Morgunblaðið - 01.05.1987, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 01.05.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987 53 Á SÖGUFRÆGUM RÚSTUM - Samkvæmt Gamla-testamentinu hrundu múrar Jeríkó við lúðurhljóminn þegar Jósúa stýrði umsátrinu um borgina. Fornleifagröftur sýnir að borgin hefur ekki aðeins verið lögð einu sinni í rústir. Alls telja menn hana hafa verið byggða 23 sinnum! Hér sér niður í uppgröftinn. — Ljósm. Knut Ödegaard. ur virkjað vísindi og tækni samtím- ans með svo sannfærandi hætti til þess að gera óbyggðir að gróður- lendum að gesturinn hlýtur að verða agndofa. Og við sáum þjóð sem á sér öðruvísi sögu og sögulega vit- und en við höfðum áður kynnst. Og- á vit liðinnar tíðar Þegar Israelsmaður talar um gamla daga þarf viðmælandi hans að gæta sín. „í gamla daga" getur merkt tvennt mjög ólíkt. Annars vegar getur það vísað til tímans kringum siðustu aldamót, þegar landnámið var að hefjast á ný eftir langa útivist. En hins vegar er svo jafnsennilegt að átt sé við tímann fyrir 2 000 til 3 000 árum! Eða eins og ísraelsmenn orða það: „Þeg- ar við vorum héma síðast!" Fyrir þá sem hingað til hefur þótt Evrópusagan löng og íslands- sagan jaftivel fullnægjandi verður svona útvíkkun tímans talsvert átak. Að ekki sé nú talað um þá tilfínningu sem gripið getur mann að rústum Jeríkó-borgar þar sem grafíð hefur verið niður í gegnum einar tuttugu og tvær borgir og komið er niður á 30—40 m dýpi á hið neðsta borgargólfíð — sem talið er vera um tíu þúsund ára gamalt! Þá fór nú að fara um Gvend og meyna og ekki laust við að okkur fyndist við vera dálítil peð í verald- arsögunni. Hér verður ekki gerð tilraun til að lýsa öllum þeim fomminjum og sögustöðum sem Hamrahlíðarkór- inn sótti heim í Landinu helga, aðeins minnst á fátt eitt. Vitaniega voru söguslóðir Krists ofarlega á óskaiista okkar og þannig bar okk- ur til Betlehem, og Nasaret auk Jerúsalemborgar og Galfleu-vatns. Undirrituðum kom — eins og reynd- ar víðar á söguslóðum — mest á óvart hve þessir sögufrægu staðir vom miklu smærri í sniðum en hugurinn hafði gert þá í mynd- asmíð sinni. Olíufjallið reyndist ekki vera nema dálítill hóll, Kedron- dalurinn nánast gilskomingur upp á íslensku — og áin Jórdan er ekki öllu stærri en Kópavogslækurinn! Það er víst sannast mála að fjar- lægðin geri fjöllin blá. Ástandið í Jerúsalem gerir það að verkum að sú helgistemning sem ætti að grípa áhugamenn um Biblíusögur verður ekki auðsköpuð. Á gangi eftir Via dolorosa, vegin- um sem Kristur gekk með krossinn, verður varla þverfótað fyrir kaup- glöðum arabískum sölumönnum sem falbjóða allt milli himins og jarðar og jafnvel kringum musterið væri hægt að hugsa sér að hreinsa dálítið til eins nú og fyrr. Það varð meira að segja svo að sjálfum þótti mér helgihaldið auðveldast í Boð- unarkirkju Maríu í Nasaret, kirkju sem ekki'var vígð fyrr en 1969 og er nútímalistaverk teiknað af ítal- anum Giovanni Muzio, kostuð af kaþólikkum allra landa. Þarna horfa við manni Maríur frá öllum heimshomum: Japönsk María, mex- íkönsk María — jafnvel kínversk María. Þama fannst mér ég vera staddur á helgum stað — ekki að- eins vegna hinnar dularfullu boðunarsögu heldur einkum vegna þess að þama höfðu hendur manna mæst yfír höfín og smíðað listaverk sem ekki á sinn líka. Okkur ferðalöngunum varð líka mikil reynsla að koma upp á Massada ekki síst vegna þess að mörg höfðum við séð sjónvarps- þættina um vöm gyðinganna þar. Virki var upphaflega reist á Massada fyrir einum 2 000 áram en endurbyggt og eflt á dögum Heródesar. Hann lét reisa mörg víðsvegar um ríki sitt til þess að geta einatt verið einhvers staðar óhultur en sumir sagnfræðingar telja að Massada hafí átt að vera meginvirkið ef svo færi að Kleó- pötra tækist að telja hinn ástsjúka Antóníus á að gera innrás í Gyð- ingaland. Árið 66 féll Massada í hendur uppreisnargjamra gyðinga og þegar uppreisnin var brotin á bak aftur og musterið í Jerúsalem lagt í rústir árið 70 að okkar tíma- tali hélt þúsund manna lið virki þessu enn. Af því gerðist svo sú saga sem sjónvarpsþættimir sýndu okkur, þegar Flavius Silva var send- ur að brjóta þessa síðustu uppreisn- armenn undir keisarann. Enn þann dag í dag er Massada einn helgasti staður gyðinga. Þar renna ungir menn og konur upp hlíðina til þess að sanna að þau séu tæk í herinn og þar uppi sveija nýliðamir hollustueiðinn — m.a. með hrópinu „Aldrei aftur Mass- ada!“ Ofan frá virkinu gefur stór- fenglegt útsýni til allra átta þótt augun staðnæmist e.t.v. oftast við saltsjóinn mikla, Dauðahafið. Eyðimörkin gerði mikil áhrif á okk- ur öll, eins og Fjölnismenn hefðu sagt, og ekki varð sundtilraun í Dauðahafmu til þess að draga úr áhrifunum. Reyndist býsna skopleg tilfínning að reyna að synda í vatni sem hafnar manni gersamlega og maður skoppar á eins og kork- tappi. Hinum hörðustu tókst þó að fínna upp ný sundtök til að berast um sjóinn. Frá Dauðahafinu liggja miklar leiðslur inn í fjöllin og flytja salt og önnur efni sem unnin verða úr þeim sjó til vinnslustöðva fjær landamæram Jórdaníu. Allt verð.ur til að minna á tækniþekkingu þjóð- arinnar og návist stríðsins. Her- þotur era að æfíngaleik og sprengja hljóðmúrinn með svo áhrifaríkum hætti að íslenskum friðarsinnum þykir alveg nóg um. Fortíðin og nútíðin blandast saman á þann hátt sem ég hafði aldrei reynt áður. En þannig er þetta í þessu landi: Saga ogtími hætta að hlýða manni, „fjar- lægð og nálægð, fyrr og nú, oss fínnst sem í eining streymi" (E. Ben.) Niðurlag- Á hálfum mánuði gerir maður ekki annað en safna augnablikum. Það er mikið verk framundan að vinna úr þeim. Ég hygg að allir ferðafélagamir í þessari söngför Hamrahlíðarkórsins eigi eftir að búa að henni á nokkum hátt alla ævi. Við verðum lengi að melta það sem fyrir augu og eyra bar en á einhvem veg hefur ferðin víkkað okkur sjóndeildarhring, aukið okkur lífsreynslu, skemmt okkur og glatt um leið og hún hryggði okkur. Við eigum þeim margt að þakka sem gerðu okkur kleift að fara, eram stolt af því að hafa fengið að vera nokkra stund fulltrúar lands okkar og þjóðar á framandi slóðum — og hamingjusöm að vera komin heilu og höldnu úr ferð um heiminn hálf- an. SUÐUR - FRAKKLAIMD D*A Sumarleyf isstaður fyrir alla fjölskylduna. FYRIR BÖRN Á ÖLLUM ALDRI óskað er. m Ð FRA KR. 27.31 Munið Urvalsbarnaafsláttj —-—fc----------------------i - Aqualand. Risastórvatnsskemmtigarðurmeðótal rennibrautum, öldusundlaug, sólbaðsaðstöðu, veit- ingastöðum og allskyns busluverki, ekki síst fyrir yngstu bömin. - Tennisklúbbar, með um 100 völlum. Kennsla ef - Torfæruhjólarall - Þrívélhjólarall - Mini-golf af vönduðustu gerð - Trambólín - Slöngubátasiglingar - Hjólaskautadiskó - Seglbrettaskóli - Hringekjur - Leiktæki og spilasalir - Gokart kappakstursbraut - Úrvals franskir matsölustaðir með mikið úrval af fiskréttum. Skoðunarferðir til sögufrægra staða t.d. Cakrasone, Sereneafjalla o.fl. með öll- um gömlu borgarmúrunum og öllum fomsöguminjunum frá dögum kross- faranna. FERÐOSKRIFSTOFAN URVAL v/Austurvöll, símar (91)26900 og 28522
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.