Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 30.10.1986, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 Sævar Jónsson Boltinn skaust í bleytunni Frá Quðjóni Amgrfmtsyni, fróttarhara Morgunblaðsins í Austur-Þýskalandi. „BOLTINN skaust I blautu gras- inu og allt í einu var maðurinn kominn einn innfyrir. Auðvitað átti hann ekki að geta það, og auðvitað var eitthvað að gœsl- I ~i unni á honum og varagœslunni, en svona er knattspyrnan," sagði Sævar Jónsson um markið í upp- hafi leiksins. Þjóðverjar harðir Frá Quðjónl Amgrímssyni, fróttarftara Morgunblaðsins f Austur-Þýskalandi. AUSTUR-Þjóðverjar léku mjög fast gegn íslendingum, sérstak- lega í fyrri hálfleik. Þá fengu fslendingar sextán aukaspyrnur, en Þjóðverjar eilefu. Fjórir leik- menn fengu gula spjaldið, Sævar, Ágúst Már, Pétur Ormslev og einn Þjóðverjanna. Sigur eftir 55 ára bið Frá Jóhanni Inga Gunnarssynl, frétta- manni Morgunblaðsins f V-Þýska- landi. AUSTURRÍKI sigraði Vestur- Þjóðverja, 4:1, í vináttulands- leik í knattspyrnu f Vínarborg f gærkvöldi. Þetta var í fyrsta sinn í 55 ár sem Austurríkis- menn sigra Vestur-Þjóðverja í landsleik í knattspyrnu. 55 þúsund áhorfendur fylgdust með leiknum sem fram fór nýjum knattspyrnuvelli og var fögnuður þeirra mikíll eins og gefur að skilja. Vestur-Þjóðverja réðu gangi leiksins fyrstu 55 mínúturnar en þá tóku heimamenn leikinn í sínar hendur. Polster skoraði fyrsta markið á 58. mín. úr víta- spyrnu, Rudi Völler jafnaði fyrir Þjóðverja stuttu seinna. Dóm- arinn sem var frá Ítalíu, dæmdi síðan aðra vítaspyrnu á Vest- ur-Þjóðverja og var hún mjög vafasöm. Polster skoraði af öryggi úr henni. Síðan bætti Kievast við tveimur mörkum við fyrir heimamenn áður en flaut- að var til leiksloka. ADN/simamynd • Rainer Ernst reynir hér markskot f leik Austur-Þýskalands og íslendinga f Karl Max Stadt f gærkvöldi. íslensku varnarmennirnir, Gunnar Gíslason og Sævar Jónsson eru til varnar. Úrslit leiksins verða að teljast sanngjörn miðað við gang leiksins. _ Slæm byrjun setti íslendinga útaf laginu — en sigur Austur-Þjóðverja var sanngjarn Frá GuAjóni Arngrfmssyni, fráttaritara Morgunblaósins f Austur-Þýskalandi. „VIÐ höfum sjaldan verið jafn svekktir eftir landsleik og núna. Það eru okkur hræðileg vonbrigði að hafa tapað hér, þetta er lið se.m við eigum að geta unnið á góðum degi,“ sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði fslenska landsliðsins eftir leikinn í Karl Marx Stadt í gærkvöldi. Engin óheppni — sagði Sigfrid Heid Frá Guðjóni Arngrímssyni, fróttaritara Morgunblaðsins f Austur-Þýskalandi. „NEI, við vorum ekki óheppnir að fá á okkur fyrsta markið, það kom eftir slæm varnarmistök. Ef lið á að eiga mögulaika f leik sem þessum verða leikmennirnir að halda einbeitingu sinni f nfutfu mínútur. Nokkurra sekúndna svefn nægir til að tapa leik,“ sagði Sigi Held, landliðsþjálfari. „Thom fékk tækifæri til að leggja boltann fyrir sig eftir þessa löngu sendingu og það ætti ekki að vera hægt í fandsleik. En þarna spilar inní aö íslensku varnarmennirnir hafa ekki leikið einn einasta leik í langan tíma og þó þeir hafi æft vel nægir það ekki. Það tók liðiö í heild allt of langan tíma að komast inn í leikinn. Síðara markið kom af því að við sóttum svo mjög, og ég áfellist ekki strákana þess vegna. Allir börðust vel í leiknum. En Austur- Þjóðverjar áttu sigurinn skilið, á því erenginn vafi,“ sagði Sigi Held. Evrópukeppnin í knattspyrnu: Jafntefli í Bern SVISS og Portúgal gerðu jafn- tefli, 1:1, f Evrópukeppni lands- liða f knattspyrnu f Bern í gærkvöldi. Þessi lið leika f 2. riðli. Sviss hafði forystu í hálfleik með marki Georges Bregy. Adao jafn- aði síðan fyrir Portúgal á síðustu mínútu leiksins. Undankeppni OL: Tékkar sigruðu TÉKKAR unnu Belga 2:0 í gærkvöldi í E-riðli undan- keppni Ólympíuleikanna í knattspyrnu 1988. Leikurinn fór fram í Prag að viðstöddum aðeins þúsund áhorfendum, sem sáu Peter Herda skora bæði mörkTékka. • Bemd Stange var ánægður með leik sinna manna. íslenska liðið tapaði 2—0 í hörð- um leik, eins og sjónvarpsáhorf- endur sáu í gær, var sá sigur fyllilega sanngjarn. Þjóðverjarnir sköpuðu sér mun fleiri færi en ís- lendingar, nýttu tvö þeirra og það er það sem skiptir öllu máli í knatt- spyrnu. En Atli hafði rétt fyrir sér að því leyti að Þjóðverjarnir fengu óska- byrjun, skoruðu strax á 4. mín. Markið kom eftir að íslendingar höfðu náð efnilegri sókn. Boltinn barst fyrir mark Þjóðverja, en rétt utan við markteig var hreinsað frá, sparkað hátt í loft upp og alveg yfir á vallarhelming íslendinga. Eitt augnablik frusu ísiensku varnar- mennirnir, það var nóg til þess að langbesti leikmaður Þjóðverja, Andreas Thom, gat stungið sér á milli þeirra, hann vann kapphlaupið og renndi boltanum af öryggi fram- hjá Bjarna í markinu. íslendingar höfðu ætlað leiknum að þróast öðruvísi. Hugmyndin var að leika stífan varnarleik framanaf, halda hreinu og setja þar með pressu á Austur-Þjóðverja, það gæfi tækifæri til skyndisókna. Eftir markið þurfti íslenska liðið að sjálf- sögðu að leggja áherslu á að sækja. En Þjóðverjarnir gáfu á sér fá færi, þeir voru stöðugt ógnandi og Bjarni Sigurðsson þurfti hvað eftir annað að verja þrumuskot þeirra. Upp úr miðjum síðari hálfleik hafði íslenska liðið hins vegar náð góðum tökum á miðvellinum og þá fengum við okkar hættulegustu færi, Sævar náði ekki að skjóta á markteig eftir aukaspyrnu, og Ómar skaut yfir úr dauðafæri á vítapunkti. Á síðustu mínútu, þegar íslenska liðið hafði ailan hugann við sóknina, tryggðu Þjóðverjar sér sigurinn. Andreas Thom lék lag- lega inn í teiginn vinstra megin, gaf lágan bolta fyrir og Kirsten gat ekki annað en skorað að tveggja metra færi. Thom var bestur Þjóðverja í leiknum og besti maður vallarins. Geysilega leikinn og skemmtileg- ur. Atli, Pétur, Arnór og Ómar að ógleymdum Bjarna í markinu stóðu sig best íslendinga. En leikurinn í heild verður varla eftirminnilegur. Islenska liðið hefur ekki efni á því í leik sem þessum að vera án þriggja sinna bestu manna, Ás- geirs, Lárusar og Péturs Péturs- sonar. Erfiður en góður leikur — sagði Bernd Strange Frá Guðjóni Arngrímssyni, fróttaritara Morgunblaðsins f Austur-Þýskalandi. „VIÐ þurftum að hafa mikiö fyrir þessum sigri. Slakur árangur undanfarið gerði þaö að verkum að við lékum undir miklum þrýst- ingi. Sem betur fer skoruðum við f upphafi og þá lótti mór,“ sagði Bernd Strange, landsliðsþjálfari Austur-Þjóðverja, í samtali við Morgunblaðið. „Við fundum vel fyrir islending- um og við álítum frammistöðu okkar hér mjög góða. Ég er líka sérlega þakklátur þeim 18 þúsund áhorfendum sem hvöttu okkur vel. Leikur Andreas Thom í kvöld var á heimsmælikvarða og ef við hefð- um þrjá til fjóra slíka leikmenn þá væri austur-þýsk knattspyrna ekki í vanda. Mér þóttu Atli Eðvaldsson og Arnór Guðjohnsen bestu leikmenn íslenska liðsins og fyrir þeim þurft- um við mest að hafa. Einnig var Pétur Ormslev góður í upphafi," sagði Bernd Strange. 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.