Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
fclk í
fréttum
Ásdis J. og IngibjSrg Þ. Rafnar.
SYSTUR OPNA MÁL-
FLUTNINGSSTOFU
ÆT
Kvennafrídaginn, 24. október, opnuðu systumar
Asdís og Ingibjörg Rafnar lögmannsstofu í Skeifunni 11
a og er þetta í fyrsta skipti á Islandi að tvær konur
opna lögmannsstofu saman. í tilefni opnunarinnar buðu
þær systur til sín nokkm vinum og velunnurum og vom
myndimar teknar við þetta tækifæri.
Lögmennirnir og vinir þeirra við opnun gtofunnar. MorKunblaðið/Bjami
COSPER
Nú er allt tilbúið fyrir fiskinn á pönnuna.
Klukkanfrá
Qorbachev
Styttanfrá
Nlxon
egar leiðtogar stórveldanna komu
hér saman á dögunum færðu þeir
hvor öðmm ekki jjjafir, en báðir
færðu þeir forseta Islands, Vigdísi
Finnbogadóttur, gjafír til þess að
þekka fyrir gestrisnina.
Snnuglan frá
Reagan
/
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Starfsbróðir Vigdísar, Ronald
Reagan, færði henni að gjöf snæuglu
úr postulíni gerða af listkonunni
Helen Boehm. „Upphaflega mótaði
ég snæugluna til þess að gefa hana
út í takmörkuðu upplagi, en þegar
forsetinn hringdi taldi ég hana einu
réttu gjöfína handa þjóðhöfðingja
íslands", sagði Boehm.
Þrátt fyrir þetta verður
postulínsuglan gefín út í 350
tölusettum eintökum, en ekki er
ákveðið hvenær af því verður, eða
hvað hún muni kosta.
Þegar Vigdís fékk ugluna var hún
í hvítum umbúðapappír, með rauðan
borða utan um og innsigli
Bandaríkjaforseta á.
Til gamans má geta þess að þegar
Nixon og Pompidou hittust hér á
Iandi árið 1973, gaf Nixon Kristjáni
Eldjám einnig styttu eftir Helen
Boehm.
Mikhail Gorbachev, aðalritari
Sovéska kommúnistaflokksins, gaf
Vigdísi hins vegar forláta klukku
með handmálaðri skífu og stalli.
REYKJAVÍKUR-
FUNDURINN
Vigdísi
góðar
gjafir
færðar