Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAJÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
Túrístahópurinn I Paradísarklúbbnum.
Paradísarklúbb-
urinn eftír Ramis
um í furðulega burðarlítil verkefni
og oft er það svo að því meira sem
lagt er af peningum í mjmdir því
misheppnaðri verða þær. Það hefur
sýnt sig aftur og aftur, að þeir
kunna sér sist hóf í efnistökum.
Tökum sem dæmi þessa mynd
sem heitir Paradísarklúbburinn og
er eftir Harold Ramis, sem gerði
Draugabanana frægu. Þetta er í
einfaldleik sínum mynd um raunir
túrista á sólarströnd á eyju í
Karabiska hafinu. En í hinum yfir-
gengilega Hollywoodstíl verður hún
næstum því að epískri stórmynd.
Hún hefur ekki endilega þurft
að kosta mjög mikið á mælikvarða
kvikmyndaborgarinnar, en Holly-
wood hefur hugsað með sér að það
væri ekki nóg að grínast með túr-
ista. Nei, við verðum líka að taka
þjóðemisbaráttu eyjarskeggja með
inn í myndina, við verðum að fínna
vonda menn (arabar), sem ætla að
búa til ríkra manna paradís á eyj-
unni, og góða slökkviliðsmenn (frá
Chicago), sem stoppa þá. Við verð-
um að hafa dóp (ofsa-ofsalega
mikið dóp ha,ha,ha), byltingu, skot-
bardaga, manngrúa á hlaupum og
fullt af óekta tilfinningasemi. Við
verðum að hafa Peter O’Toole af
því hann er heimsfrægur. Við verð-
um líka að hafa Twiggy af því hún
er heimsfræg. Ef ykkur vantar doll-
ara þá hringið þið bara. Og heyriði,
ekki gleyma túristunum sem mynd-
in er um. Og Ramis. Við höfum
látið þig hafa allt sem þú vilt, gerðu
nú eins góða mynd og Draugaban-
ana.
Jæja, honum mistekst það nú.
„Frændur vorir" Svíar gerðu helm-
ingi betri mynd á sömu nótum fyrir
miklu minni pening og kölluðu hana
Sólarlandaferðina. Það var mynd
um túrista í sólarlöndum sem var
um túrista í sólarlöndum en ekki
allt annað. Og hún var fyndin. Það
er hægt að hlæja að einu og einu
atriði á stangli sem snerta að sjálf-
sögðu túristana (Rick Moranis er
æðislegur) en mestanpart glottir
maður útí annað að því hvemig
hægt er að misþyrma góðu efni og
mörgum dollurum.
Arnaldur Indriðason
Paradisarklúbburinn (Club Para-
dise). Sýnd í Bíóhöllinni.
Stjömugjöf: ☆ */2.
Bandarísk. Leikstjóri: Harold
Ramis. Handrit: Harold Ramis
og Brian Doyle-Murray. Fram-
leiðandi: Michael Shamberg.
Kvikmyndataka: Peter Hannan.
Tónlist: David Mansfield og Van
Dyke Parks. Helstu hiutverk:
Robin Williams, Peter O’Toole,
Rick Moranis og Twiggy.
Stundum gæti maður haldið að
orðið óhóf hefði verið fundið upp í
Hollywood. A þeim bæ eru bíó-
myndir síst gerðar af sparaaði og
lítillæti heldur þvert á móti; menn
fara með sundlaugarfylli af doliur-
FRAMDRIFSBILL
Á UNDRAVERDI
Lada Samara hefur alla kosti til aö bera sem
íslenskar aöstœöur krefjast af fólksbíl, í
utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Þaö er ekki
aö ástœöulausu sem Lada Samara er
metsölubíll, því veröiö er hreint undur og ekki
spilla góö greiöslukjör.
Lada Samara 5 gíra kr. 265.000.-
Lada Samara 4 gíra kr. 249.000.- §
Opiö alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá I
10—1 Beinn sími söludeildar 31236 1
VERIÐ VELKOMIN í
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
Rafvirkjar og
línumenn:
Verkfalli
frestað
hjá RARIK
RAFVIRKJAR og linumenn hjá
Rafmagnsveitum ríkisins skrif-
uðu undir nýjan kjarasamning
hjá ríkissáttasemjara á þriðju-
dagskvöld og var verkfalli
þeirra, sem staðið hafði í viku,
frestað. Samningur þessi náði til
um 140 manna sem höfðu með
höndum eftirlit með raforku-
dreifikerfi RARIK og húsveitum
á svæði RARIK um allt land.
Að sögn Magnúsar Geirssonar
formanns Rafíðnaðarsambands ís-
lands var þessi samningur líkur því
sem sambandið hefur gert við ríkis-
verksmiðjurnar. Samningurinn
byggir á fastlaunakerfí og eru lág-
markslaun þau sömu og um var
samið í aðalkjarasamningum Al-
þýðusambandsins og Vinnuveiten-
dasambandsins frá 6. desember en
Rafmagnsveitumar eru aðilar að
VSÍ. Samningurinn gildir út þetta
ár.
Verið er að senda kjörgögn út
um landið og er búist við að úrslit
atkvæðagreiðslu um samninginn
liggi ljós fyrir um miðja næstu viku.