Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 59 Vetur kóngur sest nú að með tilheyrandi snjó og kulda. Ökumönnum er þá mikil hætta búin þegar hálka myndast á vegum. Kristinn bendir á það að saltaustur á götur höfuðborgarinnar komi inn falskn öryggiskennd með ökumönnum, fyrir nú utan annan skaða sem saltið vinnur á farartækjunum sjálfum. Saltausturinn vekur hættulega öryggiskennd Enn er hafinn saltausturinn á götur borgarinnar. Þessi gegndar- lausi saltaustur felur í sér hættu sem ég er ekki viss um að um- ferðaryfirvöld geri sér grein fyrir. Hættan er margskonar. Saltpækill- inn tærir hemlakerfi bflanna, sest á ljósker og rúður og byrgir útsýn. Þá eru ótaldar ryðskemmdir sem eru afleiðing saltpækilsins og gera bfla jafnvel stórhættulega í um- ferðinni. Loks er hættulegasta afleiðing saltaustursins en það er hin falska örygisskennd sem sífelld- ur saltaustur kemur inn með vegfarendum. Hinn stöðugi salt- austur hefur orðið til þess að vegfarendur eru margir hverjir famir að treysta á að hálku sé eytt og aka því allan veturinn um á vanbúnum bflum. Þetta ér ekki Gullúr tapaðist íslensk kona búsett erlendis varð fyrir því óláni að tapa litlu gullúri í miðbæ Reykjavíkur mánudaginn 20. október. Við þetta úr eru bundn- ar sérstakar minningar og er henni mjög umhugað um að fá það aftur. Heitir hún fundarlaunum. Sjái finnandinn þessa klausu er hann vinsamlegast beðinn að hringja í s. 31449. gerði, „Reykjakotsdalur". Gerum Hveragerði og ísland heimsfrægt fyrir okkar góðu læknasérfræðinga og gjaldeyrir- inn mun streyma til landsins. Paul V. Michelsen Á líðandi stund óeðlilegt þar sem strætisvagnar Reykjavíkur sýna það fordæmi að hafa alla bfla sína vanbúna til vetr- araksturs — allan veturinn. Salt- austurinn mun oft vera til kominn vegna kröfu frá strætisvagnamönn- um sem ekki er óeðlilegt þegar tillit er tekið til þess að þeim er ætlað að aka um á bflum sem ekki eru búnir til hálkuaksturs. Vegna þess að strætisvagnastjórar eru atvinnu- menn í akstri, komast þeir almennt vel frá skyndihálku, því þrátt fýrir saltaustur er hálku aldrei eytt af öllum götum og jafnvel ekki af strætisvagnaleiðum á svipstundu. Skyndihálka, blettahálka og hálar hliðargötur verða alltaf til þrátt fyrir stöðugan tímabæran en oftast ótímabæran saltaustur. Besta ráðið í vetrarakstri borgarbúa tel ég vera að hætta saltaustrinum, búa stræt- isvagnana til vetraraksturs og venja ökumenn borgarinnar við að aka I hálku. Þá hættu slysin sem stafa af fölsku öryggi ökumanna vegna saltaustursins. Burt með saltið af götunum. * Gerum Island heimsfrægt Reykjavík, 16. október 1986. Miídar umræður hafa verið í gangi undanfarið, og sérstaklega eftir leiðtogafundinn, um atvinnu- mál íslendinga og þó mest um ferðamannaiðnað á íslandi. Ég hef oft minnst á heilsuhæli í dagblöð- um og við ýmsa sem vit hafa á þessum málum og hef ég talað við nokkra lækna sem hafa áhuga á að hér rísi heilsuhæli á heimsmæli- kvarða. Veðrið skiptir mjög litlu máli í þessu sambandi, því sól er alls staðar hægt að fá í suðlægum löndum. Hér skiptir mestu máli að læknaþjónusta sé fullkomin og nóg höfum við af sérfræðingum á öllum sviðum. Hjá okkur skiptir miklu máli okkar góða og hreina vatn og hressandi loft, ómengað, og leirinn ásamt kervatni, með öllum þeim góðu efnum sem þar er að fínna. Eg hef undanfarin 20 ár hugsað mikið um þessi mál og dvalið í lengri tíma á þremur heilsuhælum og séð hvað þau eru umsetin, sérstaklega af fólki sem hefur efni á að greiða vel fyrir góða þjónustu. Vona ég að ráðamenn fari nú að rumska við sér og tryggi sér þann stað sem ég veit heppilegast- an fyrir þessa starfsemi, en það er dalurinn fyrir innan Hvera- Hinar margumtöluðu viðræður í Höfða leiða hugann að því að svo langt sem minni manna nær hafa geysað styrjaldir manna á millum. Agreiningsefnin hafa aldrei farið í þurrð en í fljótu bragði finnst mér að þetta hafi verið margslungnir þættir í vitsmunalegri þróun og hugsunarhætti viðkomandi hóps eða samfélags. Maður skildi ætla að eftir því sem velmegun vex ætti ágreiningsefn- unum jafnmframt að fara fækk- andi. En það er varla svo og þó. Úr því verður framtíðin að skera. Kannski menn séu eftir allt saman famir að finna betur til hins já- kvæða og þess sem gefur lífinu gildi. Eftir kannski tvo til þijá mannsaldra verður mannskepnan búin að ná áttum. En tíminn sjálfur mun leiða þetta best í ljós. Vil ég svo í lokin taka undir orð forsetans okkar, frú Vigdísar Pinn- bogadóttur, um að vonandi takist þeim Reagan og Gorbachev að lægja öldur ósamkomulags í veröld- inni. Gunnar Sverrisson Elskaðu guð og krist Til fjármálaráðherra til athugun- ar: Aflaðu teknanna áður, eyddu þeim ekki fyrst. Eyddu ekki meiru en þú aflar. Elskaðu guð og krist. (Gamalt stef í gildi þó). Oddur íbúð óskast Hveragerði — Selfoss Hjón með 3 börn 7-14 ára óska eftir að taka stóra íbúðeða hús á leigu í Hveragerðl eða Selfossi. Algjör reglusemi. Getum borgað ca. 20.000 pr. mánuð en litla fyrirframgreiðslu. Upplýsingar í síma 91-21922 og í vinnu 99-4700 (Árni). Augýsingar 22480 ISJ Afgreiðsla 83033 Dagbók og minningargreinar . Erlendaráskriftir ............. Erlendarfréttir ............... Fréttastjórar ................. Gjaldkeri ..................... Hönnunardeild ................. Innlendarfréttir .............. íþróttafréttir ............,...., Ljósmyndadeild ................ Prentsmiðja ................... Símsvari eftir lokun skiptiborðs Tæknideild .................... Velvakandi (kl. 11 —12) ....... Verkstjórar í blaðaafgreiðslu . Viðskiptafréttir .............. 691270 691271 691272 691273 691274 691275 691276 691277 691278 691279 691280 691281 691282 691283 691284 KR0SSVIÐUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr greni, birki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæöavara á sérdeilis hagstæöu veröi SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjálf! Pið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. BJOBNINN Við erum í Borgartúni 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.