Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 58
■WT ' ....' 58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 4 Bestu ár ævi minnar voru reyndar aðeins nokkrar vikur. Þegar fæðingunni er nú lokið og ég búinn að fá pelann er ég allur annar maður. HÖGNI HREKKVlSI 4 Þessir hringdu . . . Erindi Hildu gott Móðir í Reykjavík vill koma á framfæri þakklæti fyrir erindi sem Hilda Torfadóttir flutti í ríkisút- varpinu í þáttunum í dagsins önn. Var það um áhrif sjónvarpsgláps á böm og vissulega orð í tíma töluð að dómi móðurinnar. Skorar hún á dagblöðin að birta þetta erindi Hildu. Lítið gert fyrir okkur Nokkrir þungarokkarar á Bíldudal höfðu samband og vildu koma þeim tilmælum á framfæri að sjónvarp og útvarp spiluðu svo- lítið af tónlist við þeirra hæfi. Á því finnst þeim mikill misbrestur í dag og þungarokkið tæpast til í hugum stjómenda tónlistarþátta í þessum §ölmiðlum. Ekkert hugsað um gamla fólkið FuIIorðin kona hringdi: Alveg er ég bit á væntanlegri dagskrá sjónvarpsins, eins og hún var þar kynnt um daginn. Þar er ekkert við hæfi gamla fólksins, þvert á móti. Þeir ætla t.d. að sýna Rocky, þá ljótu mynd. Mj ólkurstöðina nýju skortir lítramál Húsmóðir í Vesturbænum hringdi: Ég var að gera slátur og vantaði þá 10 lítra af mjólkursýru. Maður- inn minn fór þá í Nýju mjólkurstöð- ina þeirra erinda að kaupa slíkan vökva en þá var honum sagt að því miður væri ekki til neitt lítramál og því gæti hann ekki fengið neina mjólkursýru. Má nú ekki bæta úr þessu, fyrir næstu sláturtíð að minnsta kosti. Að vísu þætti mér nokkuð langt að bíða í ár eftir því að fá mjólkursým því að á mínu heimili er hún mikið drukkin - en betra er seint en aldrei. Óskalagaþáttinn aftur á Rás 1 Kona hringdi og vildi eindregið beina þeim tilmælum til RÚVAK að Óskalagaþáttur sjúklinga verði Velvakandi góður. Mig langar til að senda hrepps- nefnd Hveragerðis þakkir fyrir vinsemd þá er þeir buðu okkur hjón- um að vera viðstödd 40 ára afmæli Hveragerðis í sumar. Okkur þótti það mjög gaman að þeir skildu muna eftir okkur og sendum við Hvergerðingum öllum innilegar þakkir fyrir og líka fyrir öll vinaheimboðin á meðan við dvöldum á heilsuhæli N.L.F.Í,. Það aftur færður yfir á sinn gamla tíma og sína gömlu rás. Hún sagðist nefnilega ekki ná Rás 1 á útvarpið sitt. Myndin ekki af Guðjóni Samúelssyni Magdalena Schram hringdi og vildi koma þeirri leiðréttingu á framfæri að myndin, sem bygging- amefnd Hallgrímskirkju sagði teiknaða af Guðjóni Samúelssyni, húsameistar ríkisins og birtist í Morgunblaðinu 26. október, væri alls ekki af Guðjóni. Anna Rögn- valdsdóttir hefði teiknað umrædda mynd fyrir kvennablaðið Veru árið 1982. var yndislegur tími og munum við lengi minnast hans og búa að þess- ari dvöl okkar þar. Vildum við gjaman vera þama á hveiju ári og njóta hins góða matar og þjónustu sem þar er veitt. Óskandi væri að sem flestir ættu þess kost að dvelja þar og bæta heislu sína. Við sendum öllu starfsfólki okkar innilegustu kveðjur og þakklæti. Paul V. Michelsen Víkverji skrifar Fréttaritari Morgunblaðsins í Grindavík, Kristinn Benedikts- son, skrifaði í síðustu viku athyglis- verða og tímabæra frétt í blaðið. Vakti hann þar máls á hraðakstri inn í bæinn og segir í fréttinni að hann verði að stöðva „áður en á þessum stöðum verði hörmulegt slys“. Bendir Kristinn á, að öku- tæki komi oft á um og yfir 80 kílómetra hraða inn í bæinn og ökumenn taki ekki tillit til þess, að þeir séu komnir inn í íbúðar- og verzlunarhverfi, en séu ekki lengur á opnum þjóðvegi. Þetta leiðir huga Víkveija að því, að víða annars staðar er ástand- ið svipað. Víkveiji hefur staðið sig að því að hægja ekki ferðina fyrr en hann er kominn inn í miðjan Keflavíkurkaupstað og þá keyrt á hraða Keflavíkurvegarins í gegnum Njarðvíkumar. Upp í hugann koma einnig staðir eins og Egilsstaðir, Eskiíjörður, Reyðarfjörður og Fá- skrúðsQörður fyrir austan. Þar freistast menn til að aka á mikilli ferð í gegnum bæina, ef þeir eiga ekki erindi þangað, og sinna þá engu um, að helztu verzlanir og þjónustufyrirtæki bæjarbúa eru við aðalgötumar og eðlilegur hraði er nær 30 km, en 60. Víkveija var í vikunni"bent á, að á Akranesi hefði tekizt að draga úr þessum hraðakstri inn i bæinn með umferðarljósum og hringtorgi. Ef til vill þarf slíkar aðgerðir í Grindavík og annars staðar þar sem við þetta vandamál er að glíma. Bezta lausnin er þó að sjálfsögðu hugarfarsbreyting hjá ökumönnum. í dálkum Víkveija hefur verið minnzt á, að eðlilegt sé að leyfa meiri hámarkshraða úti á beztu vegum heldur en nú er og við beztu skilyrði er það örugglega óhætt, hins vegar gegnir allt öðru máli inni í bæjunum. Ökumenn verða að geta metið aðstæður hveiju sinni og ekið í samræmi við þær. XXX Bandaríkjamenn flyklqast á þessum haustdögum í inn- kaupaferðir til Islands. Lopapeysur og annað íslenzkt rennur út eins og heitar lummur. Fargjöldin eru lág og auk kynningar- og sölu- starfs Flugleiða vestra hafa þeir Reagan og Gorbachev verið dugleg- ir að selja í þessar ferðir. Fleiri sækja Island heim og er ljóst að árið er orðið eitt albezta ferðamannaárið fyrir þjóðarbúið og þá sem standa í þessum útvegi. XXX * Adögunum kom hingað 85 manna hópur frá Stavanger og stóð dagblaðið Stavanger Aften- blad fyrir ferðinni. Var þetta í annað skipti á árinu, sem blaðið skipulagði hópferð lesenda sinna til íslands. í fyrra skiptið fór um 30 manna hópur hringinn í kringum landið, en nú var aðeins dvalið góða helgi í höfuðborginni og farið í skoð- unarferðir um nágrennið. Færri komust að í þessa ferð en vildu og er þegar búið að ákveða þriðju les- endaferðina hingað til lands næsta vor. Áhugi fyrir íslandi er greini- lega mikill meðal lesenda blaðsins og á einn af reyndari blaðamönnum Stavanger Aftenblad örugglega mikinn þátt í því. Káre Haukás heitir hann og hefur mikið skrifað um Island undanfárin ár og fjöldi greina, sem hann skrifaði héðan í fyrrahaust undir samheitinu „Gest- ur í vestri" („Gjest í Vest“), vöktu athygli og kveiktu eflaust í mörgum lesandanum. Annars er þaó ekki nýtt að mik- ill Islandsáhugi sé meðal ibúa á vesturströnd Noregs, en samgöngur hafa batnað mjög á síðustu árum og eiga enn eftir að lagast. Nú þegar eru Flugleiðir með áætlunar- flug til Bergen og feija hefur gengið á sumrin til þess sama staðar. Nú er í bígerð að Flugleiðir heíji enn- fremur áætlunarflug til Stavanger á næsta ári. Því má telja lfklegt að norskum ferðamönnum fjölgi enn hér næsta sumar og sömuleiðis eiga íslendingar þá auðveldara með að heimsælqa norska frændur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.