Morgunblaðið - 01.05.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
55
1. maí-ávarp
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB
og Iðnnemasambands íslands
Hver er sú tilfínning, sem bærist
með íslensku launafólki á baráttu-
degi verkafólks, 1. maí? Hvemig
skynjum við þennan dag, karlar,
konur og böm? 1. maí er og verður
dagur hvatningar og dagur vonar
fyrir íslenskt launafólk.
Miklar hræringar hafa orðið í
kjaramálum á síðustu vikum. Þær
launahækkanir sem átt hafa sér
stað að undanfömu hljóta á næstu
vikum einnig að koma til þeirra,
sem höllum fæti standa í launabar-
áttunni. Atvinnurekendur verða að
skilja, að þeir sem minnst bera úr
býtum mega ekki dragast aftur úr
í kjömm. Að öðmm kosti verður
verkafólk að brýna kutana til átaka.
Atvinnurekendur geta hækkað
laun svo um munar, ef þeir láta af
ómarkvissu fjárfestingarbmðli og
hyggja að bættum rekstri og skipu-
lagi innan fyrirtækjanna. A þann
hátt er m.a. hægt að hækka laun
án nýrrar verðbólguskeflu.
Skattsvikin em þjóðarböl. Þeim
verður að útrýma. Það nær engri
átt að almennt launafólk beri þung-
ann af sköttunum meðan fjöldi
fyrirtækja og einstaklinga kemst
hjá því að greiða í hinn sameigin-
lega sjóð.
Misréttið hefur margar hliðar.
Ein þeirra snýr að launum karla
og kvenna. Þar er mikið verk að
vinna. Samtök launafólks verða að
gera bandalag um að afmá launa-
misréttið og linna ekki látum fyrr
en fíillt jafnrétti hefur náðst.
Önnur hlið snýr að bömum okk-
ar. Langur vinnudagur og lágt kaup
— ekki síst kvenna — eiga drýgstan
þátt í því útigangsþjóðfélagi, sem
við höfum búið bömum okkar. Einu
áhrif yngstu kynslóðarinnar era
lyklavöld að mannlausum íbúðum
og aðgangur að skólakerfí, sem
yfirvöld hafa ekki sniðið að aðstöðu
og þörfum bama. Er þetta það sem
við viljum? Er þetta það samfélag,
sem við viljum búa bömum okkar
og okkur sjálfum í framtíðinni?
Ifyrir fmmkvæði verkalýðshreyf-
ingarinnar hefur tekist að gerbreyta
stöðunni í húsnæðismálum á
skömmum tíma. En betur má ef
duga skal. Ríkisvaldið verður að
leggja fram meira fé til að stytta
biðtímann eftir húsnæðislánum. Ell-
egar er hið mikla starf hreyfingar-
innar í húsnæðismálum í hættu.
jafnframt þarf að tryggja aðra kosti
til húsnæðisöflunar; félagslega
íbúðakerfíð og opna nýjar leiðir s.s.
kaupleiguíbúðir fyrir þá sem þess
óska.
Það em mannréttindi að búa í
öraggu húsnæði. Það em líka
mannréttindi að þurfa ekki að fóma
heilsu og fjölskyldulífí til að eignast
þak yfír höfuðið.
Ný sýn á menntun og fræðslu-
starf blasir við launafólki og
samtökum þess. Námskeið fyrir
fískverkafólk og aðrar nýjungar í
fræðslustarfí sýna okkur hvað hægt
er að gera. En þetta er upphafíð
að öðmm stóram verkefnum á
þessu sviði. Launþegahreyfíngin í
landinu gerir kröfu um símenntun,
enda er menntunin lífakkeri allra
launþega þegar til lengri tíma er
litið. Jafnframt er hún undirstaða
iðn- og tækniþróunar og ræður
þannig lífsafkomu okkar sem þjóð-
ar.
1. mai minnumst við bræðra okk-
ar og systra í þriðja heiminum,
þeirra sem kúgaðir em og hæddir
sökum kynferðis, litarháttar eða
trúarbragða. Við fordæmum ógnar-
stjómir heims. Suður-Afríka er þar
efst á blaði. Við höfnum einnig af-
skiptum stórveldanna af innan-
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásfóum Moggans! «■<
landsmálum ríkja, hvort sem er í
E1 Salvador, Nicaragúa eða Afgh-
anistan. Vopn varða aldrei veginn
til friðar.
Við höfnum einnig kjamorku-
vopnum. Gereyðingarvopn marka
leið beint til heljar. Við höfnum
þeirri lífssýn, að bömin okkar alist
upp í víghreiðri kjamorkunnar. Við
bemm virðingu fyrir lífinu. Þess
vegna styðjum við kjamorkuvopna-
laus Norðurlönd, kjamorkuvopna-
laust svæði í Mið-Evrópu og heim
án atómvopna. Þess vegna styðjum
við einnig friðlýsingu hafsvæðisins
umhverfís ísland og hvetjum til
harðvítugrar andstöðu við endur-
vinnslustöð fyrir kjamorkuúrgang
í Dourea í Skotlandi. Slys frá slíkri
stöð myndi ógna lífsafkomu
íslensku þjóðarinnar.
Við íslendingar eigum að marka
okkur spor í sögu þjóðanna sem
friðelskandi fólk.
Á næstu vikum og mánuðum
reynir enn á ný á samtakamátt og
siðferðisþrek launamanna. Okkur
er öllum ljóst, að það verður að
bæta laun þeirra sem verst em sett-
ir. Þetta verður að takast. Minn-
umst þess hvemig samtakamáttur
í stað sérhyggju hefur ætíð reynst
öflugur bakhjarl til að byggja upp
réttlátt þjóðfélag í anda frelsis,
jafnréttis og bræðralags. í anda
þeirra. hugsjóna, sem verkalýðs-
hreyfingin hefur haft að leiðarljósi
frá öndverðu.
Félagar í VR með
myndlistarsýningn
Á FRÍDEGI verkalýðsins, 1. maí,
mun hópur nokkurra manna og
kvenna sem eru félagsmenn í
Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur sýna málverk sem þau hafa
málað undanfarin ár. Sýningin
verður í húsakynnum VR í Húsi
verslunarinnar á 9. hæð.
Félagsmenn þessir hófu nám með
aðstoð VR árið 1984 undir leiðsögn
Benedikts Gunnarssonar listmál-
ara. Hópurinn hefur síðan komið
saman vikulega og unnið að mynd-
listinni. Margir í þessum hópi sýna
verk sín í fyrsta sinn á þessari sýn-
ingu.
Hópurinn á það sameiginlegt að
allir em úti á vinnumarkaðinum og
stunda list sína í frítíma sínum.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
mv/m
Þú færð hvergi ódýrari, betri eða
þægilegri „flug og bíll“ en hjá
Úrvali.
i má heldurgleyma öllum sum-
arhúsunum sem við höfum um
Evrópu.
Kynniðykkurhin ótrú-
legu lágu verð á
sumarhúsum og íbúð-
um, sem við bjóðum
upp á um alla Evrópu.
Flug og bíll - Ein vika
Verð pr. mann
Verðfrákr. Meðalverð
Luxemborg 13.128 m.v. 4 í bíl1 10.318
Kaupmannahöfn 13.434 10.876
Glasgow 14.877 12.061
London 16.807 13.491
Salzburg 17.592 14.857
Bíll tekinn í annarri borginni en skilað f hinni
Kaupmannahöfn/ 19.8402 15.017
Luxemborg Luxemborg/ 15.628 12.818
Salzburg Salzburg/ 16.392 13.657
Luxemborg Glasgow/London 16.082 13.085
1) 2 fullorðnir og 2 börn
2) Miðað viðtvær vikur
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVOL
v/Austurvöll,
símar (91)26900
og 28522