Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 43 eru skip Landhelgisgæzlunnar nú virkari aðili til aðstoðar fiskiskipa- flotanum, sem óneitanlega bætist við í hlekk öryggiskeðju íslenzkra fiskimanna. Þá væntir þingið þess, að Alþingi hraði afgreiðslu fnim- varps til breytinga á 12. grein laga um Landhelgisgæzlu íslands, sem tengist ofangreindu máli. Þjálfunarmiðstöð sjómanna er nú orðin staðrejmd. Á 14. þingi SSÍ 1984 voru undirtektir góðar við hugmyndum SVFÍ um að gera v/s Þór að þjálfunarmiðstöð vegna ör- yggismála sjómannna. Þessu hefur verið hrint í framkvæmd og hafa þegar ijölmargir sjómenn og heilar skipshafnir tekið þátt í þessum námskeiðum. Öllum sjómönnum, sem tekið hafa þátt í þessum nám- skeiðum, ber saman um nauðsyn og gagnsemi þeirra. Nú vantar ijár- hagslegt átak til að koma skipinu hafna á milli til námskeiðahalds fyrir sjómenn. Þingið mótmælir harðlega ráðstöfun ríkisstjómarinn- ar, sem fram kemur í frumvarpi til Qárlaga, þar sem engin ijárveiting er ætluð til þessara fræðslu og fyrir- byggjandi starfsþátta í öryggismál- um sjómanna. Því skorar 15. þing SSÍ á ijárveitinganefnd Alþingis að veita verulegu fjármagni til þessa merka og nýja þáttar í öryggismál- um sjómanna svo allir sjómenn megi njóta án tillits til búsetu. Þingið minnir á nauðsyn öflugrar gæzlu björgunar- og varðskipa á hinu víðáttu mikla hafsvæði innan 200 mílna fískveiðilögsögunnar. Alþingi verður að veita það fjár- magn, sem til þarf til fulls reksturs að minnsta kosti þriggja varðskipa, jafnframt sem aukin áherzla verði lögð á sérhæfni áhafna varðskip- anna til hvers konar björgunar- og leitarstarfa. Flugáhöfn þyrlu Land- helgisgæzlunnar ásamt læknum frá Borgarspítalanum hefur unnið ómetanlæegt starf í þágu sjó- mannastéttarinnar og landsmanna allra. Nokkuð virðist óljóst um áframhaldandi samstarf þessara aðiia og jafnvel svo að þyrlan, þetta dýra og mikla björgunartæki, er ekki til taks nema hluta úr degi. Allt stafar þetta af óvissuþáttum í íjárhagslegum rekstri, sem er óvið- unandi. Þingið krefst þess, að fjárveitinganefnd Alþingis sjái svo um fjárhagslegu hlið rekstrar þessa björgunartækis' að viðunandi sé. Þingið hvetur alia þá aðila, sem að öryggis- og björgunarmálum sjó- manna vinna, til að hafa framhald á þeim öryggismálafundi, sem Sigl- ingamálastofnun og sjóslysanefnd gekkst fyrir 1984. Verði slík ráð- stefna haldin á tveggja ára fresti. í hörðu kapphlaupi við tímann láta skipstjómarmenn æ oftar úr höfn með ósjóbúin skip. Að gefnu tilefni minnir þingið skipstjómarmenn á 3. kafla 6. greinar Siglingalaga. Þá telur þingið nauðsyn á breytingu laga nr. 102 frá 1972 þess efnis að greiðslur frá tryggingafélögum til sjómanna vegna slysa verði ekki frádregnar örorkubótum. Skráð slys á sjómönnum voru á árinu 1985 því miður of mörg. í físki- mannastétt slösuðust 419 og í farmannastétt 35. Enda þótt hér sé um háa slysatíðni að ræða miðað við þann fjölda, sem þessar starfs- greinar stunda, era áreiðanlegar heimildir til fyrir því að ekki era öll slys, er sjómenn verða fyrir, skráð. Því skorar þingið á skip- stjómarmenn og trúnaðarmenn sjómanna að sjá svo um að öll slys, er verða um borð eða við störf, sem unnin era fyrir skipið, verði tilkynnt tryggingastofnun ríkisins. Þingið skorar enn einu sinni á stjómvöld að setja lög um líftryggingu sjó- manna vegna þeirra sérstöðu, sem sjómenn era í við störf sín á hafí úti, fjarri allri læknisþjónustu, ef alvarleg veikindi ber að, sem leiða til dauða. Þingið felur fram- kvæmdastjóm SSÍ að vinna að endurskoðun tryggingamála og bótaupphæðar fyrir næstkomandi áramót. Enda verði krafa þar um lögð fram í komandi kjarasamning- um. Þingið áminnir enn einu sinni alla skipstjómarmenn um að fara að lögum um tilkynningarskyldu og hvetur FFSÍ til að hafa áhrif á umbjóðendur sína, svo þesso stór- kostlegi öryggishlekkur íslenzkra sjómanna bersti aldrei. Þingið telur nauðsyn á, að sett verði reglugerð þess efnis að um borð í öllum íslenzkum skipum verði flotbúningur til notkunar fyrir hvem áhafnarmeðlim. Siglinga- málastofnun og SVFÍ verði falið að gera tillögur um slíka reglugerð. Þá gerir þingið kröfu um að á öllum yfírbyggðum fískiskipum og skuttoguram skuli vera um borð slöngubátur með utanborðsvél. 15. þing SSÍ fagnar þeim breyt- ingum, sem orðið hafa á undanföm- um áram í öryggis- og aðbúnaðar- málum sjómanna og heitir nú á alla sjómenn að nota þann öryggis- búnað, sem þeim er ætlaður við allar aðstæður, sem þeir vinna við; Kynna sér vel þann björgunarbún- að, sem um borð er, notkunarreglur og hvort viðhald og geymsluástand sé eðlilegt, því slík varúrðarráðstöf- un er ekki verk embættismanna einna. Að gefnu tilefni, þar sem í alltof mörgum tilfellum er óviðun- andi vinnuaðstaða sjómanna um borð í fískiskipum, krefst 15. þing SSÍ þess, að við hönnun vinnslurás- ar fískiskipa verði haft samráð við hlutaðeigendi sjómenn (háseta) vegna nýsmíði eða breytinga. Þá minnir þingið á skyldur skipstjóra, þar sem 8. grein sjómannalaga seg- ir meðal annars svo: „Við ráðningu nýliða skal skipstjórí sjá um að nýliðanum sé leiðbeint um störf þar, sem hann á að vinna. Ennfrem- ur skal honum sýndur björgunar- búnaðaur sá og viðvöranarbúnaður, sem á skipinu er og leiðbeint um grandvailaratriði við notkun þeirra." Þingið felur framkvæmdastjóm SSÍ að kjósa þriggja manna nefnd til að gera úttekt á réttindum sjó- manna og skyldum lífeyrissjóða sjómanna. Nefndin skili greinargerð ogtillögum fyrir 16. þingSSÍ 1988. 15. þing SSÍ þakkar öryggis- málanefnd sjómanna, sem sam- gönguráðherra skipaði 30. marz 1984 og skipuð er 9 alþingismönn- um, fyrir störf sín að öryggismál- um. Þá tekur þingið undir allar tillögur nefndarinnar, sem lagðar vora til við samgönguráðherra af hálfu öryggismálanefndar 16. októ- ber síðastliðinn. Þingið þakkar þeim fjölmörgu aðilum innlendum og erlendum, er lagt hafa sjómönnum lið með óeig- ingjömu starfí sínu á sviði öryggis- og björgunarmála.“ Dauflegir hellisbúar Kvikmyndir Amaldur Indriðason Hellisbúarnir (The Clan of the Cave Bear). Sýnd í Bíóhúsinu. Stjörnugjöf ☆ Bandarísk. Leikstjóri: Michael Chapman. Handrit: John Sayles, eftir samnefndri metsölubók Jean M. Auel. Framleiðandi: Jerry Isenberg. Kvikmyndataka: Jan De Bont. Aðalhlutverk. Daryl Hannah, Pamela Reed, James Remar og Thomas G. Waites. Hellisbúamir, sem sýnd er í Bíó- húsinu, er forsöguleg mynd um lítið Cro-magnon bam, sem Neander- dalsfólk tekur að sér og eftir því sem tímar líða verður æ erfiðara fyrir Cro-magnon manninn að laga sig að hinu ókunnuga og óvinveitta umhverfi Neanderdalsmannsins. Hellisbúamir kemur í kjölfar Leitarinnar að eldinum eftir Jean- Jaques Annaud en nær ekki með tæmar þar sem hún hafði hælana. Öðra nær. Það gerist ekki ýkja margt í þessari mynd og hún vekur litlar tilfinningar hjá manni umfram leiða. Daryl Hannah er gullfallegur Cro-magnon maður en henni veitist erfitt að vera sannfærandi. Henni fer betur að ganga um götur New Daryl Hannah i nuðið með helhsbúum: Henni veitist erfitt að vera sannfærandi frummaður. York en i skógarþykkni fomaldar. Það er ekki nóg með að Cro- magnon maðurinn sé eins og hálaunuð fyrirsæta innan um hina frumstæðu Neanderdalsmenn held- ur er hún snarpgáfuð; menningar- legasti Neanderdalsmaðurinn kann aðeins að telja upp að fímm á með- an hún getur talið upp að 20. Hún er líka fyrsta rauðsokkan og berst, frekar ómeðvitað en hitt, gegn karlaveldinu og fer á veiðar með sterkara kyninu. Eins og í Leitini að eldinum var samið sérstakt mál fyrir frammenn- ina í myndinni og það er allt í lagi með það. Þeir urra út úr sér einsat- kvæðis orðum og nota mikið handahreyfíngar og skiljast mjög vel. En svo ekkert fari milli mála notar leikstjórinn Chapman sögu- mann til að tyggja oní áhorfendur það sem þeir vita vel fyrir ef þeir hafa þá getað haldið sér vakandi. Það er ansi hvimleitt og fræðslu- myndalegt og algerlega ónauðsyn- legt. NEWAGE Sv STAMFORD rafalar, stærðir 6kw—1250 kw. 50 rið, 1500 snúnmga/mín. Bæði fyrir sjó- og landvélar. S. STEFÁNSSON & CO. HF. GRANDAGARÐI 1B, SÍMI 27544. Hress og gagnleg STJÖRNUSPEKI- NÁMSKEIÐ hefjast 3. og 15. nóvember Framhaldsnámskeið, úrlestur stjörnu- korta: 3. nóvember, 6 skipti á mánu- dags- og fimmtudagskvöldum frá kl. 20 til 23. Þetta er námskeið fyrir þá, sem hafa und- irstöðuþekkingu í stjörnuspeki, þekkja táknin, stjörnumerkin, plánetur og hús, en vilja öðlast aukna leikni í að tengja alla þættina saman í eina heild. Leiðbeinandi er Gunniaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur. Byrjendanámskeið: 15. nóvember, 6 skipti á laugardögum frá kl. 12 til 15. Fjallað er m.a. um lífsorku þína, tilfinn- ingar, hugsun, samskipti, starfsorku, þær mótsagnir í persónuleika þínum sem geta valdið erfiðleikum, bælingar og ónýtta hæfileika. > Þetta er einstakt tækifæri til að eiga ánægjulegar stundir með skemmtilegu fólki, ræða um sjálfan þig og stöðu þína í lífinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.