Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 45

Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 45 St)ömu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag ætla ég að fjalla um hið dæmigerða fyrir Sporð- drekamerkið (23. okt. — 21. nóv.). Umfjöllunin nú verður almenn en síðar verður fja.ll- að um merkið í vinnu, í ást, í bemsku og á fullorðinsárum svo dæmi séu nefnd. Árstíminn Sporðdrekinn er viðkvæmt og dult tilfinningamerki. Ástæðuna er sennilegast að fínna í árstíma Sporðdrek- ans, haustinu. Á þessum tíma styttist dagurinn og myrkur fer vaxandi. Gróður deyr, blöð falla af trjánum, frost kemur í jörð og veður versn- ar. Merkið og fólkið sem fæðist á þessum árstíma lit- ast af þessum ytri og nátt- úrulega veruleika. Leitar inn Sálræn áhrif nóvembermán- aðar á okkur mannfólkið eru þau að við drögum okkur 1 skel, leitum inn á við í aukn- um mæli og dveljum með sjálfum okkur. Hjá flestum er einungis um tímabundið ástand að ræða, fyrir Sporð- dreka er þessi tími mótandi, setur mark sitt á sálina. Einfari Það er kannski þess vegna sem Sporðdrekar eru dulir. Oft virðist sem þeir treysti ekki lífinu og meðbræðrum sínum. Það að fyrsta reynsl- an af lífinu skuli vera sú að fylgjast með dauða gróðurs- ins getur kannski leitt til alvöru, þyngsla og jafnvel svartsýni? Hver svo sem ástæðan er er það staðreynd að hinir dæmigerðu Sporð- drekar eru lokaðir persónu- leikar. Þeir eru í felum. Þeir opna sig örsjaldan og tala um sinn innra mann. Því fara Sporðdrekamir oft eigin leið- ir. Þó þeir séu í mannfagnaði er einhver kyrrð og þögn yfir þeim. Þegar þeir eru hressir, er það oft einungis á yfir- borðinu, en innri maður þeirra hulinn. Bœlir niÖur Það er kannski þessi varkámi og einvera sem leiðir til tveggja dæmigerðra eigin- leika. Annað er ímyndunar- aflið og hitt er tilhneiging til að bæla tilfinningar, reiði, ást og í raun hvað sem er niður. Ef þú ert í eðli þínu lokaður og lítt gefinn fyrir að tala um þinn innri mann segir það sig sjálft að þér hættir til að bæla þig niður. Þú reiðist kannski, en vegna þess að þú ert dulur, segir þú ekki orð. Þú elskar, en þú átt erfitt með að opna þig. OpnaÖu þig Það verður aldrei hægt að taka dulúðina frá Sporðdrek- anum. En það er hægt að benda honum á að læra að tjá reiði og ást. Það er nauð- synlegt, vegna þess að innibyrgð reiði getur leitt til sjúkdóma og vanlíðunar. Sömuleiðis innibyrgð ást. Sjálfs sín vegna þarf Sporð- drekinn að opna sig. Magnari Það er kannski einveran og innra eintal sálarinnar sem þroskar ímyndunarafl Sporð- drekans? Hvort það er rétt eða ekki, hefur hann mikið og sterkt ímyndunarafl. Það er gott, en hefur eina hættu. Hún er magnaraáráttan svo- kallaða. Þegar ástvinurinn kemur seint heim, eða vinnu- félaginn er höstugur í málrómnum, hækkar styrk- urinn. f stuttu máli: Sporð- drekar eiga það til að gera smámál að stórmáli og magna atburði í æðra veldi. X-9 .■ ..............■ .............. GRETTIR !!!!!!!!!!!!!!”???!!!!!!!!!!!?!V!!!!!!l!!!!!!!!!!?1!!i!!??!?!n!!!!!!!!!!!!f!!!!!!!!?!!l SMÁFÓLK Skríðsund? Svei mér Baksundið? Frábært! Hundasundið? flott__ Nú er hann að gera grín að mér! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Getur suður unnið fjóra spaða með bestu vöm? Vestur kemur út með laufás og kóng. Suður gefur; AV á hættu. Norður ♦ G V K63 ♦ KDG4 ♦ 87653 Vestur Austur ♦ D6 VD97 ♦ 86 ♦ ÁKD942 Suður ♦ 853 VÁ108 ♦ 1097532 ♦ 10 ♦ ÁK109742 ♦ G542 ♦ Á ♦ G Vestur Norður Austur Suður Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði 21auf Pass Pass Pass Pass Pass 4 spaðar Eftir að hafa trompað seinna laufið er eðlilegasta spila- mennskan kannski sú að taka þrisvar spaða, tígulás og spila svo hjarta á kónginn. Þá vinnst spilið ef hjartaásinn er í vestur. Sem hann er, svo spilið tapast ef þessi leið er valin. -__ En sagnhafi á mun betri leið. Hann trompar seinna laufið af vandvirkni með fjarkanum til að geyma tvistinn. Tekur svo ÁK í spaða. Þegar drottningin kemur í frá vestri er ljóst að austur á þriðja spaðann. Þá er tígulás tekinn og spaðatvistinum spilað. Jafnvel þótt austur hafi fylgt iit með 85 í spaða á hann enn þrist- inn yfir tvistinum og neyðist til að taka slaginn og spil? frá hjartaásnum eða tígli. En vömin hefur reyndar síðasta orðið í þessari umræðu. Austur getur eyðilagt þennan möguleika sagnhafa með því að trompa laufkóng makkers í öðr- um slagS Skoðaðu hvaða áhrif það hefur. Umsjón Margeir Pétursson Á Radio Rebelde-skákmótinu á Kúbu í vor kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meistaranna Utasi, Ungverjalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og FUguth, Brasilíu. Hættuleg gagnsókn svarts vofir yfir, svo það duga engin vettlinga- tök: 28. Df6!! (Ekki 28. Hdhl? - Hxd4, 29. Hh8+ — Ke7) Svartur er óverjandi mát eftir drottningar- fómina, svo hann gafst upp. T.d. 28. - Bxf6, 29. gxf6 - Kg8, 30. Hdhl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.