Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 64

Morgunblaðið - 30.10.1986, Side 64
SEGÐU [RNARHÓLL PEGAR EERÐ ÚTAÐ BORÐA ----SÍMI18833--- ffjgmtfrlitfetfe STERKTKDRT FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Byggingakostnaður nýju mjólkur- stöðvarinnar: Hækkar mjólkurverð -vegna aukins fjár- magnskostnaðar? STJÓRNENDUR Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík geta ekki gefið ákveðin svör við því hvaða áhrif bygging- arkostnaður nýju mjólkur- stöðvarinnar á Bitruhálsi, sem vígð var á laugardag, muni hafa á mjólkurverðið. Helst er á þeim að skilja að útsöluverð mjólkur þurfi að • hækka vegna aukins fjár- magnskostnaður í vinnslulið verðlagningarinnar. Á blaðamannafundi sem hald- inn var á Bitruhálsi vegna vígslunnar á laugardag spurði blaðamaður Morgunblaðsins um áhrif nýbyggingarinnar á verðið. Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri Mjólkursamsölunnar sagði að of snemmt væri að fullyrða um það. Flutt hefði verið inn í húsið rétt áður en sumarleyfi starfsfólks hófust í vor og því hefðu hagræðingarverkefni orð- ið að bíða. Því væri ekki ljóst hvað hagræðingin skilaði mikilli Iækkun rekstrarkostnaðar. Hins vegar væri það ljóst að fjár- magnskostnaður fyrirtækisins stórhækkaði, en það væri von manna að hann hefði sem minnst áhrif á mjólkurverðið. Páll Torfi Önundarson læknir: Ekki þörf á nýjum lækn- um næstu 10-15 árin 290 læknar við sémám erlendis og 700 starfandi hér heima ÞAÐ er ljóst að mikið of- framboð verður af íslensk- um læknum um árabil segir í grein Páls Torfa Önundar- sonar um atvinnuhorfur lækna hér á landi fram til ársins 2010 sem birt er í Morgunblaðinu í dag. í __greininni segir einnig að fullyrða megi að næstu 10—15 árin verði ekki beinlínis þörf á að útskrifa lækna frá læknadeildinni til að fullnægja vöntun á lækn- um. Verður ódýrast og auðveldast að leita til þeirra lækna sem þegar eru fyrir hendi í stað þess að sóa mannafla og fjárfestingu eins og gert er nú. Gagnrýnir Páll Torfi andvara- leysi íslenskra lækna og stjóm- valda, hvað atvinnuhorfur lækna varðar og segir að nú þegar starfi ,>jjtnargir læknar á erlendri grund að loknu sémámi, þar sem vinnu sé ekki að fá á Fróni. Hann segir að nú séu 290 læknar við sémám erlendis, og eigi sú tala eftir að hækka mjög á næstu ámm. Páli Torfí gagnrýnir ennfremur fram- tíðarspá læknafélaganna um atvinnuhorfur lækna á íslandi, og segir hana vera bjartsýnisspá. Páll Torfí segir að í dag séu 700 læknar starfandi hér á landi og að ekki sé hægt að gera ráð fyrir að á næstu 5—6 árum losni 300 stöður lækna hér heima, fyrir þá sem eru við sémám erlendis. Þá segir hann að ekki hafí verið reiknað með þeim líklega 150 læknum sem fari til sémáms er- lendis á næstu 10 ámm, af þeim 360 sem að líkindum útskrifast á því tímabili. _ Páll Torfí fullyrðir að mikill Qöldi læknanema á undafömum árum hefði farið í annað nám, hefðu þeir við upphaf námsins haft rökstudda leiðsögn um at- vinnuhorfur að námi loknu. Leggur hann til að varaforði lækna verði nýttur næstu 10—15 árin og að starfsemi læknadeildar Háskóla íslands verði í lágmarki, þannig að ekki verði útskrifaðir nema 5—10 læknar árlega. Sjá nánar grein eftir Pál Torfa Onundarson á miðopnu. Morgunblaðið/Einar Falur Krakkamir, sem staddir voru á annarri hæð hússins og i risi þegar viðvðrunarbjallan hringdi, urðu að renna sér niður brunarennibraut með aðstoð kennara sinna 120 böm útá tæpri 1V2 mínútu NEMENDUR Vesturbæjarskóla tóku þátt í árlegri brunaæfingu í gærmorgun og tókst börnunum að koma sér út úr skólanum á einni minútu og tuttugu sekúndum. Vesturbæjarskólinn var byggður fyrir aldamót, árið 1898. Skól- inn hefur starfað í húsinu síðan 1958, en brýn þörf er á nýju kennsluhúsnæði, að sögn skólastjórans, Kristínar G. Andrésdóttur. Davíð Oddsson, borgarstjóri, hefur gefíð vilyrði sitt fyrir nýju skólahúsnæði haustið 1988 og mun Skólamálaráð beita sér fyrir því að það loforð verði efnt, að sögn Kristínar. Sjá frásögn á bls. 34 Álafoss hf: Peysur úr ís- lensku ullar- bandi prjón- aðar í Kína ÁLAFOSS hf. ætlar að senda til Kina ullarband og láta pijóna úr þeim hand- pijónapeysur í tilrauna- skyni. Kostnaður við pjónaskap við hveija peysu er fjórfalt til fímm- falt lægri í Kína en hér á landi. Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Álafoss segir að handbragð í kínverskum pijónaverksmiðjum, sem hann hefur skoðað, sé með ágætum. Ingjaldur var staddur í Kína með íslensku viðskipta- sendinefndinni. Ef tilraunin tekst vel kemur til álita að Álafoss láti pijóna í Kína peysur sem fara á erlendan markað, vegna þess að vinnu- laun eru þar mjög lág og framleiðslan því mjög hagkvæm. Ingjaldur segist ekki búast við að þetta hafí teljandi áhrif fyrir íslenskar pijónakonur. Sjá nánar viðskiptablað Bl. Snjóflóð við Strákagöng TVÖ lítil snjóflóð féllu í gær um klukkan 20 Siglufjarðar- megin við Strákagöng. Fyrst eftir að snjóflóðin féllu var talin hætta á að fleiri fljóð féllu og var send út viðvörun þess vegna. Frost fór harðnandi í gær- kveldi og var vonast til að við það drægi úr snjóflóðahættu. Engin óhöpp urðu við þessi snjó- flóð. Bandaríkjamarkaður: Hækkun á verði fisk- afurða er allt að 47% MIKLAR verðhækkanir hafa orðið á íslenskum fiskafurðum á Bandarfkjamarkaði það sem af er þessu ári. Má i því sambandi nefna, að grálúðubiokkin hefur hækkað um 46,2% í dollurum talið frá því í janúar siðastliðnum og ufsablokkin um 44,6% á sama tíma. Aðrar fisktegundir hafa hækkað minna þótt þar sé einnig um verulegar hækkanir að ræða. Þannig hefur þorskblokk og ýsublokk hækkað um 15,4% og þorskflök á bilinu 10% til 27%, en verð þeirra er misjafnt eftir pakkningum. Að sögn Eysteins Helgasonar, forstjóra „Iceland Seafood Corpor- ation“, dótturfyrirtækis SÍS í Bandaríkjunum og Magnúsar Gúst- afssonar, forstjóra „Coldwater", sölufélags Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, hafa samsvarandi verðhækkanir á fiskafurðum ekki áður orðið á svo skömmum tíma í Bandaríkjunum og má rekja ástæð- una til aukinnar eftirspumar og þó einkum minnkandi framboðs á físki á Bandaríkjamarkaði. Hækkanir á einstökum fiskteg- undum á Bandaríkjamarkaði það sem af er árinu eru sem hér segir: Þorskblokk 15,4%, ýsuflök 9,7%, ýsublokk 15,4%, steinbítsflök 12,2%, roðlaus karfí 32.2%, karfí með roði 25%, ufsaflök 34,7%, ufsablokk 44,6%, lúðuflök 10%, grá- lúðuflök 25,1% og grálúðublokk 46,2%. Hækkanir á þorskflökum eru mismunandi eftir pakkningum. Magnús Gústafsson sagði að hér væri um umtalsverðar hækkanir að ræða, ekki síst í ljósi þess, að mat- væli hefðu hækkað tiltölulega lítið í verði í Bandaríkjunum að undan- fömu. „Við skulum vona að ekki hafí verið farið of geyst í þessar hækkanir og að þær muni halda þegar fram í sækir", sagði Magnús. Eysteinn Helgason sagði að þótt þessi þróun væri vissulega ánægju- leg hefðu menn þó af því vissar áhyggjur að þessar verðhækkanir gætu leytt til samdráttar í fisk- neyslu og því haft öfug áhrif þegar til lengri tíma væri litið. Hugsan- legt væri, að við endurmat veitinga- húsanna á matseðlum, kæmi í ljós að fiskur væri orðin of dýr miðað við aðrar fæðutegundir og þvi gæti svo farið að fiskur hyrfí af matseðl- um veitingahúsanna ef sú yrði niðurstaðan. „Þótt þessar verð- hækkanir hafí mætt lítilli mót- spymu enn sem komið er eigum við kannski eftir að sjá afleiðingar þeirra seinna, í lok þessa árs eða í byijun hins næsta, þótt ekki sé hægt að segja neitt um það á þessu stigi og við vonum auðvitað það besta", sagði Eysteinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.