjó-
manna hafa vemlega dregizt saman
á þessu ári vegna lækkunar loðnu-
og sfldarverðs. Tekjur allra sjó-
manna em háðar aflabrögðum og
hráefnisverði hverju sinni og geta
því orðið miklar sveiflur í tekjum
milli ára. Þegar menn búa við slíkar
tekjusveiflur eins og sjómenn, er
það skattakerfí, sem við búum við,
óviðunandi. Þegar tekjufall verður
eins og nú hefur gerzt á loðnuveið-
um og sfldveiðum, duga tekjumar
varla fyrir opinbemm gjöldum.
15. þing Sjómannasambands Is-
lands beinir því þeirri áskomn til
stjómvalda að komið verði á stað-
greiðslukerfí skatta hið fyrsta svo
sjómönnum verði ekki íþyngt með
sköttum af tekjum fyrra árs, þegar
tekjur dragast saman af óviðráðan-
legum orsökum.
Þingir samþykkir einnig að kreíj-
ast þess í væntanlegum samningum
að allir sjómenn hafí frítt fæði. Þá
krefst þingið þess, að sjómenn fái
löndumarfrí á öllum veiðum og að
skipveijum á loðnu- og sfldveiðum
verði tryggðir minnst §órir frídagar
í mánuði. Þingið samþykkir að í
næstu samningum geri Sjómanna-
sambandið samning um fastráðn-
ingu fyrir sína umbjóðendur.
Jafnframt verði gerður samningur
um verksvið matsveina á fískiskip-
um og hvfldartíma.
Kjara- og atvinnumál
farmanna
Mikil hagræðing hefur nú átt sér
stað á sviði vömflutninga á sjó og
hafa Islendingar ekki farið varhluta
af þeirri þróun. Gámavæðing, bylt-
ing á sviði losunar og lestunar
kaupskipa og búnaðar og gerð
kaupskipanna sjálfra hafa stytt við-
dvöl þeirra í höfn jafnframt sem
vemleg fækkun í áhöfn hefur átt
sér stað. Þá hafa íslenzkir farmenn
í auknum mæli tekið á sig vinnu í
höfnum úti á landi, sem áður var
framkvæmd af hafnarverkamönn-
um. Af þessum ástæðum meðal
annars má áætla að íslenzk kaup-
skipaútgerð sé nú komin á þann
gmndvöll að vera samkeppnisfær á
sviði alþjóðaflutninga og ætti þar
af leiðandi að geta greitt hærri laun
en nú er gert. Sé hins vegar litið
til launa og kjara erlendra far-
manna vantar mikið á að íslenzkir
farmenn séu eins settir tekjulega
og einnig hvað varðar frí eftir eril-
samt úthald. Á undanfömum
mánuðum hefur átt sér stað nokkuð
launaskrið í ýmsum starfsgreinum
á almennum vinnumarkaði. Far-
menn hafa farið halloka út úr því
launaskriði. Nú vantar um 21% á
að farmenn nái þeim gmnnpunkti
í launum, sem þeir ákváðu að stefna
að í síðustu kjarasamningum. Er
þá eingöngu litið til liðins tíma, en
ekki tekið inn í það, sem á eftir að
gerast á almennum vinnumarkaði.
15. þing SSÍ mótmælir harðlega
sífelldri leigutöku íslenzkra kaup-
skipaútgerða á erlendum kaupskip-
um, sem mönnuð em erlendum
sjómönnum.
15. þing SSí mótmælir harðlega
setningu bráðabirgðalaga nr. 28 frá
9. maí 1986 á undirmenn á kaup-
skipum. Það er með öllu óþolandi
að enn einu sinni skuli stjómvöld
með íhlutun sinni þvinga fram gerð-
ardómsúrskurð og þar með bijóta
á bak aftur frjálsan samningsrétt.
Þingið lýsir fullum stuðningi við
kröfur farmanna og hvetur fram-
kvæmdastjóm sambandsins til að
styðja við farmenn í þeim átökum,
sem framundan em.
15. þing SSÍ skorar á aðildarfé-
lög sambandsins að segja upp
sanmningum sínum fyrir 1. des-
ember næstkomandi. Samhliða
uppsögn samningsins afli stjómir
félaganna sé heimildar til verkfalls-
boðunar."
Öryggis- og trygginga-
mál
15. þing SSÍ fagnar því sam-
komulagi, sem náðst hefur milli
stjómar og starfsmanna Landhelg-
isgæzlunnar og tryggingafélaga
íslenzkra fískiskipa vegna ákvæða
172. greinar siglingalaga, það er
um björgunarlaun vegna fískiskipa,
sem þarfnast aðstoðar á hafí úti.
Með því samkomulagi, sem gert
hefur verið milli fyrmefndra aðila
Sætuefnið NutraSweet er byggt upp af eggjahvítuefnum, sem kölluð
hafa verið ,,hornsteinar náttúrunnar.“
NutraSweet er náttúrulegt, en hitaeiningarnar eru 99% færri en í sykri.
Með NutraSweet er framtíðin náttúrulega sæt en án of margra hitaeininga.
NutraSweet meltist náttúrulega, enda eru grunnefnin þau sömu og
í mjólk og eggjum, svo dæmi séu tekin.
Ef þér er annt um heilsuna, þá velur þú vörur með NutraSweet,
náttúrulega.
Þær vörur sem bera þetta merki, innihalda hið eina sanna NutraSweet