Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 47

Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 47 Afmæliskveðja: Sigurður Samúels- son prófessor Ekki man ég glöggt hvenær kynni okkar Sigurðar Samúelssonar f.v. prófessors hófust. Þegar ég réðst sem kandidat við lyflækninga- deild Landspítalans haustið 1949 þá var Sigurður þar aðstoðarlæknir hjá Jóhanni heitnum Sæmundssyni, sem sama ár hafði tekið við prófess- orsstöðu í lyflækningum. Allt frá þessum tíma höfum við Sigurður lengst af verið samstarfsmenn á Landspítalanum og því orðið þess aðnjótandi að taka þátt í og fylgj- ast með hinni miklu þróun sem átt hefur sér stað í læknisfræði á þessu tímabili. Það var ekki ónýtt fyrir nýgræð- ing eins og mig að njóta fræðslu og handleiðslu þeirra Sigurðar og Jóhanns. Sigurður hafði dvalið langdvölum í Danmörku og starfað við ýmis sjúkrahús og heilbrigðis- stofnanir þar í landi, meðal annars við öll stærstu sjúkrahús í Kaup- mannahöfn. Meðan á Danmerkur- dvölinni stóð vann hann við rannsóknir á vissum hjarta- og lungnasjúkdómum. Þessar rann- sóknir urðu síðan undirstaðan að doktorsritgerð, sem hann varði við Kaupmannahafnarháskóla 1950. Sigurður hafði tekið eftir því, að sumum hjartasjúklingum versnaði við morfíngjöf og það svo að um lífshættu gat verið að ræða. Rann- sóknir Sigurðar vörpuðu ljósi á orsakir þessa og vöktu brátt at- hygli meðal lækna. Ekki er að efa að þessi uppgötvun Sigurðar átti eftir að bjarga mörgu mannslífínu. Árið 1948 fékk Sigurður sér- fræðingsviðurkenningu f lyflækn- ingum með sérstöku tilliti til hjarta- og lungnasjúkdóma og eftir að hann hóf störf við Landspítalann opnaði hann jafnframt lækningastofu í Reykjavík. Sigurður varð brátt mjög eftirsóttur læknir enda lærður vel og glöggur við sjúkdómsgrein- ingar og jafnframt hugmyndaríkur þegar um var að ræða að velja lyf eða aðrar lækningaaðferðir. Sigurður var fljótur að koma auga á það sem betur mátti fara, þegar við yngri og óreyndari lækn- ar höfum gengið stofugang á lyflækningadeildinni og hann kom síðan til skjalanna. Þetta varð hvatning fyrir okkur að gera betur. Það var því uppörvandi og mennt- andi að vinna undir handleiðslu Sigurðar. Á þessum tíma var engin eiginleg göngudeild við Landspítalann, en ekki fór hjá því að sjúklingar utan úr bæ komu inn á ganga spítalans til að leita sér lækninga hjá sérfræð- ingum sjúkrahússins. Einkum voru það hjartasjúklingar sem leituðu til Sigurðar, enda var hann sérlega vel menntaður á því sviði og hafði unn- ið með hinum þekkta lækni Erik Warburg við Ríkisspítalann í Kaup- mannahöfn. En Warburg var þá einn af þekktustu hjartasérfræðing- um Evrópu. Man ég glöggt að margra grasa gætti í sjúklingahópi Sigurðar, þ.á m. fjölmörg tilfelli af með- fæddum hjartasjúkdómum. Sigurð- ur Iagði sig allan fram við sjúkdómsgreiningamar, enda mikið f húfí því að skurðaðgerðir á með- fæddum hjartasjúkdómum og lokugöllum í hjarta vom þá hafnar erlendis og áríðandi var að velja þá sjúklinga úr sem bæta mátti með þeim hætti. Rannsóknaraðferðir vom ófull- komnar á þessum tíma. Hjarta- þræðingar og hjartasónrannsóknir ekki hafnar. Það reyndi því mjög á læknislistina þ.e., hæfileikann til að greina sjúkdóma án tækja og tóla. Sigurður var skipaður prófessor við læknadeild Háskóla íslands 1955 og jafnframt yfirlæknir við lyflækningadeild Landspítalans. Hér var um geysi mikið og erfítt starf að ræða. Fyrstu tvö árin var Sigurður eini kennarinn í lyflæknis- fræði en það var hin mesta þrek- raun fyrir einn mann að kenna allar sérgreinar lyflæknisfræðinnar, þótt fræðigreinin væri þá tiltölulega vanþróuð miðað við það sem nú er. Nemendur í læknadeild vom þá að vísu fáir og kennslan því auðveld- ari en síðar varð. Til gamans má geta þess að kennarar í lyflæknis- fræði eru nú 12 og em þó stunda- kennarar ekki meðtaldir. Sigurður vann að því öllum ámm að efla kennsluna í lyflæknisfræði og brátt fjölgaði kennurum í grein- inni. Hann innleiddi það nýmæli að samhæfa kennsluna öðmm greinum í læknisfræði, svo sem lyfjafræði með því að fá til liðs við sig í kennslustundum kennara viðkom- andi greinar. Yfírlæknisstarfíð og stjórnun lyf- lækningadeildarinnar tengdist óhjákvæmilega þróun spítalans. En í tíð Sigurðar sem yfirlæknis allt til ársins 1982 stækkaði og efldist Landspítalinn mjög svo að segja má að um byltingu í þróun hafí verið að ræða. Margir yfirlæknar ásamt stjómamefnd, framkvæmda- stjóra og yfirvöldum komu þar við sögu. Ekki ósjaldan þurfti Sigurður að taka á honum stóra sínum til að halda hlut lyflækningadeildar- innar. En Sigurður er fastur fyrir og málafylgjumaður í besta lagi og undir stjóm hans þróaðist lyflækn- ingadeildin ekki síður en aðrar deildir spítalans. Þrátt fyrir miklar annir við lækn- ingar og stjómunarstörf þá hefur Sigurður ávallt látið félagsstörf mikið til sín taka, meðai annars í Læknafélagi Reykjavíkur, Lækna- félaginu Eir og hinum ýmsu sér- greinafélögum innan læknisfræð- innar. Raunar var hann fmmkvöðull að stofnun nokkurra þeirra, svo sem Lyflæknafélags íslands, Gigtsjúk- dómafélags íslands, og Hjarta- og æðasjúkdómafélags Reykjavíkur. Þá er ótalið það sem kann að halda nafni Sigurðar lengst á lofti, á ég þar við er nokkrir framsýnir menn með prófessor Sigurð í fararbroddi tóku sig til og stofnuðu samtökin Hjartavemd 1964. Þegar hér var komið sögu blasti við að kransæða- sjúkdómur gerðist æ algengari á íslandi, einkum var það áberandi meðal yngri karlmanna. Hjarta- verndarsamtökin vom stofnuð til vamar gegn þessum vágesti. Mark- miðið var meðal annars að fræða almenning um orsakir sjúkdómsins, um vamaraðgerðir gegn honum, og rannsaka útbreiðslu hans á Islandi og tíðni þeirra áhættuþátta sem vitað var að tengdust sjúkdómnum. Árið 1967 tók rannsóknarstöð Hjartavemdar til starfa og hefur starfað allt til þessa dags. Strax f upphafi var ákveðið að rannsóknar- stöðin einbeitti sér að faraldsfræði- legum rannsóknum, meðal annars á áhættuþáttum kransæðasjúk- dóma. Nú er ljóst að hér var um mjög mikilvæga ákvörðun að ræða og að forystumennimir hafa verið framsýnir, því að nú liggur fyrir í rannsóknarstöðinni mikill fróðleik- ur um heilsufar landsmanna, um útbreiðslu ýmissa sjúkdóma á byrj- unarstigi, áhættuþætti, félagslegar aðstæður, reykingavenjur og margt fleira. Einmitt nú þegar menn eru sam- mála um að gera þurfi átak til vamar gegn sjúkdómum þá em þessar upplýsingar ómetanlegar. Nokkuð samstarf hefur verið milli rannsóknarstöðvar Hjarta- verndar og göngudeildar Landspít- alans fyrir háþrýsting. En það var einmitt eitt af síðustu verkum Sig- urðar áður en hann lét af störfum við Landspítalann að beita sér fyrir stofnun göngudeildarinnar. Sigurði var sýnt um að velja sér hina hæfustu samstarfsmenn og þar kom að á lyflækningadeildinni var læknaliðið skipað vel menntuð- um og færum sérfræðingum í flestum sérgreinum lyflæknisfræð- innar. Þegar ég lft-til baka þá rifjast upp fyrir mér hve mikil eindrægni hefur ávallt ríkt f þessum stóra læknahópi. Sigurður hafði þann háttinn á að hafa sem allra minnst bein af- skipti af faglegum störfum sérfræð- inga og reyndra aðstoðarlækna deildarinnar. Meiriháttar vandamál ræddu menn og leystu sameiginlega. Þannig skapaðist gagnkvæmt traust milli manna. Nú á þessum tímamótum, þegar prófessor Sigurður er 75 ára, þá er margs að minnast persónulega. Marga ánægjustund hefi ég dval- Morgunblaðið/SigJóns. Friðfinnur Daníelsson hjá ísbor hf fyrir framan nýja borinn og tæki sem honum fylgja. Isbor hf borar eftir heitu og köldu vatni Selfossi. FYRIRTÆKIÐ ísbor hf, sem skráð er á Selfossi hefur keypt öflugan jarðbor og hyggst taka að sér borun eftir heitu og köldu vatni fyrir fyrirtæki og sveitar- félög. Fyrsta holan sem ísbor borar verður í Höfnum, fyrir laxeldisfyrir- tæki. Friðfinnur Daníelsson, einn forsvarsmanna fyrirtækisins, sagði að næg verkefni væru framundan og mikið um fyrirspumir. Hann ið á hinu fagra heimili Sigurðar og Hólmfríðar og notið hinnar frábæru gestrisni sem þeim er eiginleg. Oft hefi ég notið hjálpsemi Sigurðar og uppörvunar. Ég minnist eldmóðsins og kraftsins sem einkenndi Sigurð þegar hann barðist fyrir framfara- og áhugamálum. Ennþá bregður fyrir glampa í augum þegar Hjarta- vernd og velferð þeirrar stofnunar ber á góma. Sigurður ber aldurinn sérlega vel. Hann hefur til skamms tíma starfað við Rannsóknarstöð Hjarta- vemdar af fullum krafti og er formaður hjartaverndarsamtak- anna. Býsna langt er síðan Sigurður hóf baráttu sína fyrir hollum lifnað- arháttum og heilsuvemd, svo sem alþjóð veit. Allhart hefur hann gengið fram á því sviði á köflum, enda duga þar engin vettlingatök. Sjálfur sýnir Sigurður gott for- dæmi í þessum efnum, reykir ekki og fer létt með kjörþyngd og kól- esteról og aðra heilsuþætti sem halda manni ungum og frískum, svo sem á honum má sjá er hann sprangar um stræti, spengilegur og léttur í spori. Ég vil ljúka þessum orðum með því að þakka prófessor Sigurði fyr- ir öll hin góðu persónulegu kynni og vináttu á liðnum ámm, og við Karólína sendum Sigurði og Hólm- fríði innilegar kveðjur og ham- ingjuóskir á þessum tfmamótum. Snorri P. Snorrason sagði það markmiðið hjá fyrirtæk- inu að fara inn á jarðboranamark- aðinn og bora holur eftir heitu vatni jafnt á háhita- sem lághitasvæðum. Nýi borinn er af tegundinni In- gersoll Rand og er bandarisk framleiðsla. Við borun fyrstu hol- anna verða tveir Bandarfkjamenn starfsmönnum ísbors hf til aðstoð- ar. Við borinn er gert ráð fyrir að vinni 4-5 menn. Sig. Jóns. C-vítamíninu í morgun? Skrifstofutæknir Eltthvað fyrir þig? Vegna mikillar þátttöku og vegna þess að færri komust að en vildu í skrifstofutækninámi Tölvu- fræðslunnar sl. haust hefur Tölvufræðslan ákveðið aö fara af stað með nýja námshópa í skrifstofutækni í janúar 1987. Um er að ræða þriggja mánaða nám í vinnuað- ferðum á skrifstofu með sérstakri áherslu á notkun tölva sem nú eru orðnar algengar í allri skrifstofuvinnu. Nemendur útskrifast sem skrif- stofutæknar og geta að námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki. Námið henta þeim sem lokið hafa stúdents- prófi eða góðu grunnskólaprófi. Námskeiðið hefst 5. janúar 1987. Nánari upplýsingar veitir námssstjóri Tölvu- fræðslunnar Sjöfn Ágústsdóttir í síma 687590. [3| TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.