Morgunblaðið - 01.05.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Hagnaður af rekstri Slátur-
félagsins 27 milljónir kr.
RÚMLEGA 27 milljóna króna
hagnaður varð af rekstri Slátur-
félags Suðurlands á síðastliðnu
ári. Eru það mikið umskipti frá
árinu 1985, þegar 28 milljóna
króna tap varð af rekstrinum.
Heildarvelta fyrirtækisins á
síðasta ári var 2,5 milljarðar kr.,
hafði aukist um 21% frá árinu á
undan. Rekstrarhagnaðurinn er
þvi 1,1% af heildarveltu.
Þessar upplýsingar komu fram á
aðalfund Sláturfélagsins sem hald-
inn var í gær. í ræðum Sigurðar
Jónssonar á Kastalabrekku, form-
anns stjómar, og Jóns H. Bergs
forstjóra, kom fram að helstu
ástæður bættrar afkomu má rekja
Morgunblaðið/Einar Falur
Nokkrir af fulltrúum á 80 ára afmælisfundinum.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Skammt vestur af landinu er 998 milli-
bara djúp lægð sem þokast austsuðaustur. Yfir Grænlandi er 1035
millibara hæð einnig á hægri hreyfingu austsuðaustur. Milli íslands
og Noregs er önnur lægð, 992 millib. djúp, ó hreyfingu norðaustur.
SPÁ: Norðan- og norðaustanátt á landinu, víða stinningskaldi (6
vindstig). Él verður um allt norðanvert landið en yfirleitt bjart veð-
ur syðra. Hiti á bilinu 0 til 5 stig sunnanlands en um eða rétt undir
frostmarki fyrir norðan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR: Breytileg átt og fremur svalt. Dálítil él við norð-
austurströndina en víða léttskýjað annars staðar.
SUNNUDAGUR: Sunnan- og suðvestanátt og hlýnandi veður. Rign-
ing eða súld á suður- og vesturlandi en þurrt að mestu á norður-
og austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
A___
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / » Slydda
/ * /
* * *
# # * * Snjókoma
# * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V B
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—(* Skafrenningur
|~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kí. 12.00 ígær að ísl. tíma
hhi VBÖur
Akureyri 6 léttskýjað
Reykjavílc 1 haglél
Bergen 14 þokumóða
Helsinki 16 skýjað
Jan Mayen -4 alskýjað
Kaupmannah. 15 þokumóða
Narssarssuaq -1 léttskýjað
Nuuk -10 léttskýjað
Osló 13 þokumóða
Stokkhólmur 22 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Aigarve 22 skýjað
Amsterdam 19 skýjað
Aþena 13 skýjað
Barcelona 18 heiðskfrt
Beriín 24 léttskýjað
Chicago 4 léttskýjað
Glasgow vantar
Feneyjar 20 léttskýjað
Frankfurt 23 skýjað
Hamborg 22 skýjað
Las Palmas 22 léttskýjað
London 16 skýjað
LosAngeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 19 skýjað
Madrfd 21 léttskýjaö
Malaga 19 þokumóða
Mallorca 22 skýjað
Mlami 20 þokumóða
Montreal 4 rigning
NewYork 11 léttskýjað
Parfs 15 skúr
Róm 18 hélfskýjað
Vfn 20 léttskýjað
Washington 13 léttskýjað
Wlnnipeg 6 skúr
til hagræðingar og tækninýjunga
og hjaðnandi verðbólgu. Niðurstaða
efnahagsreiknings í árslok var
1.480 milljónir kr., þar af er eigið
fé 416 milljónir.
Á síðasta ári tók Sláturfélagið
þátt í stofnun verslunarinnar Nýi
bær við Eiðistorg. Fram kom í ræðu
Jóns að ýmsir jákvæðir hlutur voru
við rekstur nýju verslunarinnar,
sem er sjálfstætt hlutafélag, en þó
varð 7,2 milljóna króna halli af
rekstrinum þá þijá mánuði sem hún
var rekin á síðasta ári. Tapið sagði
hann að væri einkum vegna úreltra
vörubirgða sem yfirteknar voru, en
afskrifaðar um áramót.
Við upphaf fundarins minntist
formaður nokkurra félagsmanna og
starfsmanna sem látist hafa undan-
fama mánuði, meðal annars Gísla
Andréssonar á Hálsi, sem var
stjómarformaður frá árinu 1969
þar til hann lést í bílslysi fyrr á
þessu ári.
Sláturfélag Suðurlands varð 80
ára í byijun þessa árs. Sérmál þessa
Sigurður Jónsson á Kastala-
brekku, formaður Sláturfélags
Suðurlands.
afmælisfundar var „vöruþróun að
óskum neytenda". í gærkvöldi var
afmælishóf starfsmanna og aðal-
fundarfulltrúa á Broadway. Þar
vom ýmsir starfsmenn og félags-
menn heiðraðir.
Búnaðarbankinn:
Nýir útibússtjór-
ar í Garðabæ
og Grundarfirði
BÚNAÐARBANKINN hefur ráð-
ið tvo nýja útibússtjóra. Árni
Emilsson tekur við útibúinu í
Garðabær og Leifur H. Jósteins-
son i Grundarfirði.
Ámi Emilsson hefur verið útibús-
stjóri í Grundarfírði frá 1982, en
tók við nýja starfínu 21. apríl sl.
Forveri hans er Halldór Ólafsson,
sem veitt hefur útibúinu í Garðabær
forstöðu síðustu 10 ár. Ámi er
fæddur í Vestmannaeyjum árið
1943. Hann stundaði nám í íþrótta-
og verslunarskóla í Noregi og lauk
síðan prófí frá íþróttakennaraskóla
íslands 1963. Ámi hefur stundað
verslunar- og kennslustörf í Gmnd-
arfírði um langt skeið. Hann var
sveitarstjóri í 9 ár og sat í sveitar-
sjóm í 13 ár. Eiginkona hans er
Þómnn B. Sigurðardóttir.
Leifur H. Jósteinsson, sem tekur
við af Áma er fæddur árið 1940.
Að loknu námi stundaði hann
kennslustörf, _uns hann réðist til
Landsbanka íslands 1973. Leifur
hóf störf hjá Búnaðarbankanum
1978 og hefur m.a. verið skrifstofu-
stjóri í Garðabæ og Kópavogi.
Leifur tekur við starfí útibússtjóra
um miðjan þennan mánuð.
Reykjavík 1. maí:
Utifundir á Lækjartorgi
og Hallærisplaninu
HÁTÍÐAHÖLD 1. maí-nefndar
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík hefjast kl. 13.30 í dag
þegar safnast verður saman til
kröfugöngu frá Hlemmtorgi.
Göngunni lýkur á Lækjartorgi.
Þar verður efnt til útifundar sem
hefst klukkan 14.30. Ræðumenn
af hálfu Alþýðusambands ísiands
verða Þröstur Ólafsson starfs-
maður Dagsbrúnar og Hildur
Kjartansson varaformaður Iðju,
en af hálfu BSRB Haraldur
Hannesson formaður starfs-
mannafélags Reykjavíkurborg-
ar.
Á útifundinum mun Gunnar Eyj-
ólfsson leikari flytja ljóð og Kristinn
Sigmundsson baritonsöngvari kem-
ur fram. Samtímis fundinum á
Lækjartorgi verða Samtök kvenna
á vinnumarkaði með fund á Hallær-
isplaninu, undir yfírskriftinni
„Tökum ábyrgð á kjörum okkar,
sköpum nýtt verkalýðsafl". Þar
mun Guðlaug Teitsdóttir kennari
halda ræðu fyrir hönd samtakanna
og Bergljót Guðmundsdóttir fóstra
og Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði
ávarpa fundinn. Flokkurinn Lóum-
ar syngur vorljóð og dregið verður
í „Þjóðarlottó".
Að kvöldi 1. maí efna Samtök
kvenna á vinnumarkaði loks til
„Góðærisgleði" í Risinu á Hverfis-
götu 105. Skemmtunin stendur frá
kl. 21.00-03.00.