Morgunblaðið - 01.05.1987, Síða 72
.<•>
BRUIMBÓT
/ -aföryggisastæðum
Nýjungar
í 70 árH^
Leirubrú-
in vígð
ásamt 37
kílómetra
vegar-
kafla
Akureyri.
MATTHÍAS Bjaraason, sam-
gönguráðherra, vígði í gær
veginn frá Drottningarbraut á
Akureyri austur að Fnjóskár-
brú — og þar með nýju brúna
á Leirunum við Akureyri. Matt-
hías klippti á borða sem
strengdur hafði verið þvert yfir
brúna.
Hér er um að ræða 37 kfló-
metra leið, frá Drottningarbraut,
sem fyrr segir, út Svalbarðs-
ströndina, yfír Víkurskarð og inn
að Fnjóskárbrú. Verkið í heild
kostar, á verðlagi dagsins í dag,
347 milljónir króna. Framkvæmd
er ekki alveg að fullu lokið, þar
sem eftir er að setja varanlegt
slitlag á hluta leiðarinnar.
Viðstaddir athöfnina voru
frammámenn vegamála á Norður-
landi auk Snæbjamar Jónassonar,
vegamálastjóra, og forystumanna
þeirra sveitarfélaga sem tengjast
umræddri vegagerð. Þá lagði
Qöldi fólks frá Akureyri leið sína
að nýju brúnni til að fylgjast með
athöfhinni.
Reykjavík:
Rútur fengnar
"til að flylja
nemendur heim
SNJÓ kyngdi niður á suð-
vestur-hominu í gærkvöldi.
Hálka var á götum höfuð-
borgarinnar og þurftu
strætisvagnar Reykjavíkur
að hætta akstri á tólfta
tímanum.
Bílar vom komnir á sumar-
dekk, því um mánaðamótin eiga
bifreiðaeigendur að vera búnir
að taka nagladekkin undan bílum
sínum. Miklar annir vom hjá lög-
reglu. Þúsundir unglinga fögnð-
uðu lokum samræmdu prófa í
miðborginni. Um miðnættið
sagði varðstjóri í aðalstöð lög-
reglunnar að verið væri að kalla
til aðstoðar Iangferðarbfla frá
Guðmundi Jónassyni til þess að
flytja unglinga heim.
Miðbæjarlögreglan hafði feng-
ið tilkynningar um þrenn rúðu-
brot og mikið var um hringingar
frá veitingastöðum sem áttu í
erfíðleikum með að hemja
dmkkna krakka. „Þetta er leið-
indaástand. Einhvem veginn
verða krakkamir að komast
heim, en við getum lítið aðstoðað
þar sem allir bflamir okkar em
inni á verkstæði að skipta aftur
yfír á vetrardekk," sagði önnum
Jcafínn varðstjóri í samtali við
blaðamann.
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
S GuðjónÓ.hf.
91-27233
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987
VERÐ I LAUSASÖLU 50 KR.
A gúmbáti niður Elliðaárnar
„ÞETTA er gamall draumur hjá okkur. Þegar ég sá að ámar vom
að byija að brjóta af sér klakann í gær, mórauðar og fallegar ákváð-
um við að slá til,“ sagði Amberg Þorvaldsson sem ásamt félögum
sfnum í Nýja ferðaklúbbnum sigldi niður Elliðaámar í gærkvöldi á
gúmbát. Myndin var tekin þegar þeir fóm í loftköstum niður Sjávar-
foss, við brúna á Miklubraut. Þeir félagar hafa mátt keppa við stríðari
strauma en þennan. Síðastliðið sumar var þessi bátur og áhöfn hans
í foruneyti „Iceland Breakthrough" sem fór niður Hvítá.
Fóstrur hjá Reykjavíkurborg felldu launasamninginn:
Sé ekki annað enbania-
heimilin loki í mánuði
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„ÞETTA er með ólíkindum,“
sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri en fóstrur, sem höfðu sagt
upp störfum, höfnuðu á félags-
fundi í gær launasamningi, sem
starfskjaranefnd Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar náði
við fulltrúa borgarinnar um
29,1% launahækkun frá og með
1. febrúar. Uppsagnir þessara
Morgunblaðið/Öl.K.M.
Indíánarnir koma
Miðborg Reykjavíkur varð skyndilega í gær vettvangur indíána.
Reyndar fóm þeir með friði, enda kom í ljós, að þetta vom nemend-
ur Kvennaskólans að dimmittera.
190 fóstra taka þvi gildi í dag
og loka 37 dagheimili og starf-
semin á 11 heimilum lamast.
Launasamningurinn, sem fóstmm-
ar höfnuðu, felur í sér hækkun
gmnnlauna úr 28.906 krónum í
37.316, en meginkrafa þeirra var
40.000 króna lágmarkslaun.
Margrét Pála Ólafsdóttir, fóstra,'
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að launasamningurinn
hefði verið felldur með miklum
meirihluta þeirra fóstra, sem sögðu
upp störfum.
„Ég sé ekki annað en að þetta
leiði til þess að bamaheimilin loki
í all nokkra mánuði," sagði Davið
Oddsson. „Það er búið að semja
einu sinni við starfsmannafélagið
og síðan er búið að bæta við tveim-
ur launaflokkum sérstaklega fyrir
kvennastéttir þar á meðal fóstmr.
Síðan er búið að gera annað sam-
komulag í starfskjaranefndinni þar
sem em jafn margir fulltrúar borg-
arinnar og starfsmannafélagsins
um viðbótarframlög. Þannig að það
er enginn hópur í landinu sem hef-
ur fengið aðrar eins kauphækkanir
á þessu stigi og fóstmr. Því er ljóst
að einhver í forystusveit fyrir fóstr-
ur er gjörsamlega mglaður í ríminu.
Það er búið að gera allt sem hægt
er að gera og því verður ekki rætt
meira við þær.“
Sjá bls. 2: Fóstrur vilja 40 þús-
und króna lágmarkslaun.
Fóstrur hjá ríkinu:
Samþykktu
samiiingana
FÓSTRUR á ríkisreknum dag-
heimilum samþykktu í gærkvöldi
röðun í launaflokka og gerðan
kjarasamning. „Við kröfðumst
sömu launa og þroskaþjálfar,
fengum því framgengt og sam-
þykktum samninginn,“ sagði
Marta Sigurðardóttir sem sat í
samninganefnd.
Lágmarkslaun samkvæmt ný-
gerðum samningi verða 37.316
krónur, en þessu tilboði höfnuðu
fóstmr hjá Reykjavíkurborg sem
sagt hafa upp störfum frá 1. maí.
Marta sagði að gerð hefði verið
krafa um að inn í samningana yrði
tekin staða deildarfóstm, sem yrði
sambærilegt starfi deildarþroska-
þjálfa. Þessu var hafnað af hálfu
ríkisins.
„Staða okkar er frábmgðin og
að mörgu leyti betri en fóstra hjá
borginni. Ef við vinnum yfírvinnu
fáum við hana greidda. Það fá þær
ekki. Við megum halda starfs-
mannafundi í hveijum mánuði, en
þær aðeins tveggja tíma fundi ann-
an hvem mánuð. Þetta gerir okkar
stöðu betri og hlýtur að hafa áhrif
á samninginn," sagði Marta.