Morgunblaðið - 30.10.1986, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
MAHARISHI MAHESH YOGI
Samsviðstækni
Maharishi Mahesh yogi
(Innhverf íhugun TM)
Einstaklingsfriður er grunn-
eining heimsfriðar. Kynnið
ykkur málið á almennum
kynningarfundi í Odda (Fé-
lagsvísindahúsi Háskólans),
stofu 104, í kvöld (fimmtu-
dagskvöld), kl. 20.30.
Alþjóða íhugunarfélagið —
íslandsdeild, sími 99-4178.
i
ÆtNSILFURBÚÐIN
\XJ LAUGAVEG 55 SÍMIH066
DE FARIS
MAXIM’S
sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN
og handbragð HUTSCHENREUTHER,
sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni.
MAXIM'S
hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönnun
og einstaka framleiðslu.
Þess vegna hefur SILFURBÚÐIN
valið MAXIM’S frá HUTSCHENREUTHER
sem postulín fyrir þá vandlátu.
BETRI
ÁRANGUR MEÐ
Öruggur búnaöur fyrir
1. Mannvirkjagerö
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaöiönaö
4. Léttan iönaö
ATLAS COPCO
DIESELDRIFNAR LOFTPRESSUR
Afkðst 30-565 l/s Vinnubrvstinqur 6-20 bar
ATLAS COPCO er stærsti framleiöandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaöi fyrir þrýstiloft. Fyrirtækiö þekkir hvermg
minnka má framleiöslukostnaö meö notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iönaöarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar.
Fyrirtæki með framleiðslu er ^■^■■■i
HtlasCopCO try99ir Þér bætta arösemi og fUUnsCop
góða þjönustu.
Allar nánari upplýsingar gefur
(2.LANDSSMIÐJAN HF.
Tombólustjórar á torgi fríðarins
eftir Júlíus K.
Valdimarsson
Mörgum íslendingum þótti eitt-
hvað skrítið, eins og eitthvað
passaði ekki við móttöku okkar á
leiðtogum stórveldanna á dögunum.
Þama voru þessir leiðtogar að hitt-
ast til þess að fjalla um alvarlegasta
vanda mannkynsins en gestgjafar
þeirra, ráðamenn íslensku þjóðar-
innar, hugsuðu ekki um neitt annað
en að gera komu þeirra að stórkost-
legri tombólu.
„Seljum, seljum ...“
Allt var reynt að selja — sauðar-
gærur, fegurðardrottningar og svall-
veislur í öldurhúsum borgarinnar.
Þessi sölumennská var svona álíka
viðeigandi eins og að slá upp mark-
aði í kringum brennandi hús, af því
að slökkviliðsmennimir og hinn
spennandi atburður drægju að svo
marga kúnna og álíka smekklaust
eins og að nota sér jarðarför náins
ættingja til að selja úr dánarbúinu
vegna hinna góðu sölumöguleika.
Útg’öngubann
Nær hefði ráðamönnum verið að
sýna friðarvilja sinn og hvetja fólk
til að láta í ljós stuðning við friðarvið-
leitni leiðtoganna. En það þveröfuga
gerðist. Við lá að ríkisstjómin gæfi
út útgöngubann og veitingahús og
hárgreiðslustofur voru hálftómar
meðan á heimsókninni stóð vegna
tilmæla sfjómvalda um að landinn
færi nú ekki að blanda of miklu geði
við gestina með komu sinni á þessa
staði.
Július K. Valdimarsson
„Best hefði þó verið
að sýna hugrekki og
taka raunverulegt
friðarspor með því að
beitasér fyrir friðlýs-
ingu Islands sem
fordæmi fyrir um-
heiminn.“
Ritskoðun utanríkis-
ráðherra
Utanríkisráðuneytið tók að sér að
sjá um alla þjónustu við þær þúsund-
ir fréttamanna sem hingað komu. I
fréttamiðstöð þeirri sem komið var á
fót fyrir hinn fijálsa fjölmiðlaheim
var hins vegar ströng ritskoðun. Var
stranglega bannað að auglýsa þar
annað af innlendu efni en lambakjöt,
landslagsmyndir og utanríkissteftiu
ríkisstjómarinnar. Kynning á starfi
friðarhópa var alls ekki leyfð. Til
dæmis fór Flokkur mannsins fram á
að setja upp tilkynningu um blaða-
mannafund í tilefni af undirskrifta-
söfnun um friðarlýsingu ísiands sem
skref í átt að vopnlausum heimi, en
fulltrúi utanríkisráðherra hafnaði
þeirri beiðni. Það var aðeins leyfilegt
að dreifa á fréttamiðstöðinni ræðum
hans sjálfs í bæklingsformi (á kostn-
að skattborgara) þar sem hann lýsti
utanríkisstefnu Sjálfstæðisflokksins
sem mörgum þykir nú vægast sagt
vafasamur friðarboðskapur.
Allt I plati
Það var til þess tekið hjá hinum
erlendu blaðamönnum, sem voru
hingað komnir til þess að skrifa um
friðarveiðleitni í heiminum, hvemig
ráðamennimir rejmdu að plata þá
út og suður. í fréttamiðstöð ríkis-
stjómarinnar var augiýst með stórum
stöfum að utanríkisráðherra myndi
opna fréttamiðstöðina á formlegan
hátt í Hagaskóla. Allar fréttastöðvar
heimsins settu sig í startholumar til
þess að hlýða á leiðbeiningar gest-
gjafanna um fféttamiðlun vegna
friðarfundarins. Þeim til undrunar
voru þeir leiddir út úr húsinu og inn
í nærliggjandi íþróttahús þar sem var
búið að undirbúa á laun stærðar vöru-
sýningu með sölubásum og ljósadýrð.
Og eftir opnunarmars lúðrasveitar-
innar sem mætt var á staðinn hélt
utanríkisráðherra snjalla söluræðu til
þess að setja af stað tombóluna. Einn
Er nokkurt vit í þessu?
eftirÁma Helgason
Ég var að fara yfir ijárlagafrum-
varpið 1986. Þar kennir ýmissa
grasa. Þar er gert ráð fyrir að
Afengis- og tóbaksverslunin ein selji
landsmönnum „vörur og þjónustu"
eins og það er orðað fyrir 4 millj-
arða eða 4.000 milljónir króna.
Hvílík þjónusta!!
Til heilbrigðismála, alls landsins,
sjúkrahúsa og alls þess á að veija
rúmum 6 milljörðum og stoppar
ekki til, mörg rúm auð vegna skorts
á starfsfólki. Og með þessum áfeng-
is- og tóbaksaustri er verið að auka
tölu þeirra sem lenda fyrr eða síðar
á sjúkrahúsi. Þessar 4.000 milljónir
verða fjölda notenda til skaða og
skammar, eins og Einar Ben. orðar
það og hefir reynst sannmæli í ár-
anna rás.
Á sama tíma er alls staðar kvart-
að. Vantar fé til eins og annars,
sjúkrahús hálfgerð, hafnir bíða eftir
fé til að hægt sé að nota þær, veg-
ir eins og allir vita og svona mætti
lengi telja. Fyrir þetta fé, sem lands-
menn eyða í verra en ekki neitt,
mætti t.d. kaupa 20 nýja togara,
eða byggja 1.000 veglegar íbúðir
og afhenda þær fólki, sem á í erfið-
leikum, það mætti kaupa fyrir þetta
fé 90 góða stálfiskibáta, byggja
varanlega vegi um land allt og jafn-
vel hafa afgang og svona mætti
Iengi telja, en ráðamönnum þjóðar-
innar — sem þó eiga að hafa vit
fyrir mannskapnum — finnst máski
eðlilegra að dæla þessu í mannskap-
inn og minnka mjólk og aðrar
landbúnaðarafurðir til neyslu?
Á sama tíma og skólakerfíð fær
ekki nægilega íjármuni til að valda
sínu verkefni og á sama tíma og
landsbyggðin berst vonlítilli baráttu
fyrir sinm tilveru og flóttinn eykst
í þéttbýlið á Suðurlandi, sér heil-
brigt fólk og hugsandi svona farið
með peninga þá sem við jafnvel
tökum að láni á erlendum vettvangi.
Og hvað kemur svo út úr þessu.
Hvar eru tekjumar? Jú, þær birtast
f minni manndómi. Þeim fækkar
Ámi Helgason
„Hvenær ætlar þjóðin
mín að hætta að eyða
fjármunum, svona
gífurlegnm, í verra en
ekki neitt, sjálfri sér
til tjóns og bölvunar?“
ískyggilega sem standa við orð og
eiða, þeim §ölgar sem stunda fjár-
drátt og annað í gruggugum sjó
samfélagsins. Og alltaf koma upp
ný og ný svikamál og enn er margt
á botninum. Slysum og jafnvel
manndrápum §ölgar. Ölvunarakst-
ur eykst, ofbeldi og svona mætti
lengi telja. Ríkið þarf að styrkja
sfvötnunarstöðvar út um allt sem
ekki voru til fyrir 40 árum, það er
í vandræðum með að hýsa alla þá
fanga í kerfinu sem lögum sam-
kvæmt verða að bera ábyrgð gerða
sinna, en hafa villst á brennivíns-
brautum lands og þjóðar.
Og alltaf fjölgar góðum manns-
efhum sem lenda í snöru eiturefh-
anna.
Og hvert er svo svarið þegar
spurt er. Opnið fleiri brennivíns-
búðir. Um afleiðingar er aldrei
hugsað. Og svo eru menn alveg
hissa á gyðingunum í gamla daga
að biðja um Barrabas lausan. Og
við leyfiim okkur að tala um gró-
andi þjóðlíf.
Það má kannski virða til vor-
kunnar þótt við ýmis tækifæri sleppi
menn þriðja erindi þjóðsöngsins
þegar hann er sunginn.
Já, ég var að fara yfir fjárlaga-
frumvarpið og væri ástæða til að
minna á ýmsa liði þar hinum al-
menna borgara til umhugsunar, en
mér varð hugsað: Hvenær kemur
sá tími þegar forysta landsmanna
gengur á undan með fögru eftir-
dæmi? Hvenær ætlar þjóðin mín að
hætta að eyða íjármunum, svona
gífurlegum, í verra en ekki neitt,
sjálfri sér til tjóns og bölvunar?
Höfundur er fréttaritari Morgun■
blaðsins i Stykkishólmi.
Reyðarfjörður:
Búið að
salta2149
tunnur
Reyðarfirði
Búið er að salta I 2149 tunnur
hér á Reyðarfirði, sem skiptist
þannig að Austursíld hefur salt-
að 840 tunnur, Verktakar hf. 800
og Bergsplan 509 tunnur. Nú
bíða menn spenntir eftir að geta
haldið áfram síldarsöltun.
____t t ^__ Gréta
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins á bls.
23 á sunnudag féllu niður fyrstu
orðin.
Fréttin, sem fjallaði um sölu á
regnbogasilungi frá Færeyjum átti
að byija svo: „Verslanir í Reykjavík
hafa að undanförnu boðið viðskipta-
vinum sínum upp á regnbogasilung,
sem fluttur er til landsins frá Fær-
eyjum."