Morgunblaðið - 01.05.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Vestur-Þýskaland::
Fórnarlömb nasista
hljóta blessun páfa
Katólska kirkjan sætir gagnrýni
Köln, Reuter.
FOR Jóhannesar Páls páfa II til Vestur-Þýskalands mun beina
athygli manna að viðkvæmum kafla í sögu landsins og katólsku
kirkjunnar. Tvö fórnarlömb nasismans verða tekin í samfélag
hinna blessuðu en til þess þarf sérstakan úskurð páfa.
Páfi kom til Vestur-Þýskalands gagnrýnt ógnarstjóm nasista
í gær en þetta er í annað skiptið
sem hann heiðrar landsmenn með
nærveru sinni. Jóhannes Páll mun
veita tveimur fómarlömbum nasis-
mans, nunnunni Edit Stein og séra
Rupert Mayer, blessun sína og
verða þau þar með tekin í svon-
efnt samfélag hinna blessuðu, sem
er næsta stig við tölu dýrlinga í
katólskum sið. Þau höfðu bæði
harðlega og voru handtekin af
þeim sökum.
Edit Stein, sem var gyðingur,
var tekin af lífí í útrýmingarbúð-
unum í Auschwitz árið 1942 en
Mayer lést árið 1945 en þá höfðu
sveitir bandamanna frelsað hann
úr fangabúðum.
Þessi ákvörðun páfa hefur
mælst illa fyrir meðal samtaka
Reuter
Katólska nunnan Edith Stein og jesúítapresturinn Rubert Mayer.
gyðinga. Talsmenn þeirra hafa
sagt að katólska kirkjan hafí eng-
an rétt á að taka Edit Stein fram
fyrir þær sex milljónir gyðinga
Sovéskar stúlkur ganga til
liðs við ungt „hefðarfólk“
Moskvu. Reuter.
TVÆR sovéskar unglingsstúlkur, sem vilja ekki eiga samfélag við
lúsablesa og larfaláka, hafa slegist í félagsskap ungmenna, sem
dýrka og lofsyngja fallegt fólk, að þvi frá segir í blaði ungheija-
hreyfingar Kommúnistaflokksins, Komsomolskaya Pravda. Blaðið
nefnir þennan félagsskap „nýja hefðarfólkið".
„Við skemmtum okkur eingöngu
með fallegu fólki, þ.e. fólki, sem
er andlitsfrítt," segja Helga og
Veronika, sem eiga heima í Orel
fyrir sunnan Moskvu, í bréfi til
blaðsins.
„Ef manneskja er ekki falleg,
finnst okkur hún viðbjóðsleg. Við
fyrirlítum ljótt fólk. Láttu þér ekki
detta í hug, að við séum sjálfs-
elskar. Við getum elskað, virt og
fundið til með fólki, en vel að
merkja: aðeins fallegu fólki,“ segir
í bréfí stúlknanna.
Þær segjast fara í bíó til að sjá
franskar myndir og hafí gaman af
að fylgjast með tískunni og pólitísk-
um atburðum, einkum í auðvalds-
löndunum, en hafí engan áhuga á
áfengi eða eiturlyfjum.
„Þið hafíð verið að skrifa um
eiturlyfjaneytendur og þungarokk-
ara. Hvers vegna? Þeir geta átt sín
vandamál fyrir okkur. Hvað eruð
þið að skipta ykkur af þeim?“ spyija
stúlkurnar.
Komsomolskaya Pravda og fleiri
sovésk blöð hafa undanfarið beint
athygli sinni að vandamálum ungs
fólks, þar á meðal eiturlyfjaneyslu.
sem týndu lífí í útrýmingarbúðum
nasista á árum síðari heimsstyrj-
aldarinnar.
Katólska kirkjan í Vestur-
Þýskalandi hefur verið gagnrýnd
fyrir framgöngu hennar á vald-
atíma Adolfs Hitler. Árið 1938
gerðu kirkjunnar menn sésrstakan
samning við nasista þar sem staða
kirkjunnar i hinu nýja ríkja var
skilgreind. „Kirkjunni var of um-
hugað um að veija sjálfa sig á
þeim tíma og gerði sér ekki ljósa
þá ábyrgð sem á henni hvíldi,"
sagði Rudolf Hammerschmidt,
einn talsmaður katólsku kirkjunn-
ar í Vestur-Þýskalandi.
Páfi mun stjóma guðsþjónustu
í Augsburg, sem bæði katólskir
menn og mótmælendur munu
sækja, til að leggja áherslu á sam-
starf hinna ólíku kirkjudeilda.
Páfí mun sækja heim tíu bæi
og borgir og verður víðtæk örygg-
isgæsla viðhöfð. Alls munu um
15.000 lögreglumenn gæta páfa
og þess sem sérsveitir verða á
varðbergi.
Bangladesh:
Bófaflokk-
ur drap 2
og særði 80
á þorps-
markaði
Dhaka, Reuter.
TVEIR voru skotnir til
bana og 80 særðir, sumir
alvarlega, er grímu-
klæddir bófar réðust inn
á þorpsmarkað ekki ýkja
langt frá Dhaka, á mið-
vikudagskvöldið.
Sjónarvottar segja, að
bófamir hafi verið allt að
fímmtíu talsins og hafi þeir
verið vopnaðir skammbyss-
um og riflum. Þeir komu á
markaðssvæðið í bænum
Elliotganj, eftir að því hafði
verið lokað. Bófamir bundu
verðina og kefluðu, brutu
síðan upp búðir og skutu á
sofandi kaupmennina og
aðvífandi menn, sem reyndu
að stöðva þá. Nokkrir kaup-
menn komust undan wog
náðu í lögreglu. Þegar hún
kom á vettvang vom illvir-
kjamir á bak og burt. Þeir
stálu hvers kyns góssi og
auk þess peningum að jafn-
virði um 1.5 millj. króna.
Síðdegis í gær hafði lögregl-
an ekki haft upp á ódæðis-
mönnunum.
Rymmae
á pottaplömi
arsala
m
Nú um helgina seljum við
allar pottaplöntur
með 20-50% afslætu.
npRtni um verö:
Polyscias
(Sólhlífartre)
296f- 207-"
sfizr- 274--
A&fr 285.-
Sértilboð á pottahlífum
í tilefni rýmingarsölunnar
bióöum við einnig margar
qerðir af fallegum, hvitum
keramikpottahlífum a
30-40% afslætti.
Fagleg þekking, - fagleg Þiónusta
V
Drekatré
59öT- 295-“
790T- 395.-
99€fT- 495.-
Gróðurtiúsinu við S'igtún: Símar36770-686340