Morgunblaðið - 01.05.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Hamsun ungur.
Karl Erik Harr —
landslagsskáldið
Okkur er sérstök ánægja að
bjóða háleyska myndlistarmann-
inn Karl Erik Harr velkominn til
landsins. Hann hefur túlkað betur
en aðrir það f norsku landslagi
og menningu sem best sýnir
skyldleikann við ísland. Um það
bil 40 mynda hans eru nú sýndar
í Norræna húsinu og síðan verða
þær sýndar á sýningu sem verður
send um landið.
Karl Erik Harr er fæddur í
Kvæfjord í Troms 1940. Hann
hlaut myndlistarmenntun sína við
Kunst og Hándverksskolen og
Statens Kunstakademi í Osló og
auk þess hefur hann oft dvalist
við nám á Ítalíu, í Frakklandi og
Hollandi.
Frá því Harr hélt fyrstu sýn-
•ingu sfna hefur hann sýnt í
flestum norskum bæjum og auk
þess oft í Svíþjóð og Danmörku.
Hann hefur skreytt margar opin-
berar byggingar svo sem kirkjur,
ráðhús, banka og hótel og fjöl-
mörg norsk og sænsk myndlistar-
söfn hafa keypt myndir hans.
Þess má einnig geta að Harr er
afkastamikill rithöfundur. Hann
hefur gefið út margar bækur og
gert marga sjónvarpsþætti.
Með þessari sýningu á mynd-
skreytingum við bækur Knuts
Hamsun fáum við í fyrsta skipti
að sjá list Karls Eriks Harr á Is-
landi. Myndimar gefa góða
hugmynd um grafíklistamanninn
í krambúðinni
hrifamyndum frá ströndum
Frakklands. Eins og þessir menn
hvikar Harr ekki frá því að mála
utandyra í leit sinni að því sem
hann sjálfur kallar „Norðurlands-
birtuna" sem ekki er það auðveld-
asta að ná. En með „nýþvegna
pensla, útsofinn hug og einn góð-
an veðurdag smellur þetta," eins
og hann segir í einni bók sinni.
„Þú ferð heim og í malpokanum
er lítill kafli úr miklu tónverki
Skaparans."
„Það raular tónn í huganum,
það streymir ljós á móti auganu,
maður finnur að eitthvað skijáfar
hið innra," sagði Knut Hamsun
um það að skrifa ljóð. Harr veitir
tilþrifamiklum háleyskum nátt-
úrustemmningum sínum ljóðræna
útrás í málverkum sem eru jafn
mikið mótaðar af tónlist og kvæði
Hamsuns. Mynd eftir Harr vekur
upp hljóma úr fúgum Bachs fyrir
eyrum manns en hann getur líka
málað hljóðlega. List málarans er
af sömu rótum runnin og list
skáldsins og spumingunni um að
hvers vegna hann hafi mynd-
skreytt ekki færri en sex bækur
Hamsuns svarar Hair þess vegna
stutt og laggott: „Ég gat ekki
stillt mig um það.“ Verkin sex
eru: Pan, Benónl og Rósa (í einu
bindi), Nóbelsverðlaunaskáldsag-
an Gróður jarðar, ljóðasafnið
Villikórinn og æskuverkið Bjer-
ger.
Oskar Vistdal
og teiknarann Harr, snjallasta
myndlistarmann Noregs í bóka-
skreytingum. Ekki eru síðri
stórfengleg málverk hans af töfr-
um ósnortinnar háleyskrar nátt-
úru.
Heimur Karls Eriks Harr er
strönd Norður-Noregs frá Há-
logalandi að Lófóten. Listamanns-
heimili hans er í gamla verslunar-
staðnum Kjerringay undir
voldugum tindum sem gnæfa eins
og dómkirkjutumar yfir skógana
og víðáttumikla móana út til hafs-
ins. Þetta háleyska landslag, sem
Knut Hamsun hefur gert ódauð-
legt í bókum sínum, gjörþekkir
Harr og gefur því slíka listræna
túlkun í verkum sínum að hann
skipar ekki aðeins sess sem einn
snjallasti málari Noregs heldur
hefur þjóðin tekið hann að hjarta
sínu þannig sem fáum listamönn-
um auðnast.
Myndefnin eru norður-norsk
náttúra og menning í fortíð og
nútíð. Það er mikilvægur þáttur
í myndlistarstefnu Harrs að
bregða upp liðinni tíð eins og um
heimildarmyndir væri að ræða.
Hann gerir nákvæma og trúverð-
uga grein fyrir hveijum mynd-
hlutæ bátum, byggingarlist,
húsaskipan innanstokks, áhöldum
og sérstaklega norður-norskum
náttúrumyndum. Hann hefur
auga sjómannsins fyrir siglingu
og sjólagi, virðingu handverks-
mannsins fyrir nákvæmni og
hæfileika listamannsins að skynja
heildarsýnina. Þessa sýn birtir
hann oft á fegraðan hátt en fyrst
og fremst á rökréttan og heil-
steyptan hátt, en þannig vill hann
gefa sem raunsannasta hugmynd
um sérkenni háleyskrar náttúru
og menningar.
Um fyrirmyndir sínar í listinni
segir Harr að „könnun á verkum
samtímamanna minna varð ekki
eins mikilvæg og að feta brautim-
ar inn f frægðartíð málverksins".
Hann játar afdráttarlaust að hafa
numið af norskri og evrópskri
rómantík, natúralískri og impr-
essjónískri Iist eða mönnum eins
og Thoralf Holmboe, Erik Wer-
enskiold, Thomas Feamley og
Nikolai Astrup. Klassísk frönsk
myndlist hefur einnig hrifið hann,
svo sem skáldlegt raunsæi Jean
Francois Millet og náttúmlýrik
Claudes Monet með birtu- og hug-
Póstskipið kemur.
SUMARTlMI
Vinsamlega athugið
að aðalskrifstofur okkar verða opnar
frá kl. 8:00 til 16:00
átímabilinu 4. maí til 15. september n.k.
a
1
l
t
5AMVINNU
TRYGGINGAR
ÁSMÚLA3
Iðnaðarbankinn af-
hendir peningagjöf
í TILEFNI af breytingum og
stækkun afgreiðslu Iðnaðar-
bankans við Réttarholtsveg veitti
bankinn foreldrafélagi Réttar-
holtsskóla peningagjöf að
upphæð kr. 50.000 sem nota á
til kaupa á myndbandsupptöku-
tæki. Gjöfin var valin í samráði
við skólastjórn og foreldrafélag
skólans. Gunnar Mogensen for-
maður foreldrafélagsins veitti
peningagjöfinni viðtöku og var
myndin tekin við það tækifæri,
talið frá vinstri: Margrét Sigurð-
ardóttir afgreiðslustjóri Réttar-
holtsútibús, Guðmundur
Kristjánsson útibússtjóri Grens-
ásútibús og Gunnar Mogensen.