Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 7

Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 B 7 hann hefur alltaf lifað í miklum vel- lystingum. Helzta athvarf hans var herragarðurinn Posada Aleman í bænum Armeníu, sem er höfuðstað- ur lítils kaffiræktarhéraðs, Quindio, skammt frá Medellín. Hann varð hálfgerð þjóðhetja í Armeníu, veitti stórfé til opinberra framkvæmda og útbýtti jafnvel hundrað dollara seðl- um á götunum. Á herragarðinum hafa farið fram margar „villtar" veizlur með þátttöku vinstúlkna, sem hafa verið sóttar flugleiðis til Bo- gota, Miami og Evrópu. Lehder hefur átt sér ýmsar og ólíkar hetjur. Ein þeirra er Adolf Hitler, sem hann hefur kallað „mesta stríðsmann sögunnar" og „merkan mann“. Hann hefur einnig gefið í skyn að helför Gyðinga hafi verið þjóðsaga. Árið 1980 stofnaði hann flokk nýfasista, sem hafði það aðal- mál á stefnuskrá sinni að framsals- samningnum við Bandaríkin yrði sagt upp. Ónnur heizta hetja Lehders er „bítillinn" John heitinn Lennon, sem hann hefur kallað „mætan mann og merkan söngvara." Hann fékk einn kunnasta myndhöggvara Kólombíu til að gera styttu af Lennon nöktum, með hjálm, gítar og kúlnafar í hjart- anu og hún stendur á torgi í Armeníu. Auk þess dáir hann Mus- solini og jafnvel marxistíska bylting- armenn. Eitt sinn reyndu skæruliðar hreyf- Robert L. Vesco: Hjálpaði Lehder að koma undir sig fótunum. Lehder á blaðamannafundi 1983: Kallaði kókaín „kjarnorkusprengju Rómönsku-Ameríku". bandarískri heimsvaldastefnu." „Fólkið og kerfið, sem j'tir undir og kennir kókaínneyzlu, stendur á bak við Playboy, Penthouse og High Ti- mes,“ sagði hann. Morð í Búdapest Á undanfömum árum hafa tugir dómara, lögreglumanna og blaða- manna fallið í baráttunni gegn eiturlyflasölu í Kólombíu. Þegar Virgilio Barco Vargas tók við emb- ætti forseta í ágúst í fyrra var dregið úr baráttunni. Hann virtist hafa meiri áhuga á því að leysa efnahags- vanda landsmanna, en á síðustu vikum hefur hann snúið við blaðinu. Nýlega ógilti hæstiréttur Kólombíu framsalssamninginn við Bandaríkin vegna tæknilegs atriðis, en Barco notaði vald sitt til að gera samninginn virkan á ný. Þegar kunnur blaðamaður, sem hafði gagnrýnt eiturlyfjasöluna, var veg- inn skömmu síðar, skar forsetinn upp herör gegn kókaín-mafiunni. Margir voru handteknir og talsvert magn af eiturlyfjum var gert upp- tækt. Síðan hefur Barco gefið út nokkrar tilskipanir, sem auðvelda yfírvöldum að beijast við eiturlyfja- kaupmenn. í síðasta mánuði var reynt að myrða sendiherra Kólombíu á Ung- veijalandi, Enrique Parejo González, sem stjómaði baráttunni gegn eitur- Hluti af kókafni, sem var gert upptækt í árás á kókaínverksmiðju ífrumskóginum skammt frá AP Florencia f Kólumbíu 1984. í m jr Æm 1 jKijr | ... r . . ..: M 1 yrði öruggur á bak við jámtjaldið, en tilræðið við hann virðist sýna að óvinir „eiturmafíunnar" séu hvergi óhultir. Hún hefur oft áður sent menn til annarra landa til að ná fram hefndum. Um svipað leyti var 331 lögreglu- foringi og embættismaður í Medellín sviptur störfum. Arásin á búgarð Lehders skammt frá Medellín var undirbúin í hálfan mánuð og látið var til skarar skriða þegar fréttist að þar stæði yfir kókaínveizla, en ekki fyrr en undir morgun þegar talið var víst að allir veizlugestir væru sokknir í vímu. Sveik ástkonan? Ýmsar getgátur em uppi um hver hafi veitt lögreglunni upplýsingar þær sem leiddu til handtöku Leh- ders. Sumir telja að þær hafi verið mnnar frá Luz Dary Valencia, 29 ára gamalli konu, sem mun vera heitbundin honum og hafði verið handtekin fyrir eiturlyflasölu. Hún mun vera bamshafandi af hans völd- um og hafa reiðzt þvi að hann hafi átt vingott við fleiri konur. Verið getur að hún hafi reynt að ná sam- komulagi um að losna úr haldi gegn því að ljóstra upp um hann. Tveimur dögum fyrir handtökuna sendi Lehder blaðamanni miða, þar sem hann kvartaði yfir fréttum um að hann hefði lengi verið í tygjum við þessa konu. Þótt hann sé frægur kvennabósi neitaði hann að hafa hitt hana og sagði að slík „fréttafölsun" væri „brot á mannréttindum." Orð- sendingunni lauk með slagorði Lennons: „elskumst, en heyjum ekki stríð.“ Aðrir telja að einn samstarfsmað- ur Lehders hafi komið upp um hann. Kólombíu, því að fangelsi þar hafa varla verið mannheld. En hann fékk ekki að hitta lögffæðinga sína og aðeins 11 tímum síðar var hann færður um borð í flugvél DEA, sem flaug með hann til Florida. Væntanleg réttarhöld gegn Leh- der í Bandaríkjunum munu verða yfirvöldum áhyggjuefni. Líklegt er talið að reynt verði að múta kvið- dómendum og dómurum í Miami, eða að hótað verði að myrða þá. Miami var miðstöð umsvifa Lehders í Bandaríkjunum og þar verður hann líklega leiddur fyrir rétt, Ottast hefndir Síðan Lehder var handtekinn hafa Bandaríkjamenn verið á verði um allan heim vegna hótana hans um hefndir. Gífurlegar öryggisráðstaf- anir hafa verið gerðar á Florida og óttazt er að útsendarar kókaín- mafíunnar muni ráðast á bandaríska erindreka og kólombíska stjóm- málamenn, sem báru ábyrgðina á framsali hans. Talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins sagði: „Við höfum fengið hótanir og tökum þær alvarlega." Miklar varúðarráðstafanir hafa einnig verið gerðar í Kólombíu af ótta við hefiidaraðgerðir. Viðbúnað- ur er við dómhús og dómarar hafa fengið sérstaka lífverði. Kólombía hefur verið kölluð „paradís glæpamanna" og 5,000 morð vom framin þar í fyrra. Me- dellín-hringurinn mun hafa staðið á bak við helming þessara morða og hann rekur skóla fyrir tilræðismenn. Fyrir tveimur árum voru böm banda- rískra stjómarerindreka í Bogota send heim af ótta við árásir leigu- morðingja. í síðasta mánuði var Morðið á Rodrigo Lara Bonllla 1985: AP Reynt var að myrða eftirmann hans í Búdapest. Styttan af Lennon, sem Lehder lét gera: „Mætur maður og merkur söngvari." ingarinnar „M-19“ að ræna Lehder, en tilraunin fór út um þúfur. Hann flýtti sér þá að stofna „dauðasveit“, sem myrti marga vinstrisinna, verkalýðsleiðtoga og minniháttar glæpamenn. Þó lýsti hann því yfir síðar að hann hefði áhuga á að stofna bandalag með skæruliðum, sem ráða nokkrum kókaínræktar- svæðum, og hann hefur kallað sig milligöngumann þeirra og kókaín- mafiunnar. Sannað hefur verið að hann hafí útvegað þeim vopn til að kynda undir átök og dreifa athygli lögreglunnar frá eiturlyfjasölunni. Lehder á búgarði sínum: Lifði ívellystingum. Eitt djarfasta tiltæki Lehders var að boða til blaðamannafundar í frumskóginum 1984 til að fordæma framsalssamninginn við Bandaríkin, Þar hvatti hann til þjóðaratkvæða- greiðslu „til að kanna hvort þjóðin vildi ráða örlögum sínum sjálf og veija fullveldi sitt gegn norður- amerískri heimsvaldastefnu." Á blaðamannafundi ári síðar kall- aði Lehder kókaín „kjamorku- sprengju Rómönsku Ameríku" og sagði að henni væri miðað á Banda- ríkin. Sjálfur kvaðst hann vera „yfirhershöfðingi í baráttunni gegn Lehder f vörzlu lögreglunnar: Hefndaraðgerðir? lyfjasölunni þegar hann var dómsmálaráðherra 1984-1986 og undirritaði tilskipun um að Lehder skyldi framseldur. Áður óþekkt sam- tök, „Heman Botero Moreno“-sveit- in, kváðust bera ábyrgðina á verknaðinum. Þau em kennd við fyrsta Kólombíumanninn, sem var framseldur til Bandaríkjanna fyrir eiturlyfjasmygl að skipun Parejos, sem hóf baráttu gegn eiturlyfja- kaupmönnum þegar fyrirrennari hans, Rodrigo Lara Bonilla, var myrtur 1984 Parejo var sendur til Búdapest á laun skömmu eftir að Barco tók við embætti, því að talið var að hann Hann var að nafninu til yfirmaður stjómmálahreyfingar hans og mun hafa horfið með flokkssjóðinn. Enn aðrir álíta að einn eða fleiri félagar Lehders í stjóm Medellfn- hringsins hafi Ijóstrað upp um hann. Þeir munu hafa talið að hann væri of valdagráðugur, léti ekki að stjóm og væri til trafala. Lehder lét engan bilbug á sér finna þegar hann var handtekinn. „Ég er þó að minnsta kosti enn í Kólombíu. Við skulum sjá hvað lög- fræðingar mínir geta gert,“ sagði hann. Hann hélt hann gæti áffýjað framsalsúrskurðinum og ekki yrði hægt að hafa hann í haldi í bandaríska sendiráðinu lokað um tíma þegar upp komst um samsærí um sprengjuárás á það. í Medellín er allt að 80% lögreglu- manna grunaðir um að starfa fyrir kókaín-mafíuna og yfir stendur rannsókn I málum tæplega 500 kólombískra lögerglumanna, sem eru grunaðir um aðild að kókaín- sölu. Herforingjar hafa verið tregir til að taka þátt í baráttunni gegn eiturlyflasölunni, þar sem þeir vita að eiturlyfj abarónamir eiga auðvelt með að múta illa launuðum her- mönnum og liðsforingjum. Þótt enginn telji að handtaka Lehders muni ein sér draga úr kók- aínsölunni til Bandaríkjanna hefur hún verið kölluð mesti sigurinn, sem unnizt hafi í baráttunni gegn eitur- lyfjum, og hún mun vafalaust auka baráttuþrek þeirra manna, sem taka þátt í henni í Kólombíu og Banda- ríkjunum. Eiturlyfjabarónamir hafa talið sig óhulta til þessa, en nú eru þeir það ekki lengur og eiga yfir höfði sér að verða framseldir til Bandaríkjanna. Kunnur kólombískur þingmaður hefur sagt að „það sem áður hafi verið talið óhugsandi hafí nú gerzt." „Fangavistin gefur mér færi á að hugsa rnálin," sagði Lehder þegar honum var stungið í fangelsi í New York fyrir um 20 árum og nú fær hann líklega nægan tíma til að hugsa það sem eftir er ævinnar. Bandarísk yfirvöld telja sig hafa nægar sannan- ir til að tryggja að hann verði bak við lás og slá ævilangt. GH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.