Morgunblaðið - 01.05.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
15
Hver ný heimsreisa
Útsýnar er stórviðburður
HEIMSREISA VIII
Sannkölluð undur veraldar í
Austurstræti 17,
sími 26611.
Hong Kong — 2 dagar Splunkunýtt Holiday Inn eda Nikko
—í hinu glæsilega hótelhverfi Kowloon.
Kynnisferð um mestu verslunar- og viðskiptaborg Austurlanda
„Paradise of the Shoppers". Verðið er ótrúlegt, þótt ekki sé jafn
ódýrt og í vináttubúðum“ (Friendshipsstores) í Kína.
Pattaya — Thailand 8 dagar
Að lokinni hálfsmánaðar heimsókn til Kína
og dvöl í Hong Kong býðst svo sæluvika til
hvíldar og vellystinga á Royal Cliff hótelinu á
Pattaya í Thailandi, frægustu baðströnd Aust-
urlanda. Hægt er að framlengja dvöl f Hong
Kong eða Thailandi, áður en haldið er heim
með viðkomu í London.
Veljið „Silkileiðina"
með Heimsreisuklúbbi Útsýnar
á slóðir Marco Polo í Kína
2.-27. nóvember 1987.
Ekki hafa allir ráð á heimsreisu, en í Kínaferð hefur
enginn ráð á að nota annað en það besta til að tryggja
fullan árangurferðalagsins.
í Kína býr fjórðungur mannkyns, 1000 milljónir manna.
Þú veist ekki hvað veröldin er, fyrr en þú hefur séð Kína.
3000 ára samfelld saga og listir og einstök náttúrufeg-
urð blasa við augum.
Þú sérð allt það markverðasta og býrð á bestu gististöðum:
Peking (Bejing) — 4 dagar:
Great Wall Sheraton Hotel
Heimsókn í hallir keisaranna, „hina lokuðu borg“, „torg hins him-
neska friðar" Himnamusterið, sumarhallir keisaranna, dagsferð á
Kínamúrinn, mesta mannvirki jarðarinnar enn í dag og hið eina,
sem sést berum augum frá tunglinu o.m.fl.
Shanghai — 2 daaar HuaTingSheraton-Splunkunýtt
- Eitt glæsilegasta hótel heimsins.
Stærsta borg Kína, 12 millj., á bökkum Gulár. Kynnisferðir um
sögufræga miðstöð verslunar og viðskipta að fornu og nýju.
Xian — 2 dagar: Golden Flower- besta hótelið.
Ein sögufrægasta og merkasta borg Kína með minjum allt frá stein-
öld. Einn merkastiforgleifafundursögunnarerTerracotta-herinn,
hestar og hermenn í fullri líkamsstærð úr brenndum leir.
Guilin — 2 dagar Holiday Inn
Sigling á Li-ánni með útsýni yfir einhverja sérstæðustu náttúrufeg-
urð í heimi í línum og litum furðulandslags.
Guangzhow (Kanton) — 2 dagarr HoteiGarden
Ævintýri að búa á þessu glæsilega hóteli, mitt í einni mestu versl-
unarborg Kína. Kynnisferð. — Kínverska heimsreisuveislan verður
haldin hér.
Heimsreisur
Útsýnar
—ódýrustu
ferðalögin
miðað við
lengd og gæði.
Láttu ekki þetta heimsreisuævintýri ganga þér úr greipum
IMærri 10O oantanir hafa þegar borist.