Morgunblaðið - 30.10.1986, Síða 51
Fréttabréf úr Borgarfirði
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
'Sl
.was**.
XJöfðar til
JLL fólks í öllum
starfsgreinum!
er steinsteypt. Réttarstjóri á af-
mælisárinu var Kristján Davíðsson
bóndi á Oddsstöðum.
Slátrun hófst í Borgamesi 15.
september sl. og er fyrirhugað gð
slátra um 66.000 flár. Er orðinn
verulegur samdráttur í sauðfjárbú-
skap á þessu svæði, því slátrun hjá
K.B.B. var kominn vel yfir 80 þús-
und þegar flest var.
Sláturféð reynist full feitt sam-
kvæmt nýju matsreglunum, þvi um
og yfir 14% lenda í verðfellingu
vegna offitu, það sem af er slátur-
tíðar. Meðalþungi dilka virðist
heldur lakari en 1985.
D.P.
Gott haust eftir
stórgott sumar
HorgunbUðið/Davfð.
Þessar tvær myndir eru teknar á Hesthálsi með fjögurra vikna millibili, önnur áður en
veglagning hófst, en hin þegar vegurtinn var að komast í fulla hæð.
Grund, Skorradal.
EITT besta sumar, sem hér hefur komið í áratugi er nú á enda og
haustið er gengið í garð. Heyfengur sumarsins er vel í meðallagi
að vöxtum, en gæðin í hámarki eftir frábæra heyskapartíð.
Júnímánuður var frekar hryss-
ingslegur á köflum og um miðjan
mánuðinn varð jörð alhvít. í júnílok
var grasspretta u.þ.b. hálfum mán-
uði seinni en 1985. Eftir 10. júlí
mátti heita, að samfelldir þurrkar
og einstök veðurblíða héldist út
ágúst og er raunar enn.
Margir bændur í Borgarfirði luku
heyskap sínum fyrir júlílok, en yfir-
leitt var öllum heyskap lokið fyrir
miðjan ágúst.
í sumar var loks hafist handa
með að leggja nýjan veg yfir Hest-
háls. Framkvæmd þessi hefur verið
mikið baráttumál íbúa uppsveita
Borgarfjarðar, en löngum hefur
verið talað fyrir daufum eyrum
ráðamanna. Vegalengdin sem eftir
var að leggja og nú var ráðist í,
er um 2.9 km. Þegar loks var tekið
til við verkið, var það gert af mikl-
um myndarskap og ekkert stóð fyrir
- hæðum rutt og lautir fylltar. Veg-
inum víða lyft í 2-3 m hæð.
í þessa leið þarf að flytja til
yfír 50.000 rúmmetra efnis. Nýi
vegurinn er lagður á svo til sama
stað og sá gamli var á.
100 ár voru í haust liðin frá því
Á leið til fjalla.
að réttin var flutt að Oddsstöðum.
Rétt sú, sem nú er á Oddsstöðum
var byggð á árunum 1955-1956 og
ÁDUREN
ÞÚUEGGUR
í HANN...
Bensínstöö ESS0 í Hafnarfiröi er eina bensínsföðin á leiðinni
Breiðholt - Keflavík, ef þú ekur nýju Reykjanesbrautina.
Ef þú'ert á suðurleið blasir stöðin við á hægri hönd, eftir að beygt
er til suðurs af nýju Reykjanesbrautinni.
ESSO-stöðin í Hafnarfirði er því sjálfsagður áningarstaður - áður
en þú leggur í hann.
Olíufélagið hf
AUKhf. 15.151/SlA