Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
63
• KHstján Sigmundsson varði einstaklega glœsilega í gœrkvöldi en því miður dugði það ekki. Hér ver hann frá Borchardt af línunni. Morgunblaðið/Einar Falur
Grátlegar lokamínútur
— og naumt tap gegn Austur-Þjóðverjum þrátt fyrir stórleik Kristjáns
LOKAMÍNÚTURNAR í landsleik íslands og Austur-Þýskaiands í gœr-
kvöldi munu eflaust lifa lengi í minningunni -en því miður ekki vegna
þess hversu góðar þœr voru. íslenska landsliðið í handknattleik tap-
aði þá niður unnum leik. Staðan var 20:17 þegar 2 mínútur voru til
leiksloka en á þessunt tíma tókst þeim þýsku að skora fjögur mörk
og unnu leikinn 20:21. Hreint ótrúlegt og mjög svekkjandi fyrir lands-
liðið í heild, áhorfendur og ekki síst Kristján Sigmundsson sem sýndi
hvers hann er megnugur í gœrkvöldi. Markvarsla hans var eins og
hún geríst best f heiminum.
Þýskir komust 2:0 yfir gegn
rauðklæddum íslendingum strax á
fyrstu mínútum leiksins eri okkur
tókst að jafna 3:3. Jafnt var á flest-
um tölum þar til þeir þýsku náðu
7:10 forystu er leikið haföi verið í
17 mínútur.
Síöustu mínútur síðari hálfleiks
héngu Þjóðverjar á knettinum í um
5 mínútur án þess að dæmd væri
á þá töf! Ekkert mark var skorað
síðustu 6 mínútur fyrri hálfleiksins
og það var ekki fyrr en á þriðju
mínútu þess síðari sem okkurtókst
að jafna 12:12. Staðan í leikhléi
var 11:12.
Þorgils Óttar fór á kostum í
síðari hálfleik og skoraði þá fimm
mörk af línunni. Greinilega í miklu
formi strákurinn. ísland komst
16:13 yfir með góðum leik en síöan
jafna þeir þýsku 16:16 en okkar
mönnum tókst að breyta stöðunni
í 20:17 við gífurleg fagnaðarlæti
áhorfenda.
Það var ekki síst rosaleg
markvarsla Kristjáns sem skóp
þennan mun. Á stuttum tíma varði
hann sjö skot. Eitt víti, þrjú línu-
skot og þrjú skot úr hraðaupp-
hlaupum þar sem hann var einn á
móti einum! Vítakastið varði hann
með efri vörinni og nefinu og verð-
ur eflaust bólginn næstu daga.
Hann vankaðist aðeins en mátti
þó ekki vera að því að fara útaf
og það kunnu áhorfendur að meta.
Hinum sorglega lokakafla hefur
þegar verið lýst en því má þó
bæta viö að sóknarleikurinn á
þessum tíma var hryllilegur. Mikið
óðagot var á leikmönnum og
ótímabær skot, sérstakelga hjá
Sigurði Gunnarssyni, gerðu það
að verkum að Þjóverjar náðu að
vinna leik sem ekki átti að vera
hægt að tapa. Þeir léku maður á
mann út um allan völl eftir að þeir
skoruðu sitt 18. mark og 93 sek-
úndur voru til leiksloka. Þetta gekk
upp hjá þeim og trúlega betur en
þeir höfðu búist við.
Leikur íslands í tölum:
Kristján stórkostlegur
Kristján Sigmundsson varði
hreint stórkostlega og sýndi mark-
vörslu eins og hún gerist best.
Hann lék síðustu 40 mínúturnar
og varði alls 13 skot, þar af 8 af
línu og eitt vítaskot.
Þorgils Óttar Mathiesen skor-
aði 6 mörk í 8 skottilraunum, en
markvörðurinn varði 2. Fyrirliðinn
átti eina sendingu, sem gaf mark.
Sigurður Gunnarsson átti 17
skot í leiknum, skoraði 6 mörk og
þar af 3 úr vítaskotum. Markvörð-
urinn varði 4 skot frá Sigurði,
vörnin 4, en 3 misstu marks. Sig-
urður glataði knettinum einu sinni,
átti 2 misheppnaðar sendingar, en
4 góðar sendingar gáfu mörk.
Krístján Arason skoraði 4 mörk
í 8 tilraunum, en Jörg Hermann
varði 4 skot. Þrjár góðar sendingar
frá Kristjáni gáfu mörk, en hann
átti eina misheppnaða sendingu.
Geir Sveinsson skaut einu sinni
og skoraöi, en missti knöttinn einu
sinni í hendur andstæðinganna.
Valdimar Grímsson var meö
100% skotnýtingu og skoraði eitt
mark. 2 góðar sendingar hans
gófu mörk, hann „stal“ knettinum
einu sinni, en missti knöttinn einn-
ig einu sinni og átti 2 misheppnað-
ar sendingar.
Jakob Sigurðsson skaut þrisvar
að marki, lét verja hjá sér tvisvar,
en skoraði eitt mark.
Páll Ólafsson skoraði eitt mark
í 6 tilraunum. Hermann varði 3
skot, vörnin eitt og eitt missti
marks. Páll „stal“ knettinum 4
sinnum og átti eina góða send-
ingu, sem gaf mark.
Guðmundur Guðmundsson lét
markvörðinn verja eina skotið, en
hann átti eina góða sendingu, sem
gaf mark, og „stal“ knettinum einu
sinni.
Júlfus Jónasson skaut einu sinni
í stöng og vörnin varði einu sinni
frá honum. Hann „stal“ knettinum
einu sinni, en átti 2 misheppnaðar
sendingar.
Einar Þorvarðarson varði alls 5
skot, þar af tvö af línu.
Góður leikur
Leikur íslenska liðsins var góður
mest allann tímann og mjög góður
á stundum. Varnarleikurinn var
góður en þó komu tímabil, sem
betur fer stutt, þar sem menn voru
ekki nógu samtaka í vörninni.
Markvarslan hjá Kristjáni verður
lengi í minnum höfð. Hún var í einu
orði sagt: stórkostlegl
Sóknarleikurinn var lengst af
góður. Það var ekki fyrr en síðustu
mínúturnar sem allt fór í baklás.
Páll lék á miðjunni framan af en
varð að fara útaf i fyrri hálfleik en
kom inná aftur eftir leikhlé og stóð
sig vel. Sigurður Gunnarsson var
allt í öllu og átti mjög góðan leik
-ef undan eru skyldar síðustu tíu
mínúturnar. Sorglegt fyrir hann
hvernig leikurinn fór þar sem hann
hafði ieikiö vel en tapaði síðan
leiknum „upp á mitt einsdæmi",
eins og hann orðaði það sjálfur
eftir leikinn.
Kristján Arason var sterkur,
bæði í sókn og vörn, Þorgils Óttar
lék vel í vörninni og frábær í sókn-
inni í síðari hálfleik. Enginn átti
dapran leik að þessu sinni en þó
vantaði meiri ógnun í hornunum.
Guðmundur var ágætur í vinstra
horninu en varð að fara útaf um
miðjan síðari hálfleik með löngu-
töng úr liði. Valdimar var alls ekki
nógu ógnandi í hinu horninu.
Júlíus lék vel í vörninni og hann
á eftir að verða enn betri eftir því
sem árin líða. Jakob kom inná fyrir
Guðmund í lokin og stóð sig vel.
Einar byrjaði í markinu en það
gekk ekki upp hjó honum að þessu
sinni og Kristján tók stöðu hans
um miðjan fyrri háleikinn. Héðinn
lék lítið með en Geir Sveinsson
spjaraði sig vel í vörninni.
Það var geysileg barátta í leik-
mönnum islands í þessum leik og
allir gerðu sitt besta. Leikkerfi
gengu vel upp og alit útlit fyrir sig-
ur eins og áður segir. Fallegar
línusendingar frá Sigurði, Kristjáni,
Páli og Valdimar og reglulega
skemmtilegur leikur. Allir leikmenn
liösins voru greinilega ákveðnir í
að vinna þennan leik, en...
íslensku leikmennirnir voru aldr-—
ei reknir af leikvelli en þeir þýsku
í fjórar mínútur. Dómarar voru
þeir Broman og Blademo og frá
Svíþjóð og voru þeir okkur frekar
hliðhollir.
Mörk fSLANDS: Þorglls Óttar Mathies-
en 6, Siguröur Gunnarsson 6/3, Kristjðn
Arason 4, Valdimar Grímsson, Páll Ólafs-
son, Geir Sveinsson og Jakob Sigurðsson
eitt mark hver.
Mörk A-ÞÝSKALANDS: Borchardt 6/1.
Wahl 4, Wiegert 3, Schnell 3, Winselmann
2, Hahn 2, Dreyer 1.
1