Morgunblaðið - 01.05.1987, Page 1
88 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
97. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Vestur-Þýskaland:
Páfaheim-
sókn hafin
Köln, Reuter.
Jóhannes Páll páfi II kom í
gær til Vestur-Þýskalands í
fimm daga heimsókn. í ferðinni
mun páfi minnast sérstaklega
tveggja fórnarlamba nasismans.
Richard von Weizsácker, forseti,
tók á móti páfa við komuna til
Kölnar og bauð hann velkominn í
nafni allra Vestur-Þjóðveija. Er
þetta í annað sinn, sem páfi kemur
til Vestur-Þýskalands og 34. utan-
ferð hans síðan hann var kjörinn
árið 1979. Hápunktur ferðarinnar
verður blessun Edith Stein, konu
af gyðingaættum, sem tók ka-
þólska trú, gerðist nunna og lét
loks lífið í útrýmingarbúðunum í
Auschwitz, og föður Ruperts May-
er, sem var fangelsaður vegna
baráttunnar gegn nasistum.
Bretland:
Verður kos-
ið 11. júní?
London, Reuter.
BRESKIR fjölmiðlar fluttu
margir í gær þá frétt, að Marg-
aret Thatcher, forsætisráð-
herra, hefði ákveðið að efna til
kosninga 11. júní nk.
Nokkur dagblöð, t.d. Times,
Independent og Sun og báðar
helstu sjónvarpsstöðvamar kváð-
ust hafa það eftir ýmsum heimild-1
um, að kosningamar yrðu 11. júní
en embættismenn stjómarinnar
sögðu, að engin ákvörðun hefði
verið tekin enn. Að réttu lagi þurfa
kosningar ekki að verða fyrr en
9. júní 1988 en vegna góðrar út-
komu í skoðanakönnunum og
uppgangs í efnahagslífínu er næsta
víst, að stutt er í þær.
Morgunblaðið/ÓI. K. M.
1. maí—hátíðisdagur verkalýðsins
Stjórnir Bandaríkjanna og Japans:
Boða samræmdar aðgerðir í
gengis- og viðskiptamálum
Washington, Reuter.
STJÓRNIR Bandarikjanna og
Japans skýrðu i gær frá sam-
ræmdum aðgerðum til að stöðva
gengisfall dollarans. Felast þær
einkum i þvi að auka vaxtamuninn
í löndunum tveimur. Fulltrúa-
: ..................................... *
Reuter
AIDAILUXOR
Óperan Aida eftir Verdi verður á sunnudaginn flutt í útileikhúsi, sem
komið hefur verið upp í hinni fomfrægu borg faraóanna, Luxor, að
viðstöddu mörgu stórmenni, m.a. Karólínu prinsessu af Mónakó og
Hussein Jórdaníukonungi. Ekkert verður því sparað til öryggis-
gæslunnar og hér em egypskir lögreglumenn með hunda, sem em
þjálfaðir til að þefa uppi sprengjur.
deildin samþykkti í gær frumvarp,
sem skyldar forsetann til að gripa
til vemdartolla gagnvart þeim
ríkjum, sem selja Bandaríkjunum
miklu meira en þau kaupa af þeim.
Yasuhiro Nakasone, forsætisráð-
herra Japans, sem nú er í opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum, skýrði
Ronald Reagan forseta svo frá, að
hann hefði skipað japanska seðla-
bankanum og fjármálaráðuneytinu
að beita sér fyrir lækkun vaxta á
skammtímalánum. Paul Volcker,
bankastjóri bandaríska seðlabank-
ans, gaf á sama tíma út yfirlýsingu
um, að bankinn væri að vinna að því
að hækka vexti i Bandaríkjunum til
að styrkja dollarann og halda verð-
bólgu í skefjum.
Yfirlýsing Nakasones kom á óvart
og hefur henni verið vel tekið vestra.
Lægri vextir í Japan hleypa auknu
lífi í efnahagsstarfsemina þar í landi
og ýta undir meiri innflutning, m.a.
frá Bandaríkjunum.
Bandaríska fulltrúadeildin sam-
þykkti í gær með 290 atkvæðum
gegn 137 að skylda forsetann til að
setja vemdartolla á vörur frá þeim
ríkjum, sem hafa mjög hagstæðan
viðskiptajöfnuð við Bandaríkin. Re-
agan hafði hótað að beita neitunar-
valdi gegn frumvarpinu nema á því
yrðu gerðar verulegar breytingar.
Fer það nú fyrir öldungadeildina og
þykir víst, að þar verði það bæði
klippt og skorið.
Eins og fyrr segir ríkir ánægja
með þann árangur, sem virðist ætla
að verða af fundi þeirra Reagans og
Nakasones, en sumir frammámenn
í Bandaríkjunum segja sem svo, að
dag skuli að kveldi lofa, Japanir hafi
áður heitið ýmsu án þess að standa
við það.
Genf:
Samkomulag um að vínna
gegn eyðingu ósonlagsins
Genf, Reuter.
Visindamenn frá rúmlega 30 löndum hafa í meginatriðum náð sam-
komulagi um fyrstu aðgerðir til að draga úr efnamengun, sem haft
hefur alvarleg áhrif á ósonlagið um jörðu.
Mostafa Tolba, yfirmaður um-
hverfísvemdaráætlunar SÞ, kvaðst
vonast til, að unnt yrði að undirrita
samkomulagið á fundi i Montreal í
Kanada í september þótt enn væri
nokkur ágreiningur um framhaldsað-
gerðir.
Efnin, sem skaðanum valda, eru
t.d. notuð í úðabrúsum og ísskápum
og nú þegar hefur orðið vart við
eyður í ósonlaginu jrfír sumum
heimshlutum, t.d. suðurskautinu.
Ósonlagið hlífir jörðu við útfjólublá-
um geislum sólarinnar en vegna þess
hve það hefur minnkað er húð-
krabbamein orðið algengara en áður
var, jafnvel í ungu fólki og einkum
því, sem stundar mikil sólböð.
Gert er ráð fyrir, að árið 1992
verði búið að draga úr framleiðslu
efnanna um 20% frá því, sem nú er,
en mörgum umhverfisvemdarsam-
tökum finnst það alltof lítill árangur.
Bandarílqamenn bönnuðu þessi efni
fyrir tíu árum og Kanadamenn,
Nýsjálendingar og Norðurlandabúar
hafa staðið vel í stykkinu en það
sama verður ekki sagt um Evrópu-
bandalagsríkin 12. Þau hafa verið
dragbítur í þessu máli.