Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 5

Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 B 5 Símamynd/Pressens Bild Hans Holmér lögreglustjóri (t.v.) og Claes Zeime ríkissaksóknari tilkynna handtökur Kúrda, sem síðan var sleppt: 95% viss. semina ofurliði og ég get því ekki tekið á mig ábyrgð- ina á rannsókninni," sagði hann. "Leitin að morðingj- anum hefur siglt í strand. Síöasta mánuðinn hefur engin raunveruleg rann- sókn farið fram. Ég fer aldrei aftur í lögregluna." Holmér vísaði á bug allri gagnrýni og sagði að 170 vísbendingar hefðu verið kannaðar. Hvað sefn því líður er Ijóst að lögreglan verður að rannsaka málið aftur frá grunni. Nú vinna 70 lögreglumenn að rann- sókninni í stað 300 áður og þeir eru ráðþrota og vondaufir. Yfirmaður tæk- nideildar lögreglunnar, Wincent Lange, lætur þó ekki hugfallast. „Við eigum enn langt í land og margt hefur farið úrskeiðis, en þessi flókna gáta verður ráðin," segir hann. Pinochet? Hver kenningin hefur rekið aðra síðan rannsókn- Sfmamynd/AP Sáttasemjarinn Olof Palme (t.h.) ræðir við Ali Rajai forsætisráðherra (t.v.) í Teheran 1980: íranar vildu skaðabætur. Símamynd/PB Holmér með samsetta mynd af manni, sem á að hafa fylgt Palme eftir og njósnað um hann: leitin hefur siglt í strand. Símamynd/Reuter/PB Lögreglumaður með aðra af tveimur kúlum sem urðu Palme að bana: samsæris- kenningar. Kúrdar? Hans Holmér sagði þeg- ar hann lét af starfi lög- reglustjóra í Stokkhólmi í síðustu viku aö hugsanleg tengsl morðsins við Persa- flóastríðið hefðu þegar verið athuguð án árangurs, en viðurkenndi að síðan hefðu komiö fram „nokkur smáatriði". Eins árs þreyt- andi rannsókn 300 lög- reglumanna undir hans stjórn bar engan árangur. Þótt oft væri heitið „skjótri lausn" tókst ekki að finna morðingja, morðvopn eða morðástæðu. Eiginlega kannaði Holm- ér bara tvær vísbendingar. Sú fyrri varð til þess að lög- reglan handtók 32 ára gamlan kennara, Viktor Gunnarsson, sem stóð í tengslum við „Evrópska verkamannaflokkinn" (EAP), útibú hreyfingar bandaríska hægriöfga- mannsins Lyndon LaRou- che, en hann var fljótlega látinn laus vegna skorts á sönnunum. Samkvæmt hinni vísbendingunni stóðu að morðinu öfgasinnaðir flóttamenn úr bönnuðum verkamannaflokki Kúrda, PKK, og Holmér sagði oft að hann væri „95% viss um“ aö sú kenning væri rétt. Hann var gagnrýndur fyrir að einblína á Kúrdana og var svo ráðríkur að K.G. Svensson saksóknari sagði af sér í maí. Hann og eftir- maður hans, Magnus Sjöberg, töldu að Holmér væri ósamvinnuþýður og aö þeir ættu að stjórna rannsókninni lögum sam- kvæmt. Þótt rannsóknin gengi illa var Holmér kjör- inn „maður ársins," en vegna gagnrýni Sjöbergs neyddist hann að lokum til að segja af sér. Kunnur rithöfundur gagnrýndi Holmér fyrir að hafa engan áhuga á að upplýsa málið, yfirheyra ekki einu sinni nágranna Palmes og vanrækja fleiri atriði. Sá orðrómur komst á kreik að Holmér byggi yfir leynilegum upplýsing- um um ráðherra, m.a. um einkalíf Palmes, frá því hann var yfirmaður leyni- lögreglunnar (SÁPO), og notaði þær til að „beita stjórnina þrýstingi." í jan- úar voru 20 Kúrdar úr PKK handteknir, en ekkert nýtt kom fram og þeim var sleppt 10 tímum síðar. Lög- reglan viðurkenndi að hún væri komin í þrot, varð að athlægi og var í þokkabót sökuð um að „ofsækja inn- flytjendur". Carlsson forsætisráð- herra ákvað að rannsóknin skyldi endurskipulögð, tók málið af Holmér og fól Holger Romander, yfir- manni ríkislögreglunnar, og Sjöberg ríkissaksóknara að stjórna rannsókninni 4.febrúar sl. Holmér var beðinn að vinna áfram við rannsóknina sem „ráðu- nautur", en hann ákvað að hætta því starfi þegar hann sagði af sér sem lögreglu- stjóri Stokkhólms 5.marz. „Kerfið hefur borið skyn- in hófst og rannsóknar- nefnd þingsins telur eitt brýnasta verkefni sitt að kveða niður alls konar sögusagnir, sem hafa komizt á kreik. Margir telja skýringanna að leita innanlands og stað- hæfa m.a.: Svíar búsettir erlendis myrtu Palme til að mótmæla efnahagsstefnu hans. Hópur háttsettra embættismanna stóð á bak við morðið, þar sem þeir töldu utanríkisstefnu hans ógna öryggi Svíþjóðar. Hópar manna í lögreglunni stóðu að morðinu, þar sem þeir töldu hann veikja varn- arviðbúnað Svíþjóðar. Morðið átti að vera undan- fari stjórnarbyltingar, sem ekkert varð úr. Því hefur verið haldið fram að vestur-þýzku hryðjuverkasamtökin „Rauði herinn" (RAF) hafi myrt Palme til að hefna sín á Svíum fyrir að framselja RAF-liðsmanninn Siegfried Hausner 1975. Menn úr „Scientology" og fleiri trú- arhreyfingum hafa og verið taldir koma til greina. Samkvæmt einni kenn- ingunni lét Augusto Pino- chet forseti myrða Palme vegna ásakana hans um að stjórn Chile væri skipuð morðingjum og lýðræðis- óvinum. Þegar sænska lögreglan kannaði þetta rakst hún á nafn bandarísks borgara, Mic- hael Vernon Townleys, sem játaði 1976 að leyni- þjónusta Chile hefði falið honum að myrða Palme. Hann var dæmdur í Banda- ríkjunum 1976 fyrir að myrða vin Palmes og stuðningsmann Salvadors Allende, Orlando Letalier. í réttarhöldunum kom fram að Townley hefði einnig reynt að myrða út- laga frá Chile, Bernardo Leighton, og konu hans á götu í Róm. Sú tilraun minnti á morðið á Palme. Townley var látinn laus 1983 og hefur síðan sézt víða í Evrópu ásamt fulltrú- um króatískra, ítalskra og úkraínskra fasistahópa. Króatíska Ustasa-hreyfing- in og samtök nýnazista í Svíþjóð og víöar hafa verið bendluð við morðið. Ein síðasta kenningin er á þá leið að Palme hafi verið myrtur vegna þess að hann hafi stofnað öryggi sínu í hættu með ástarsam- bandi við Emmu Roth- schild, dóttur Rothschilds lávarðar, sem í vetur var hreinsaður af ásökunum um að hafa verið „fimmti maðurinn" í njósnahneyksl- um Breta eftir stríð. Ruyssenaar Bandaríkin og Sovétríkin hafa verið orðuð við morð- ið. Því er haldið fram að CIA hafi staðið á bak við morðið vegna herferðar Palmes gegn Víetnamstríð- inu, andstöðu hans við geimvarnaáætlun Reagans forseta og baráttu hans fyrir kjarnorkuvopnalaus- um Norðurlöndum. KGB á að hafa staðið á bak við morðið vegna þess að vet- urinn 1985-1986 gerði Palme sig líklegan til að verða við óskum Banda- ríkjamanna um að sjá til þess að vestrænn hátækni- búnaður bærist ekki til Sovétríkjanna um Svíþjóð. Kenning eftir Henk Ru- yssenaar um „samsæri hergagnaiðnaðarins og stjórnmálaafla í Svíþjóð" vakti nýlega mikla athygli. Hann sagði: „Morðið kom sér einkar vel fyrir iðnaðinn í Svíþjóð, heraflann, vopna- iðnaðinn, bankakerfið og alla, sem urðu fyrir barðinu á banni við sölu tæknibún- aðar." Ruyssenaar spurði hverjir hefðu hagnazt á morðinu og sannfærðist um að það heföi verið pólitískt. Bandaríkjamenn hafi verið orðnir tregir til að útvega hergagnaiðni Svía tæknilegar upplýsing- ar og hann hafi verið farinn að dragast aftur úr. Þess voru mörg dæmi að Rússar fengu bandarískan há- tæknibúnað frá Svíþjóð. Stjórn borgaraflokkanna leysti þennan vanda með viðræðum við Bandaríkja- menn, en Palme hætti þeim þegar hann tók við 1982 að sögn Ryussenaar. Hann hafi „viljað bjarga hlutleysi Svíþjóðar á sama tíma og aðrir reyndu að færa Svíþjóð nær NATO." Bandaríkjamenn vildu tryggja að Svíar seldu ekki Rússum bandarískan há- tæknibúnað og kröfðust þess að Svíar hlíttu sömu reglum og giltu í NATO- ríkjum. Palme vildi ekki samþykkja það vegna hlut- leysisstefnu Svía. Þremur mánuðum eftir morðið, l.júní 1986, undir- rituðu Bandaríkjamenn og Svíar samning, sem tryggði Bandaríkjamönnum eftirlit með sölu hátæknibúnaðar til Sovétríkjanna. Rúmu hálfu ári síðar varð Algern- on fv. aðmíráll fyrir járn- brautarlest í Stokkhólmi. „Palme og Algernon, sem vissu of mikið um þessi mál, eru látnir og hjá öllum er viðkvæðið: slíkt gerist ekki í Svíþjóð," segir Ruyss- enaar. KGB-morð? Sá galli er á kenningu Ruyssenaars að samning- urinn frá júní 1986 hafði verið gerður í janúar eða febrúar og Palme lagt blessun sína yfir hann 27. febrúar, daginn áður en hann var myrtur. Því má snúa dæminu viö og segja að það hafi verið Rússar, sem hafi hagnazt á morð- inu, þar sem Palme hafði gengið að kröfu Bandaríkja- manna. Hatrömm barátta flokksmálgagnsins „Pravda" gegn kröfum Bandaríkjamanna um eftir- lit með sölu hátæknibúnað- ar veturinn 1985-1986 gæti rennt stoðum undir slíka kenningu. „Pravda" skýrði ítarlega frá umræðum um rétt Bandaríkjamanna til eftir- lits með hátæknibúnaði í Svíþjóð og skrif blaðsins fólu í sér svofellda viðvörun til Svía: Samningur við Bandaríkin á þessu stigi yrði ógnun við hlutleysi Svíþjóðar. Þegar samning- urinn var samþykktur 27.febrúar hljóta Rússar að hafa séð að barátta þeirra hafði farið út um þúfur og herafli þeirra og iðnaður fengju ekki framar hátækni- búnað frá Svíþjóð. Daginn eftir var Palme myrtur. Fylgjendur KGB-kenn- ingarinnar segja það aðferð Rússa að reyna að sýna að tilslakanir gagnvart Banda- ríkjunum séu í raun „ógnun við hlutleysi Svíþjóðar." Þeir benda á tilraunir Rúss- ar tii að sýna að CIA hafi staðið bak við morðið, m.a. með sjónvarpsmynd, sem var sýnd í sænska sjón- varpinu I vikunni þrátt fyrir mótmæli Bandaríkjamanna og fékk slæma dóma. Þetta beri vott um að Rússar hafi slæma samvizku og hafi farið eins að þegar reynt var að myrða páfa á Péturstorgi 1981. Margir telja enn að KGB hafi skipu- lagt tilræðið í samvinnu viö búlgörsku leyniþjónustuna, sem hefur einnig verið grunuð um morðið á Palme. „10% líkur“ Richard Reeves sakar sænska embættismenn um að reyna að loka rann- sóknarleiðum, halda aftur af lögreglunni og villa um fyrir henni. Hann telur sænska framámenn hallast að því að morðið á Palme megi rekja til þeirrar ákvörðunar hans að stöðva vopnasendingar til írans og klaufalegra tilrauna hans til að stöðva Persaflóastríðið. Algernon hafi verið myrtur vegna vopnasölunnar og Palme-rannsóknarinnar. Nærtækast virðist að ætla að morðið gai átt ræt- ur að rekja tii „Svíagates", þótt einfaldasta kenningin, og líklega sú sem flestir vilja trúa, sé að morðinginn hafi verið geðsjúklingur. En Svíar virðast hafa fengið vantrú á öllum kenningum, sannfærzt um að gátan verði aldrei ráðin og telja það fyrir beztu. Reeves hefur eftir sænskum ráða- manni: „Við vitum að innan við 10% líkur eru á því að morðgátan verði ráðin. Vandi okkar felst ekki í því, heldur hinu, hvað sænska þjóðin telur að hafi gerzt og hvernig bregðast skuli við því. Núna viljum við það eitt að þessu Ijúki einhvern veginn. Við verðum að komast yfir þetta." Palme-málið minnir Svía á Kennedy-morðið, það hefur hvílt á þeim eins og mara og þeir vilja gleyma því sem fyrst. Lögreglan hefur hækícað verðlaunafé fyrir upplýsingar er geti leitt til handtöku úr 5 þús. s.kr. I fimm millj, (30 millj.ísl.kr.), en lögreglan stendur í sömu sporum og fyrst eftir morðið og morðinginn hef- ur eins árs forskot. Málið hefur komið Svíum til að skoða sig í nýju Ijósi. Þeir trúa því ekki lengur að þeir búi í landi, þar sem friður, skynsemi, hæfni og sóma- tilfinning sitji í öndvegi, og hafa sannfærzt um að þeir lifi í ótryggum heimi, þar sem allra veðra sé von. GH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.