Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 13

Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAI 1987 B 18 ATLANTSHAFSFLUG LINDBERGHS A R A Lindbergh áíslandi CHARLES Lindbergh kom til Reykjavíkur ásamt konu sinni lS.ágúst 1933 frá Angmagsalik á Grænlandi og dvöldust hér á sama tima og brezki flugkappinn Grierson. Rúmum mánuði áður hafði Italo Balbo marskálkur stjórnað „hópflugi ítala“ hingað. Lindbergh var í þjónustu flugfélagsins Pan American Airways og íslandsferð hans var liður í norðurleiða könnunarflugi fyrir félagið. „Múgur og margmenni þusti niðurtil hafnarinnar," sagði í frétt Morgunblaðsins um komu Lind- berghs-hjónanna. „Skip öll í höfninni þeyttu eimpípur með svo miklum gauragangi, að fólk fékk lokur fyrir eyrun.“ Lindbergh lenti á Viðeyjarsundi Laust eftir hádegi 18. ágúst kom skip Lindberghs, „Jelling", til Reykjavíkur og Lindberghs- hjónin fóru um borð til að tala við yfírmanninn, Logan majór. Síðdegis bauð forsætisráðherra hjónunum til tedrykkju. Seinna hætti Lindbergh við að fara í boði forsætisráðherra til Þingvalla vegna þess að Grierson hlekktist á þegar hann ætlaði að fljúga frá Reykjavík til Grænlands. Lind- berghætlaði að hjálpa Grierson að gera við flugvélina, en í ljós kom að hún var ónýt og Grierson varð að hætta við fyrirhugað Atl- antshafsflug. Hinn 22.ágúst flugu Lindbergh og frú hans vestur og norður yfír Eyjafjörð, suður í Skaftafellssýsl- ur og austur til Eskifjarðar, þar sem þau gistu hjá Magnúsi Gísla- syni sýslumanni eina nótt. Daginn eftir flugu þau frá Eskifirði til Færeyja. Þaðan fóru þau degi síðar til Leirvíkur á Hjaltlandi og loks til Kaupmannahafnar. í leiðara Morgunblaðsins um Lindbergh 19.ágúst sagði m.a.: „Af engu orði eða látbragði hans verður ráðið, að hann sjálfur skoði sig neinum fremri. En þegar minnst er á flug hans og eitthvað er að því lýtur, tindra hin hauksn- öru augu, eins og hann lyfti sér yfir tíma og rúm og horfí beina leið inn í framtíðina." (Spegillinn henti gaman að þessum ummæl- um og fieiru í sambandi við heimsóknina, eins og hans var von og vísa). Lítið var skrifað um tilgang íslandsferðar Lindberghs, en blaðafréttir hermdu að „athug- analeiðangur" hans hefði „vakið mikla athygli flugmálasérfræð- inga helztu flugfélaga álfunnar." Um möguleika á flugi á íslandi sagði Lindbergh að þar væri alls staðar hægt að fljúga. Hann kvaðst efast um að póstflug mundi borga sig hér á landi og benti á „hér þyrfti að vera a.m.k. tvær flughafnir, norðan- og sunnan- lands, hér þyrfti að reisa nokkrar loftskeytastöðvar o.sv.frv. Ekki treystist Lindbergh til að segja um, hvort flug þessa leið borgar sig.“ (Mbl.23.8.33). GH Ljósmyndirnar af komu Lindberghs-hjónanna tók Sva- var Hjaltesteð. Lindberghs-hjónin stíga á land Lindberghs-hjónin, Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri, Grierson og Sigurður Jóns- Lindbergh, Ann kona hans, Slgurður Jónsson og enski flugmaðurinn Grierson son og batt vél sína við dufl undir Viðeyjarbryggjum, en óskaði eftir því að fara í land í Vatnagörðum. „Þangað var kominn fjöldi fólks úr Reykjavík í einum 50-60 bílurn," sagði Morgunblaðið. „Þyrptist fólkið niður í flæðarmál og niður á bryggju. Hrópaði hver húrra sem betur gat til að fagna komu hins fræga fluggests." Lindbergh fór síðan aftur út í flugvél sína og kvaðst ekki vilja skilja við hana meðan hún væri ekki í tryggari höfn. Hjónin gistu í Vieðy meðan þau voru hér. Morguninn eftir fór Lindbergh á pósthúsið og Austurstræti fylltist af fólki. Síðan gekk hann á fund dómsmálaráðherra og Garðars Þorsteinssonar, sem var settur borgarstjóri. Flugvél Lindberghs var komið fyrir í vestari höfninni 17.ágúst, en flaug ekkert fyrst um sinn, „enda er hér í Reykjavík ekkert bensín við hæfi hreyfilsins. Ben- sínið, sem flugsveit Balbos notaði, dugar ekki í hans vél.“ Flugvél Lindberghs vió Vlðey

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.