Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
LEITANDI
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Pjetur Hafstein Lárusson:
DAGGARDANS OG DARRAÐ-
AR. Ljóð. 72 bls. Almenna
bókafélagið. 1987.
Ætli Pjetur Hafstein Lárusson
teljist ekki enn til ungra skálda?
Að minnsta kosti sýnist hann gera
sér far um að vera dálítið óformleg-
ur, ungæðislegur. Heitið á bókinni
er lýsandi: Pjetur getur verið ljóð-
rænn. En hann á líka til að vera
nokkuð harður. Eða kannski réttara
sagt: væmnislaus. Ungur maður
má ekki vera með neina tilfinninga-
semi! Líkingar Pjeturs skírskota
stundum til hins óskáldlega,
nauðaómerkilega, hversdagslega.
Pjetur Hafstein Lárusson
Fremst í bókinni gefur hann til
kynna, svo dæmi sé tekið, að hann
ætli að opna hug sinn í ljóðunum,
veita lesandanum hlutdeild í því sem
inni fyrir býr. Og það orðar hann
á þennan hátt: »Hugvr minn stend-
ur þér opinn eins og / niðursuðudós,
aðeins ef þú smellir dósahnífnum /
á hvirfiiinn.« Að líkja skilningi les-
andans við dósahníf er hreint ekki
illa til fundið. Og víst munu tilfinn-
ingar skálds eiga sér upphaf og
endi í höfðinu þó gömlu skáldin
kenndu þær einatt við hjartað.
En Pjetur getur líka höfðað til
hjartans í gömlu merkingunni.
Næturljóð er milt og hljóðlátt þrátt
fyrir eina persónugervingu sem
undirritaður fellir sig ekki við:
Dimmt, svo dimmt
að máninn sekkur
í svört ský.
Kyrrt, svo kyrrt
að himinn blæs
ekki úr nös.
Hljótt, svo hljótt,
að nema má söng ljóðsins.
Ekki er ljóð þetta fullkomið. Það
svignar niður um miðjuna. Betra,
miklu betra er ljóðið Ferð. Það er
að minni hyggju dæmi þess hvemig
Pjetri tekst best upp:
Hæglátt berst Ijóðið
frá orði til orðs,
fetar einstigi
að dýpstu fylgsnum,
hægt - ofur hægt
til langrar dvalar.
Ljóð þetta getur sest að »til
langrar dvalar« með lesandanum.
Hér fylgist að líking og orðaval.
Skáldið situr á strák sínum. Og fáu
skeikar.
Pjetur skiptir þessari nýju bók
sinni í þrjá hluta. Síðastur er ljóða-
flokkurinn Myndheimar, ortur
undir hughrifum frá sýningu Eyj-
ólfs Einarssonar í Listmunahúsinu
1985. Ljóðin eru ekki í venjulegri
tölusettri röð heldur eru númer ljóð-
anna »í samræmi við sýningamúm-
er myndanna«. Aður hafa
myndlistarmenn, sumir hverjir, lagt
út af ljóðum skálda. Hér er því
dæmi snúið við. Skáld yrkir eftir
myndum.
Sýning Eyjólfs hefur veitt Fjetri
hollan innblástur. Sterkt er t.d.
myndmálið í þessu örstutta ljóði,
allt að því að gusti frá hálfrökkvuð-
um vindheimum eddukvæða:
Viðsjál eru veður litlu tré
þegar vindar slá sporðum
í svelgi næturinnar.
Annars staðar hvarfla fyrir aug-
um súrrealískar draumsýnir og er
eftirfarandi ljóð glöggt dæmi þess:
Hratt hleypur krossfiskur
að kastala þínum, bróðir.
ímynd þín splundrast af ótta
hvar hún stendur,
stendur á stalli,
stendur á háum stalli.
Hvað stoðar þig nú
hvít glufa í nóttinni?
Pjetur Hafstein Lárusson er enn
sem komið er óráðinn og leitandi.
í þeim skilningi er hann enn í ung-
skálda tölu. Ljóðlist hans sýnist
geta stefnt í hvaða átt sem er því
mörg eru veður í þessari bók. Skáld-
ið hefur ekki valið og hafnað með
hliðsjón af þeim margvíslegu áhrif-
um sem hingað til hefur gætt í
ljóðum hans.
FORN MENNING — FRABÆRAR BAÐSTRENDUR
TyRKBNd
5 dagar í Islanbul • 5 dagar í Cappadoce
2 dagar í Ankara • 7 dagar í Antalya
Fyrsta flokks hótel, hálft fæði allan tímann.
Tyrknesku- og íslenskumælandi fararstjóri.
A A ^
C*
• A A* A
Ferðin sem allir vilja komast í, því hún er gullmolinn í ferðavalinu.
Samstarf um kristi-
A. Ferdaskrifstofan
faiandi
Vesturgötu 5, Reykjavík sími 622420
Grunnmynd
VESTURBÆR
Nýtt skipulag
Nú er tækifærið að eignast
nýja íbúð við Grandaveg
2ja, 3ja og 4ra herb. lúxus íb
sem afh. tilb. u. tróv. og máln.
Með milliveggjum. Að utan
verður húslð fullfrág. og mál-
að. Lóð verður tyrfð. Ib. eru
með rúmgóðum svölum.
Sjónvarpshol og sórþvottahús
er í hverrl íb.
Mögul. er á að kaupa bílskúr.
Teikningar og byggingarlýsing liggja
frammi á fasteignasölunni.
2ja herb. 3ja herb. 4ra herb.
52,2 fm 101,8 fm 121,5 fm
kr. 2100 kr. 3275 kr. 3850
Afhending
sept.-des. 1987.
Stutt í verslanir
og skóla.
Verð á bílskúr kr. 530.000.
F
Aðeins 4 íb. eftir í þessu húsi.
Dsemi um grelðslukjör fyrlr þann sem hefur fullt lánsloforð.
2ja herb. 52,2 fm
Við undirskr. kaups. 200.000
Húsnaeðisstjórnarlán 1.500.000
Eftirst. gr. á 14 mán. 400.000
Pr. mán. 28.571
Samtals 2.100.000
3ja herb. 101,8 fm
Við undirskr. kaups.
Húsnæðisstjórnarlán
Eftirst. gr. á 18 mán.
Pr. mán.
Samtals
450.000
2.200.000
625.000
34.722
3.275.000
4ra herb. 121,5 fm
Við undirskr. kaups. 500.000
Húsnæðisstjórnarlán 2.400.000
Eftirst.gr. á 18mán. 950.000
Pr. mán. 52.777
Samtals 3.850.000
Byggingaraðili
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA & GUNNARS
Borgartúni 31. S. 20812 — 622991
Teiknlng: Kjartan Sveinsson.
6
Opið kl. 1-4
í dag
/5JkFASTEIGNASALAN
O FJÁRFESTING HF.
Tryggvagötu 26-101 Rvk. - S: 62-20-33
Löglræöingar: Pétur Þ6r Siguröaton hdi.,
JöninaBjartmarzhdl.
legt sjónvarpsefni
HÓPAR innan þjóðkirkjunnar,
Hvítasunnusöfnuðurinn, Vegur-
inn, Trú og líf, Krossinn og Ungt
fólk með hlutverk hafa ákveðið
að starfa saman að gerð sjón-
varpsþátta um kristilegt efni
fyrir sjónvarpsstöðvar.
Að sögn Guðna Einarssonar hjá
Ljósinu, félagi Hvítasunnumanna,
er undirbúningur þegar hafínn að
þáttum um lifandi trú. Aðallega
hefur verið unnið að efnisöflun og
handritagerð og eru myndatökur
hafnar. „Ég held að efnið sem við
erum með sé fyrst og fremst áhuga-
vert. Við munum beina augum
okkar að trúarreynslu fólks án þess
að vera að predikka yfír því heldur
sýna áhrif trúar á líf fjölmargra
íslendinga sem hafa upplifað lifandi
trú,“ sagði Guðni.
Þá hafa samtökin fest kaup á
erlendu bamaefni fyrir sjónvarp,
sem íslenskur texti verður talaður
inn á.
© 62-20-33
Stórglæsil. raðhús og parhús við Jöklafold í Grafar-
vogi. íb. ca 142 fm. Bílsk. innb. ca 35 fm. Afh. fokh.
eða lengra komin í okt. '87:
-p | 11 3 □□ fíTT T r 11 — " nn II II |
"Ö 0 I o ■'ð |
FASTEIGNASALAN
FJÁRFESTING HF.
Tryggvagötu 26 -101 Rvk. • S: 62-20-33
Lögfræóingar: Pótur Þór Sigurðsson hdl.,
Jónína Bjartmarz hdl.