Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
B 9
þegar slakað var á klónni og gömlu
harðlínumennimir komust í varnar-
stöðu, og eftirmaður hans var
valinn Imre Nagy, einn fárra and-
stæðinga hans sem voru enn á lífí.
Nagy aðhylltist svipaðar skoðan-
ir og Georgi Malenkov, hinn nýi
forsætis- ráðherra Sovétríkjanna,
vildi að neyzluvöruframleiðsla
gengi fyrir þungaiðnaði og reyndi
að taka upp sveigjanlegri stefnu í
efnahagsmálum. Það háði hins veg-
ar Nagy að Rakosi hélt stöðu sinni
sem framkvæmdastjóri flokksins og
í apríl 1955 var hann sakaður um
“hægrivillu" og sviptur starfí for-
sætisráðherra, stöðum sínum í
flokknum og flokksskírteini sínu.
Rakosi varð aftur forsætisráðherra
og gegndi því starfí þar til í júlí
1956.
Andstaða Ungveija gegn heljar-
tökum Rússa harðnaði þegar
Krúsjeff fordæmdi Stalín á 20. þingi
sovézka kommúnistaflokksins í fe-
brúar 1956. Kröfur ungverskra
verkamanna og menntamanna urðu
háværari. Verkamennimir kröfðust
þess að kjör þeirra yrðu bætt og
að áhrif þeirra á stjóm verksmiðja
þeirra yrði aukin með með stofnun
verkamannaráða. Menntamenn
mættu á fundi í nýstofnuðum “Pe-
töfí- hring“, sem var kenndur við
eina af hetjum ungversku byltingar-
innar 1848. Andófsmennimir nutu
góðs af því að Tito Júgóslavíufor-
seti hafði greinilega samúð með
þeim.
Vegna harðnandi gagnrýni á
Rakosi samþykktu Rússar brott-
vikningu hans í júlí 1956, skömmu
eftir að flokksblaðið “Fijáls þjóð“
(“Szabad Nep“) hafði snúizt gegn
honum, og skipun Gerös í hans stað,
en andófsöflunum og Tito var ekki
síður í nöp við hann. Hann reyndi
að streitast gegn kröfum Ungveija
um bætt kjör, meira málfrelsi og
aukin samskipti við vestræn ríki,
en með litlum árangri.
í október samþykkti ungverski
kommúnistaflokkurinn að Rajk
skyldi fá upp- reisn æm og þegar
lík hans var aftur borið til grafar
við hátíðlega athöfn var efnt til
almennra mótmæla gegn stalín-
isma.
NAGY TEKUR VIÐ
Þegar þær fréttir bárust 21.
október að Wladyslaw Gomulka,
“þjóðlegur kommún- isti“, væri aft-
ur kominn til valda í Póllandi var
það talið benda til þess að fijáls-
lyndari stefna yrði tekin upp í
Austur-Evrópu og Ungveijar fóru
að kreijast þess að Imre Nagy fv.
forsætisráðheiTa tæki aftur við
völdunum og ftjálsræði yrði aukið.
Nagy var aftur tekinn í flokkinn
og eftir víðtækar mótmæleaðgerðir
stúdenta og verkamanna gegn
stjóm Gerös varð hann forsætis-
ráðherra 24.október.
Valdataka Nagys vakti mikinn
fögnuð og leiddi til þess að þúsund-
ir pólitískra fanga voru látnir
lausir.. Blöðin fóru að birta ítar-
legri og nákvæmari fréttir af
innlendum og erlendum vettvangi,
rætt var um stofnun nýrra stjóm-
málaflokka og afnám alræðis
kommúnista og Qöldi Ungveija fékk
að fara úr landi.
Hefðu Rússar talið nauðsynlegt
að skerast í leikinn í Ungveijal-
andi, ef Nagy hefði látið við það
sitja að koma á takmörkuðum um-
bótum innanlands, aðallega í
efnahagsmálum, og ekki rejmt að
breyta utanríkisstefnunni?
Miðað við reynsluna af því sem
gerðist í Tékkóslóvakíu 12 árum
síðar má telja líklegt að Rússar
hefðu gripið til ihlutunar í Ungveij-
alandi, þótt Nagy hefði ekki gengið
eins langt og hann gerði. En íhlutun
Rússa í Ungveijalandi 1956 var
sennilega óhjákvæmileg vegna þess
að það virtist vilji meirihluta þjóðar-
innar að landið segði sig úr Varsjár-
bandalaginu og tæki upp hlutleysis-
stefnu. Síðan hafa Ungveijar
forðazt að hugsa um slíkt, en reynt
að auka svigrúm sitt að öðru leyti.
GH
óeirðimar, sem hafa geisað í Búda-
pest, koma fljótt á lögum og reglu
á ný og búa í haginn fyrir friðsam-
lega uppbyggingu."
Hegedus fór með skjalið til Nag-
ys, en hann lét ekki blekkjast. Hann
hafði samþykkt upphaflegu beiðn-
ina, þar sem hún virtist skynsamleg
eins og þá stóð á, en nú gegndi
öðm máli og hann neitaði að undir-
rita.
Hegediis gramdist þessi afstaða
Nagys og fannst hún “svívirðileg."
Hann undirritaði því skjalið sjálfur
og sendi það til sovézka sendiráðs-
ins.
“LANDSTJÓRI"
Andropov var háttsettur starfs-
maður leynilögreglunnar NKVD,
auk þess sem hann var sendiherra
Rússa. Hann talaði ágæta ung-
versku auk margra annarra tungu-
mála. Hann hafði verið í Búdapest
síðan 1953 og var að heita má land-
stjóri Rússa í Ungveijalandi þegar
uppreisnin var gerð.
En Andropov var talinn hlynntur
Ungveijum og gerði sér t.d. far um
að kynna sér skoðanir verkamanna.
Hann hafði lítið álit á Nagy og taldi
hann skorta “aga.“ Hann var dygg-
ur “kerfísmaður" eins og Kadar og
taldi völd skipta meira máli en hug-
sjónafræði.
Seinna viðurkenndi Andropov að
sér hefðu orðið á nokkur mistök í
Búdapest. “Það er ekki rétt að
kenna Ungveijum, hvað þá Vestur-
veldunum, um uppreisnina," sagði
hann.“Við Rússar berum hluta
ábyrgðarinnar." Rússar töldu upp-
reisnina glæp, en innrásina óhjá-
kvæmilega. Ungveijar voru á
þveröfugri skoðun.
GH
Heimild: David Irving, “Upris-
ing!“ (London, 1981).
Honda Prelude árg. 1987
Til sölu ókeyrð Honda Prelude árg. 1987, 5 gíra.
Helsti aukabúnaður er: vökva- og veltistýri, stereóút-
varp með kassettutæki, slökkvitæki, rafm. sóllúga,
Metalick lakk og rafmagnsloftnet.
Bíllinn selst á mjög góðum kjörum. Nánari upplýsing-
ar í símum 29440 og 18178.
ARCTICCAT
VÉLSLEDA-
SÝNING
I DAG 8. NÓVEMBER
Þá eru villikettirnir komnir á kreik og þeir hafa
hreiðrað um sig að Suðurlandsbraut 12, þar sem
þér gefst tækifæri til þess að skoða þessa frá-
bæru farkosti.
ARCTIC CAT:
ELTIGREárg. '87 ca. 94 hö . Kr. 418.500,-
PANTHERA árg. '87 ca. 72 hö v. m. rafstarti Kr. 362.000,-
COUGAR árg.’87 ca. 56 hö ....... Kr. 319.000,-
CHEETAH F/C árg.'87 ca. 56 hö .. Kr. 349.000,-
CHEETAH L/C árg.'87 ca. 94 hö .. Kr. 436.000,-
Verð til björgunarsveita:
CHEETAH F/C árg. '87 ca. 56 hö . Kr. 184.800,-
CHEETAH L/C árg.’87 ca. 94 hö .. Kr. 220.600,-
Ofangreint verð er miðað við gengi í dag og háð breytingum.
Bein lína í bíla- og vélsleðasöluna er 84060.
Vélsleðasalan
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
84060 £> 38600